Stefnir - 01.03.1951, Qupperneq 86
84
STEFNIR
vaxi. Prófessor Bode, sem talinn
var mesti þálifandi sérfræðing-
ur í Renaissancelist, spurði Vil-
hjálm keisara um hans álit. Vil-
hjálmur svaraði með sínum keis-
aralega óskeikulleik, að hann
væri alveg á sama máli og pró-
fessorinn; styttan væri tvímæla-
laust gerð af Leonardo Da Vinci
og safnið gerði rétt í því að
greiða þau 125,000 mörk, sem
krafizt var fyrir hana.
Það var Englendingur, sem
varð til þess að rengja dóm keis-
arans. Fornleifafræðingurinn
Charles Cooksey fullyrti, að
„Flora-tstyttan“ eins og hún var
kölluð, væri verk óþekkts viktorí-
ansks listamanns, að nafni Ric-
hard Cocklee Lucas.
Þegar styttan var opnuð fund-
ust leifar af vesti Lucasar og
viktoríönsku teppi, og af þessu
mátti ráða, að jafnvel þýzka keis-
aranum gat skjátlazt einstaka
sinnum.
SUMIR þessara falsara eru mjög
gætnir og láta sér nægja eina
eftirlíkingu á ævinni. En aðrir,
sem láta blindast af velgengn-
inni við fyrstu tilraunina, halda
fölsununum áfram, þar til þeir
eru orðnir svo öruggir um sig,
að þeir leggja alla aðgætni á
hilluna. Þannig var það með
'þýzka múrarann Michael Kauf-
mann. Hann hafði 177 rómverska
ofna á samvizkunni áður en hann
gerði fyrsta og síðasta glappa-
skot sitt. Þar sem öll söfn í Ev-
rópu höfðu keypt ofna hans og
„rómverska“ steinvöru, fannst
honum að hann ætti að breyta
lítið eitt til með hinar „ósviknu“
fornminjar, með því að „finna“
skurðmynd af Antóníusi keisara.
En jafnvel hinir auðtrúa við-
skiptavinir og listfræðingar neit-
uðu að trúa því, að rómverskur
keisari hefði haft keisaralegt
skjaldarmerki og borið hárkollu
frá tímum Lúðvíks XV. Svik
Kaufmanns voru afhjúpuð, en
hann dó án þess að hljóta hegn-
ingu.
FALSARARNIR eru ekki alltaf
fátækir og óþekktir. Það kemur
fyrir, að þeir eru vel metnir og
vel stæðir menn og konur, sem
nota sér þennan möguleika til
að verða enn ríkari. Þannig var
með F. C. Millet, sem var barna-
barn frægs meistara. Hann hafði
erft innsiglið, sem afi hans hafði
notað á allar myndir sínar, 400
talsins. í félagi með listamann-
inum Caseaux og með hjólp inn-
siglisins byrjaði hann nú að
framleiða Millet-málverk.
Á sex árum seldu þeir saman