Stefnir - 01.03.1951, Side 73

Stefnir - 01.03.1951, Side 73
HRAUÐBITI OG I.ÍKKISTA 71 Vesalings gamla konan hafði varla tíma afgangs til að hafa yfir bænirnar sínar, og stundum var hún svo þreytt á kvöldin, að hún sofnaði útaf á meðan hún var að hafa þær yfir. í fyrsta skipti, sem yfirvöldin veittu henni athygli, skeði það á einkennilegan hátt. Katrín og Cosimo sátu á dyráþrepinu og voru að borða súpuna, sem þau höfðu til kvöldverðar, með súpuskálarnar á hnjánum, þegar hermaður birtist. „Þú ert ákærð fyrir alvarlegt athæfi,“ sagði hann án nokkurs formála. „Þegar þú fórst í gegnum skóginn í kvöld hitturðu ókunnugan mann.“ Katrín leit á hermanninn, en hallaði sér síðan að bróður sínum og hvíslaði: „Er þessi maður að tala við mig?“ spurði hún. „Hvað vill hann?“ „Já, það er við þig, sem ég er að tala,“ sagði hermaðurinn. „Mað- ur, útlendingur, talaði við þig, þegar þú varst að koma niður fjalls- hlíðina í kvöld.“

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.