Stefnir - 01.03.1951, Side 55

Stefnir - 01.03.1951, Side 55
KYNNI ÁSTRALlUM. OG NÝ-SJÁL. AF SÓSÍALISMANUM 53 SYDNEY G. HOEEAND forsætisráðherra Nýja-Sjálands. BOBERT G. MENZIES forsætisráðherra Ástralíu. ar og tæki í Bandaríkjunum, þá neitaði ríkisstjórnin þeim um yf- irfærslu á dollurum, en TAA voru samtímis heimiluð slík kaup. Þrátt fyrir allt þetta hefur einkafyrirtækið ANA getað hald- ið uppi flugþjónustu sinni og haldið áfram að bera arð, en ríkisfyrirtækið TAA hefur verið rekið með tapi á hverju ári, þótt það greiði enga skatta og jafnvel enga vexti af þeim milljónum, sem í það hefur verið ausið úr vösum skattgreiðenda. Nú þegar við völdum er tekin ríkisstjórn, sem er andvíg þjóð- nýtingu, þá mun hún láta TAA starfa áfram í frjálsri samkeppni á jafnréttisgrundvelli, og verður það þá annað tveggja að halda velli í þeirri samkeppni, eða hætta störfum ella. Eftir styrjöldina ákvað ástr- alska Verkamannastjórnin að þjóðnýta strandferðirnar og keypti heilan flota af strandferða- skipum, þótt einstökum félögum hefði verið neitað um slík kaup. Stjórnin lagði jafnframt allskon- ar hömlur á starfsemi einstakra skipafélaga. Árangurinn varð sá, að þótt stjórnin hækkaði farm-

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.