Stefnir - 01.03.1951, Page 29

Stefnir - 01.03.1951, Page 29
Herra borgarstjórinn Eftir A. ]. Cronin. SÍÐASTLIÐIÐ sumar, þegar ég ók milli aldingarðanna í Nor- mandí, kom ég allt í einu auga á gamla höll, um leið og ég kom fyrir horn á veginum. Það að sjá þessa reisulegu byggingu, sem stóð þarna í grænum garðinum milli bogaganga af linditrjám. kom mér til að nema staðar. „Hver á hér heima,“ spurði ég gamlan sveitamann, sem gekk framhjá. Bros kom á viðurbitið andlitið. „Ó, það er herra borgarstjór- * _ U ínn. „En þetta hlýtur að vera heim- ili einhvers aðalsmanns,“ sagði 4g undrandi. „Já, herra borgarstjórinn er markgreifi. Hann ber eitt tign- asta nafn í Frakklandi. En hann er einnig borgarstjóri í bænum okkar. Og sem slíkan, herra minn, þekkjum við hann.“ Það var eitthvað í raddblæ og látbragði mannsins, sem vakti forvitni mína og kom inn hjá mér þeirri hugmynd að hér hefði ég hnotið um sögu. Svo að í stað- inn fyrir að halda áfram til St. Malo, eins og ég hafði ætlað mér, beygði ég í áttina til aðliggj- andi bæjar og nam staðar við veitingahúsið. Ég fann til sterkr- ar löngunar til að hitta herra horgarstjórann. Veitingamaður- inn fullvissaði mig um, að það mundi ekki verða erfitt — það gæti hver sem væri náð tali af borgarstjóranum. Ég fylgdi leið- beiningum hans, fór yfir torgið og gekk inn í litla ráðhúsið með rauða þakinu. Hér fann ég manninn, sem ég leitaði að, sitjandi við slitið plankaborð, undir franska fán- anum, í litlu, tómlegu, hvít- þvegnu herbergi. Hann var mið- aldra maður, grannvaxinn og magur, með skarpa andlitsdrætti,

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.