Stefnir - 01.03.1951, Blaðsíða 33
HERRA BORGARSTJÓRINN
31
atriðum. Hérna í landareigninni
voru nokkrir akrar, sem ég skipti
milli þeirra, sem vildu yrkja þá.
Fyrir aðra kom ég á stað fisk-
veiðum í flóanum, og nú komu
netin mín í góðar þarfir.
Ég reyndi allt sem ég gat til
að skapa atvinnumöguleika. En
höfuðatriðið var að vera öllum
til aðstoðar, vera alltaf til taks,
til að gefa ráð og leysa úr á-
greiningi og til að bjóða alla þá
aðstoð, sem ég gat í té látið.
Þetta var allt annað en auðvelt.
Auðvitað treysti fólkið mér ekki.
Það grunaði að tilgangur minn
væri annar, og hæddi mig á bak.
En smátt og smátt fór fólkið að
fylgja mér. Martin og hans fylgi-
fiskar voru mér auðvitað and-
stæðir áfram. Þeir hötuðu mig.“
Hann sneri sér snögglega að mér.
«Láttu þér ekki detta í hug, herra
minn, að ég hafi gert þá heimsku
að hata þá líka. Ég skildi tilfinn-
ingar þeirra, og að vissu leyti
hafði ég samúð með þeim. í
skotgröfunum í gamla daga vor-
um við vanir að segja, að enginn
gæti barist með tóman maga.
Það væri miklu réttara að segja.
að hann vildi ekki berjast vegna
þess að maginn væri tómur.
Hann verður að hafa eitthvað.
Hér í þessu landi verður hann
að hafa heimili, landssj)ildu,
kjúklinga og kú, og framar öllu
öðru verður hann að hafa sæmi-
lega lífsafkomu til að hann verði
löghlíðinn og ánægður borgari.
Hamingjusamt fólk er aldrei
kommúnistar.“
Hann þagði góða stund, en hélt
síðan áfram:
„Dag nokkurn sumarið 1948
sáust svo fyrstu merki viðeisnar
Marshall-áætlunarinnar. Það var
traktor með plóg, herfi og öllum
útbúnaði. Þarna, sem hann stóð
á torginu, spánýr og glansandi
í sólskininu, varð hann miðdep-
ill eftirtektar fólksins.
Þegar svo komið var undir
kvöld og allir voru farnir, sá ég
mann nokkurn vera að virða fyr-
ir sér vélina, í fyrstu úr f jarlægð
en síðan kom hann nær og skoð-
aði hana nánar, athugaði stýris-
útbúnaðinn og strauk jafnvel
blíðlega sverar hjólgjarðirnar.
Mér til mikillar undrunar sá ég
að þetta var Martin. Ég gekk til
hans án þess að hann tæki eftir
mér og ávarpaði hann.
„Góða kvöldið, Martin. Þetta
er snotur vél.“
Hann hrökk við ruglaður, reið-
ur yfir því að hafa verið staðinn
að því að dáðst að framleiðslu
hins bölvaða kapítalisma.
,,Já,“ muldraði hann. „Þetta
er gott verkfæri. Það getur hver