Stefnir - 01.03.1951, Page 21

Stefnir - 01.03.1951, Page 21
GETUM VIÐ HÖNDLAÐ HEILBRIGÐINA? 19 að öðru jöfnu, komu fleiri af- burðamenn úr blönduðu um- hverfi en þar sem stétlaskipting- in iskipar mönnum í einhæf byggðahverfi ríkra manna og fátækra. Það fækkar tækifærun- um og þrengir sjóndeildarhring- inn á báða bóga. Hér er að finna eina orsökina til þess, að í fábýli, þó innan vissra takmarka, fæðast upo fleiri afburðamenn á sviði lista og íþrótta, heldur en í fjölbýli stór- borganna. Þetta er áberandi hér k landi, að sumu leyti, miðað við stærri þjóðlönd og milljónaborgir. Með hliðsjón af öllu þessu, hafa opnast á mönnum augun fyrir því, hve nauðsynlegt er að stöðva vöxt stórborganna, og þar eem stórborgir eru þegar komnar, að draga úr þéttbýlinu, hvenær sem tækifæri gefst til þess. Hafa þessi sjónarmið mjög verið ríkj- andi við uppbyggingu þeirra borga, sem mest skemmdust í síðaista stríði. T. d. er í austur- hluta Lundúna einungis ætlast til að I/3 hluti þeirra íbúa, eem voru fyrir stríð, verði framvegis í borgarhlutanum. Svipað sjónar- mið gildir í Varsjá í Póllandi og v. o. v. Hinir endurreistu borgarhlut- ar eða nýjar borgir, sem upp kunna að verða byggðar, eru samsettir úr hverfiseiningum, eða nágrannahverfum, með 5—10 þús. íbúa, en það er talin heppi- legust rekstrareining, með tilliti til skóla, verzlunar, heilsuvernd- arstöðva, samkomustaða, og ejálf- sagt var að staðsetja iðnaðinn í úthverfum slíkra hverfa. Allt að 10 nágrannahverfi mynduðu síðan eitt stórhverfi, með um 50—60 þús. íbúum, og var það talin heppilegust borg- arstærðin, með tilliti til fram- kvæmdarstjórnar, þæginda og heilsu íbúanna. Það mætti segja, að Revkjavík hefði nú þá hepplegustu stærð og íbúafjölda, sem á verði kosið. Og byggingum isíðari ára hef- ur verið dreift í hverfi, þótt því fylgi aukinn kostnaður fyrir bæj- arfélagið, í sambandi við götur og leiðslur, þá hefur á þessu þýð- ingarmikla atriði verið fyrir hendi vakandi skilningur. Opnu, grænu svæðin eru lungu stórborganna, og þau ásamt með barnaleikvöllum og íþróttavöll- um, eru beztu eiginleikar dreif- býlisins fluttir inn í borgirnar. Á hinn bóginn er það svo verk- efni dreifbýlisins, að hagnýta beztu eiginleika borganna, svo sem möguleika til rennandi neyzluvatns í húsin og frárennsl-

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.