Stefnir - 01.03.1951, Page 24

Stefnir - 01.03.1951, Page 24
22 STEFNIR iþess fallinn að vera héraÖsmið- stöð. Reynistaður stendur í vestan- verðum Skagafirði, þar sem Langholti sleppir og Sæmundar- á fellur af Vatnsskarði út með Vesturfjöllum og fram á slétt- lendi héraðsins. Er þar nokkru utar en miður Skagafjörður. Bær- inn stendur á hæð, sem gengur fram á sléttlendið. Sést þaðan út til Tindastóls, eyja og Þórðar- höfða en Mælifellshnúkur og Blönduhlíðarfjöll blasa við í suðri og suðaustri. Þarna tók Jón Sigurðslson við góðbúi af föður sínum árið 1914, enda þótt faðir hans teldist bóndi þar til 1919. Hefur hann bætt jörðina mjög og rekur þar nú stórbú ásamt syni sínum eins og nánar verður getið síðar. Á Reynistaðarbúi eru nú hálft þriðja hundrað fjár, 25 nautgripir og um 50 hross. Töðu- fengur er 7—800 hestburðir og tún allt slétt og véltækt. Af út- engjum, sem einnig eru allar sléttar og véltækar er árlega afl- að um 2000 hestburða af heyi. Húsakostur er nú mikill og góður á Reynistað. Árin 1935— 1938 byggði Jón bóndi þar myndarlegt tveggja 'hæða stein- hús með kjallara. Eru í því 14 herbergi auk hreinlætisherbergja og kjallara. Fortíð og nútíð mœtast. Það, sem einkennir hinn nýja Reynistaðarbæ þegar inn er kom- ið, er það, að þar mætast fortíð og nútími í herbergjaskipan og húsbúnaði. Þar getur að líta nú- tímastofur búnar nýtízku hús- gögnum og baðtstofu í gömlum og þjóðlegum stíl. Hún er hinn daglegi veru- og vinnustaður heimilisfólksins. Þar eru lok- rekkjur meðfram veggjum og gömul rósamumstur og höfðalet- ur á þiljum. Ein höfðaletursvísa er yfir hverri rekkju. Fyrir gafli baðstofunnar er gamall ættar- gripur, skápur, sem talinn er vera rúmlega 450 ára gamall, en gæti þó verið eldri. Á hurðum hans eru myndir málaðar og út- skornar af Kristi og guðspjalla- mönnunum. í þessu herbergi eru einnig sími og útvarp. Onnur (stofa í húsinu, sem notuð er sem borðstofa fyrir gesti, er að mestu flutt úr gamla Reynistaðarbænum, sem var torf- bær. í honum voru 24 herbergi, sem innangengt var í, auk skemmu og útihúss, sem áföst voru. Var hann byggður um 1840. I þessari stofu er spjalda- loft og spjaldaþiljur. Þar er einnig hornskápur, sem er jafn- gamall gamla bænum. Fyrir

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.