Stefnir - 01.03.1951, Blaðsíða 22
20
STEFNIR
ils, rafmagns, betra samgöngu-
kerfis og félagsstarfsemi.
Eftirmáli.
Hér hafa verið tekin til athug-
unar nokkur undirstöðuatríði, er
varða andlega og líkamlega heilsu
manna í nútíma þjóðfélagi.
Þessi undirstöðuatriði verður
að hafa í huga við uppbvggingu
heilsuverndarkerfisins, eftir að-
stæðum, á hverjum stað.
Bifreiðastjórar vita nú, að
miklu betri ending fæst úr bif-
reiðinni ef skoðun er látin fara
fram á henni með vissum milli-
hilum, og þá gert við smábilanir,
áður en þær fara að hafa áhrif
á ganginn. Þetta er talið mikið
fjárhagsatriði.
Ef við metum manninn marg-
falt meira en bifreiðina, hversu
miklu þýðingarmeira væri þá
ekki, að hann fengi reglulegar
heilbrigðisskoðanir, til bess að
leita að og gera við smákvilla áð-
ur en þeir ná að verða að alvar-
legum sjúkdómum, sem svo verða
til að fylla hin fáu sjúkrarúm
okkar, og leiða svo máske til ör-
orku og eða ótímabærs dauða.
Hvílíkt fjárhagsatriði væri það
ekki.
Heilsuverndarsjónarmiðið hef-
ur nú þegar á svo mörgum svið-
um isannað gildi sitt, að ekki
verður um villst, hvert stefnir.
Nærtæk dæmi eru: bólusóttin,
taugaveikin, chóleran, barnaveik-
in og berklaveikin.
Við bíðum eftir að aðstaða
skapist til að taka krabbameinið
sömu tökum og berklaveikina fyr-
ir 16 árum, og gildir svipað um
ýmsa aðra hrörnunarsjúkdóma.
Þannig er augljóst, að hlutfall-
ið milli heilsuverndarstarfsemi
og lækninga breytist stöðugt
heilsuverndinni í vil, og hefur
því raunar farið fram síðustu 100
árin, og þeir tímar munu koma,
að sjúkrahúsin verði að mestu
slysavarðstöðvar og hressingar-
hæli, þar sem meðal annars verða
kenndir heilbrigðir lifnaðarhætt-
ir, þeim, sem afturúr hafa dreg-
ist í heilbrigðismenningu.
Þá mætti raunar segja, að við
hefðum höndlað heilbrigðina.
Hin tæknilega hlið heilsuvernd-
armálanna væri efni í aðra grein.