Stefnir - 01.03.1951, Page 51
KARFI OG KARFAVEIÐAR
49
Þá var það enn að bandarískir
sérfræðingar, sem komu til lands-
ins seinnihluta vetrar til athug-
unar á fiskiðnaðinum hvöttu mjög
til þes(s, að hafin yrði karfa-
frysting.
Vegna togaraverkfallsins varð
lítið um frystingu karfans fyrr
en kom fram í nóvember að
loknu verkfallinu. Það er því ekki
hægt að segja að mikil reynsla
sé enn komin á þessa fram-
leið-lu. Fram til ársloka 1950
nam framleiðsla frystra karfa-
flaka um 1800 smál. og hefur það
allt verið flutt út. Er ekki annað
vitað en að sala þessarar fram-
leiðslu hafi gengið ágætlega og
er því ekki að neita að hin góða
byrjun hefur vakið vonir hjá
mönnum um að áframhald verði
þár á.
Með þessari framleiðslu hefur
hefur skapast nýtt viðhorf bæði
fyrir togarana og fiskvinnslu-
stöðvarnar í landi þ. e. aðallega
frystihúsin og fiekmjölsverksmiðj-
urnar.
Eitt af því ,sem mjög hefur
iþyngt rekstri frystihúsanna er
hversu stuttur vinnslutíminn hef-
ur verið á ári hverju. Allur þorri
frystihúsanna hefur ekki verið við
vinnslu nema 4—5 mánuði á ári
hverju eða m.ö.o. yfir vertíðina.
Hefur þetta valdið óeðlilega
miklum kostnaði við framleiðsl-
una. Með karfafrystingunni skap-
ast möguleikar til þegs að láta
frystihúsin vinna meginhluta árs-
ins. Hefur þetta ekki bara þýð-
ingu fyrir afkomu frystihúsasnna
sjálfra heldur og fyrir fólkið og
veiðistöðvarnar, sem bggir af-
komu sína að mestu á fiskvinnslu-
stöðvunum.
Fyrir styrjöldina áttu togar-
arnir yfirleitt um tvo koeti að
að velja, annaðhvort ísfiskveið-
ar, sem voru þó aðeins möguleg-
ar takmarkaðan tíma á ári hverju,
og saltfiskveiðar.
Auk þess stunduðu allmargir
togarar síldveiðar. Ástandið að
því er ísfiskveiðarnar snertir
hefur í seinni tíð færst meir og
meir í svipað horf og var fyrir
styrjöldina.
Markaðirnir hafa þrengst og
orðið ótryggari og aðeins mögu-
legt að sigla með ísfisk nokkurn
hluta ársins. Saltfiskveiðar eru
að vísu hægt að stunda á vetrar-
vertíðinni en tregur afli af þeim
fisktegundum, sem hentugar eru
til söltunar, á sumrin og haustin,
gerir þær veiðar lítið eftirsóttar.
Síldveiðar mega heita útilokaðar
ef svo heldur áfram, sem verið
hefur undanfarin ár. Karfinn
veiðist hinsvegar á þeim tíma þ.
e. sumar og hauist, þegar aðrar