Stefnir - 01.03.1951, Side 18
16
STEFNIR
lífseining náttúrunnar í þessu til-
felli.
SvipaS gildir um manninn. Þar
er lífseiningin fjölskyldan, karl
og kona, sem lifa í samlífí, með
eða án barna.
Án þess að skilningur sé til
staðar á þes-sum grundvallarat-
riðum, verður ekki hægt að skoða
heilbrigðina í réttu ljósi.
Heilbrigðin er beinlínis háð
umhverfinu og starfinu.
Þegar hér var komið sögu,
hafði frumtilraunin staðið í 3—4
ár.
Fjölskyldumeðlimirnir höfðu
fengið sínar reglulegu heilbrigð-
isskoðanir, og þeir sjúkdómar,
sem fundust, smávægilegir og al-
varlegir verið teknir til meöferð-
ar.
En þá kom í ljós, að meðferö
virtist oft þýðingarlítil ef ekki
var jafnframt hægt að breyta því
umhverfi mannsins, sem liafði
skapað eða verið meðverkandi til
að skapa sjúkdómsástandið.
Það sýndi sig einnig, að hjá
fólki, sem þjáðilst af óeðlilegri
deyfð og drunga, samfara
minnkuðu starfsþoli, í einu orði
sagt, því sem oft er kallað leti,
gat breyting umhverfisins eða
starfsbreyting gerbreytt ástandinu
til hins betra.
í sannleika sagt, er maðurinn
svo athafnasöm skepna, að hug-
takið leti á ekki við hann, nema
sjúkur sé.
Hér var auðvitað þýðingarmelst
að hafa atvinnu, sér og 'SÍnurn
til framfæris, því að án þess, áð
geta aflað sér fæðis , klæöis og
húsnæðis örugglega, verður aldrei
'hægt að rækta heilbrigðina, og
auk þess er atvinnuleysið í sjálfu
sér stórhættulegt andlegri heilsu
manna.
Sé afkoman tryggð er svo um
að ræða að Iskapa tækifæri til
tómstundaiðju og vekja áhuga á
slíku. Þegar sá áhugi var vakinn
gat viðhorfið til lífsins og vanda-
mála líðandi stundar gerbrevzl.
Þarmeð var fundið viðfangs-
efni er héldi lífsgleði og áhuga
vakandi, og skapaði á nv þann
lífsþrótt, sem raunar er hverjum
heilbrigðum manni eðlilegur.
Þetta vandamál er algengara en
menn yfirleitt gera sér grein fyr-
ir, því að fáir menn eru svo vel
settir í lífinu, að hafa einmitt
fengið að aðalstarfi, eða lífsstarfi
sitt aðaláhugamál.
En hverjum manni er nauðsyn-
legt að hafa, að minnsta kosíi
að einhverju leyti þá iðju, sem
fullnægir hugmyndaflugi hans,