Stefnir - 01.03.1951, Page 27

Stefnir - 01.03.1951, Page 27
MENN OG MÁLEFNl 25 méð þeim mörkuð stefna, sem var í senn stórhuga og raunhæl. Ásamt Magnúsi Guðmundssyni og Árna G. Eylanas átti Jón á Reynistað emnig frumkvæði a? þvj að fyrsia fljótandi skurðgraf aii var flutt hingað til lands ári? 1925. Var haiin vinna tneð henn' í Skagafirði en síðan var hún notuð á Suðurlandi. Var rekstur hennar upphaf að skurðgröfu- rekstri ríki|sins. Hann var einnig upphafsmað- ur: og flutningsmaður að lögun- um um óðalsrétt en megintilgang- ur þeirra er að treysta tengsl ættarinnar við jörðina og stuðla að rótfestu fólksins í sveitunum. Jón á Reynistað er einnig frumkvöðull laganna um búfjár- tryggingar. Má segja að hann sé meðal þeirra, sem hafa átt rík- astan þátt í lagasetningu uni flept hin veigameiri mál land- búnaðarins á síðari tímum. Hef- ur hann átt sæti í milliþinga- nefndum Búnaðarþings, en þar hefur hann einnig verið fulltrúi Skagfirðinga, er um landbúnað- armál hafa fjallað. Jafnframt hefur hann setið í landbúnaðar- nefnd Nd. Alþingis lengstum síð- an hann tók sæti á þingi. Þegar bændur mynduðu fyrstu stéttarsamtök sín með stofnun Stéttarsambands bænda árið 1945 var Jón Sigurðsson kjörinn í stjórn þetss. Hefur hann átt þar sæti síðan. Þegar framleiðsluráð landbúnaðarins var stofnað árið 1947 tók hann einnig sæti í stjórn þess sem fulltrúi Stéttasambands- ins. Til þess starfa hefur hann verið endurkjörinn síðan. Heima á Reynistað. Jón á Reyniistað kvæntist árið 1913 Sigrúnu Pálmadóttur, Þór- oddssonar prests að Höfða og síðar á Hofsósi. Hafa þau átt þrjú börn en tvö þeirra dóu kornung. Þriðja barn þeirra, Sigurður, er nú fulltíða maður og rekur síðan árið 1948 félags- bú með föður sínum. Hlaut hann eins og faðir hans búnaðarmennt- un hér heima en sigldi síðan til framhaldsnáms og dvaldi 2 ár í Noregi. Hafa þau nú gert Reyni- stað að ættaróðali samkvæmt lög- unum um óðalsrétt. Ef spurt væri um tómistunda- iðju Jóns Sigurðssonar, hygg ég, að ekki orki tvímælis, að rann- sóknir á ættfræði og sögu komi þar fyrst og fremst til greina. Þeim hefur liann fórnað miklum tíma og fyrirhöfn. En af þeim hefur hann einnig hið mesta yndi og skemmtun. Hann hefur t.d. átt mestan þátt í útgáfu jarða- og

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.