Stefnir - 01.03.1951, Page 15

Stefnir - 01.03.1951, Page 15
GETUM VIÐ HÖNDLAÐ HEILBRIGÐINA? 13 til þess að ganga úr skugga um, hvort nokkuð (sé að eða ekki, ■— en svo hátt undir höfði gera menn almennt ekki sinni eigin U'kams- vél —, og bilar hún þó oftar en skyldi, með tiltölulega snöggum hætti, og leiðir til örorku, sem hægt hefði verið að fyrirbyggja, ef ráð hefði verið í tíma tekið. Hvað er heilbrigði? Til þess að öðlast betri skiln- ing á heilbrigðinni, var fvrir 25 árum hafið í Englandi, í Peckham í suður-London, sérstakt rann- sóknarstarf þar sem tilraunadýr- in voru karlar, konur og börn, fjölskyldur, ekki innilokuð í sér- stökum klefum eða búrurn, held- ur í sínu venjulega umhverfi hversdagslífsins, við strit sitt og starf, gleði og sorgir, alveg eins og gengur og gerist. Það voru raunar nokkrir ungir menn og konur, sem hrundu til- rauninni af stað. Þau höfðu eitthvert hugboð um, að heilbrigðin væri grund- vallaratriði í öllu lífi manna. Þó gerðu þau sér ekki frekar en aðr- lr fulla grein fyrir, í hverju sönn ‘heilbrigð’i væri fólgin, en þau höfðu á tilfinningunni, að leynd- ardómurinn væri falinn með ung- barninu og fyrsta þroska þess. Og þau voru sannfærð um, að mjög væri þýðingarmikið, að foreldrar væru heilbrigð áður en barnið væri getið og borið, að það væri velkomið, og að geta og vilji væri fyrir hendi til að gefa því Isómasamlegt uppeldi. Þetta áhugasama unga fólk fékk síðan lækna og vísinda- menn, sem áhuga höfðu fyrir málinu, í lið með sér. Síðan hófst tilraun í litlu húsi í suður-London, þar sem átti að afla vitneskju um heilbngðina. I húsinu voru biðstofa. rann- sóknarherbergi, fataherbergi, bað og samkomuherbergi. Þá var fjölskyldum úr næsta nágrenni boðin þátttaka, gegn smávægilegu mánaðargjaldi, en í staðinn áttu þær að geta notað húsið fyrir félagsheimili, eftir því sem aðstæður leyfðu og svo átti að fara fram á þeim reglu- legar heilbrigðisrannsóknir með vissu millibili. Eftir 3 ár voru meðlimir orðn- ir 400, þ. e. rúmt eitt hundrað fjölskyldur. Þar með var ísinn brotinn, og fyrsti vandinn leystur, en það var að ná til fólks, sem vildi undir- gangast heilbrigðisrannsóknir reglulega, þótt það kenndi sér einskiþ meins.

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.