Stefnir - 01.03.1951, Side 32

Stefnir - 01.03.1951, Side 32
30 STEFNIR aldaraðir, var í ólýsanlegri nið- urníðslu, og ég auðvitað fullkom- lega rúinn inn að skyrtunni. Mér kom í hug að strjúka eitthvað hurt frá þessu öllu saman. En þá varð ég þess var, gegnum mistur minnar eigin óhamingju, að ástandið hjá fólkinu í bæn- um var enn verra en hjá mér. Húsin höfðu hrunið til grunna. Fæðan var af skornum skammti. Peningarnir voru verðlausir, og margir vesalings sveitamenn, sem með ævilöngu striti höfðu eign- ast örlítið sparifé, voru nú full- komlega snauðir. Allt, sem við höfðum trúað á, virtist horfið. Fólkið vantaði ekki aðeins heim- ili, brauð og peninga, heldur líka hjörtu og trú. Það hafði glat- að trú sinni á Guð, á Frakkland og á sjálft sig. Svona hryllilegt var ástandið, þegar hinn nýi óvinur skreið inn. Já, herra minn, hér í þessum afskekkta landshluta, langt frá stórborgunum, var okkur ógnað af kommúnismanum. Vélamað- ur að nafni Martin,var foringi. Hann hafði orðið fyrir slæmum áföllum —- viðskiptin voru búin að vera og landskikinn, sem hann hafði keypt og ræktað, var orð- inn svo þéttvaxinn villirósum eft- ir stríðsárin, að hann hafði hvorki tæki né vilja til að hreinsa hann. Hann prédikaði nú byltingu, og áður en langt um leið var stór hópur af fólki kom- inn undir áhrifavald hans.“ Gestgjafi minn þagnaði og starði hugsandi út í nóttina. „Ég verð að játa fyrir þér, herra minn, að ætt mín hefur ávallt haldið sér frá þorpinu, og engan áhuga haft á því. nema þegar þurfti að útvega þaðan nýja þjóna. En allt í einu fann ég, síðasti ættliðurinn, til sterkr- ar ábyrgðartilfinningar. Ef til vill manstu eftir dæmisögunni um týndu talentuna. Þannig var það með mig, herra minn, mér fannst ég verða að fara út og leita hvíldarlaust, þar til ég fynndi hina glötuðu talentu ham- ingu og velmegunar eyðilagðs þorps. Það vildi svo til að bæjar- stjórastaðan losnaði. Enginn sótt- ist eftir henni. Hún var gamal- dags fyrirbæri, eftir því sem Martin sagði, hluti af hinu hrynj- andi skipulagi, sem hafði blekkt fólkið og tortímt því. Ég sótti um stöðuna og var kjörinn. Og nú, í stað þess að leita til þorpsbúa um að þjóna mér, byrjaði ég að þjóna þeim.‘ Aftur þagnaði hann hugsandi. „Ég skal ekki þreyta þig með því að rekja viðleitni mína í smá-

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.