Stefnir - 01.03.1951, Page 76

Stefnir - 01.03.1951, Page 76
74 STEFNIR „Ástandið hefur breytzt í borginni,“ útskýrði bermaðurinn. „Við lesum ekki blöðin,“ svaraði Katrín varfærnislega. „Við erum fátæk og getum ekki skipt okkur af annarra málum.“ „Ástandið hefur breytzt,“ hélt hermaðurinn áfram. „Þeir, sem áður voru óvinir okkar, eru nú bandamenn okkar, og þeir, sem voru bandamenn okkar, eru óvinir okkar núna, svo að það, sem fyrir nokkrum mánuðum virtist vera glæpur af þér —“. „Fyrirgefðu,“ greip Katrín fram í, „en heldurðu virkilega, að þessi vesæli brauðmoli sé enn þess virði, að um hann sé talað. Ég get full- vissað þig um, að þetta var aðeins venjulegur brauðbiti, biti af svörtu brauði einls og við sveitafólkið borðum venjulega; og það var svelt- andi maður, sem borðaði það. Því ertu að koma svona hvað eftii' annað og ónáða mig út af svona smáræði?“ „Þvert á móti. Ég bið þig afsökunar,“ reyndi hermaðurinn að út- skýra. Þú verðskuldar heiðurslaun, heiðursmerki, medalíu. Ég ráð- legg þér að senda beiðni um það til æðri stjórnarvalda. Ég endur- tek, að ástandið hefur breytzt síðan, og munurinn milli góðs og ills hefur einnig breytzt. „Sonur minn,“ sagði Katrín í meðaumkunar tón, „beldur þú í raun og veru að gott og illt geti breytzt?“ En bróðir hennar tók málið á annan hátt og spurði hermanninn: „Gott og vel, þú segir okkur að hlutirnir séu breyttir núna, en hvað ef þeir breytast aftur? Ég meina, ertu viss um, að þessar breytingar séu þær síðustu?“ Hermaðurinn reyndi að dylja vandræði sín, með því að sýnast reiður. „Þú verður að ákveða þig,“ hrópaði hann að Katrínu. „Viltu medalíu eða viltu hana ekki? Vesalings konan reyndi að róa hann. „Ég hef þegar fengið heiðursmerki ,“ sagði hún. „Ég fékk fagnaðar- hátíðarmerkið. Þegar ég var stelpa, fór ég pílagrímsför til Róm, a því heilaga ári 1900. Er ekki eitt heiðursmerki nóg fyrir mig? Ég myndi sýna þér merkið ef ég hefði ekki lánað syni mínum það, þeg- ar hann fór í stríðið." — Svo kom sumarið 1945, oghermennirnirbyrjuðu að koma aftur heim til fjölskyldna sinna. Af þessu varð sveitafólkinu ljóst, að styrjöldin var búin. Til að vera viss um að vera heima, þegar sonurinn kæmi, fór Katrín nú að vanrækja matjurtagarðinn og grjótflutninginn. En

x

Stefnir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.