Stefnir - 01.03.1951, Side 13

Stefnir - 01.03.1951, Side 13
BALDUR JOHNSEN, læknir: Getum við höndlað IEILBBI6BINA? HEILSUVERND er mál, sem alla varðar, enda er henni æ meiri ganmur gefinn, og læknavísindin leffgja nú megináherzlu á það að kenna fólki l>á lifnaðarliætti, að auðið verði að koma í veg fyrir sjúkdóm- ana. Ilefur mjög mikið áunnizt á þessu sviði, þótt enn hafi ekki tekizt að upp- ræta orsakir allra sjúkdóma, enda marg- ar þeirra enn ókunnar. Baldur Johnsen, læknir, hefur lagt sérstaka stund á þenna þátt læknavísindanna og hefur hann flutt útvarpserindi um heilsuvernd, sem vakið hafa mikla athygli. í eftirfarandi grein víkur hann að ýmsum mikilvægum atrið- um, sem varða verndun heilbrigðinnar — hyrningarsteinsins undir lífshamingju sérhvers manns. Menn hafa leitað heilbrigð- innar með ýmsu móti alla tíð. Til þess benda fornleifar æva- gamalla, löngu útdauðra þjóða °g þjóðflokka. Lengst af gilti og gildir, að miklu leyti enn, það sjónarmið í þessu tilliti, „að eigi veit hvað átt hefur fyrr en misst hefur“. Þeas vegna hefur heiihrigðin fyrst þurft að glatast til þess, að menn lærðu að meta hana, og færu að leita hennar á ný, en oft var þá a'llt um seinan. Þetta er hið neikvæða viðhorf til heilbrigðinnar. Það sem af er þessari öld og nokkuð af hinni fyrri, hefur þó sú skoðun fengið meiri og meiri hyr undir vængi, að heilsuna beri að vernda, til þess að koma í veg fyrir, að sjúkdómar nái fótfestu.

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.