Stefnir - 01.03.1951, Qupperneq 59
KYNNI ÁSTRALÍUM. OG NÝ-SJÁL. AF SÓSÍALISMANUM
57
Árás ástralskra sósíalista á
efnahagslegt frelsi þjóðarinnar
leiddi óhj ákvæmilega til tak-
markana á hinu pólitíska frelsi.
Þar sem andstöðuflokkar sósíal-
ista höfðu engin stéttarsamtök,
sem þeir gátu beitt fyrir sig í
kosningarbaráttunni, þá hugðust
þeir nota sér mikið af áróðurs-
spjölduin og auglýsingum.
Verkamannastjórnin kom í veg
fyrir þetta með því að setja lög,
sem bönnuðu pólitísk merki eða
auglýsingar, sem væru stærri en
60 þumlungar. Þegar andstöðu-
flokkar Verkamannaflokksins
tóku að útvarpa leikþáttum, sem
skýrðu frá ýmsum mistökum
Verkamannastjórnarinnar, þá
lagði hún einnig bann við því.
að fluttir væru leikþættir, sem
skýrðu frá nokkru pólitísku mál-
efni næstu fimm ára á undan. t
Nýja Suðu Wales var blöðum og
útvarpi bannað, næstu 72 klukku-
stundirnar áður en kosningarnar
hófust, að ræða þær í ritstjórnar-
greinum eða fréttum, eða með
auglýsingum, eða á nokkurn ann-
an hátt að reyna að hafa áhrif á
úrslitin.
Á Nýja Sjálandi hafði efna-
legt frelsi nær lotið í lægra haldi
fyrir efnahagslegu einræði. Með
innflutningsleyfum réði stjórnin
því að mestu, hve mikið hver ein-
stakur kaupmaður seldi af hverri
vörutegund. Hún ákvað útsölu-
verðið og skammtaði þannig
hagnaðinn og framfylgdi því með
hersveit af „njósnurum.“ Ef ung-
ur maður, sem átti eitthvað af
peningum var framtakssamur og
vildi taka upp sjálfstæðan at-
vinnurekstur, segjum t. d. benz-
ínsölu, þá varð hann að sækja
um leyfi til stjórnarskrifstofu.
Stjórnin auglýsti síðan umsókn-
ina, til þess að væntanlegir keppi-
nautar gætu komið fram með
sínar mótbárur, og það var miklu
oftar, að þær mótbárur voru
teknar til greina og unga mann-
inum neitað um leyfið.
Þar sem sósíalistar óttuðust
það, að ef menn ættu sjálfir hús
til að búa í, þá myndi það leiða
til aukinnar einstaklingshyggju,
þá synjuðu þeir íbúum húsa
þeirra, er ríkið lét byggja, um
að fá íbúðirnar kevptar. Stjórn-
in skammtaði það, hve miklu
einstaklingar mættu kosta til þess
að byggja yfir sig, og hún
skammtaði hændum verð fyrir
jarðir þær, er þeir vildu selja.
Þeir andstæðingar sósíalista,
sem unnu kosningar síðastliðið ár
nutu einkum stuðnings kvenþjóð-
arinnar og æskunnar. Kvenfólkið
kastaði sér af miklum áhuga út
í kosningarbaráttu, í skipulögð-