Stefnir - 01.03.1951, Qupperneq 89
gera áriS 1901?
BEVIN.
Ernest Bevin var þá
tvítugur og ók flutn-
ingavagni fyrir fyrir-
tæki i Bristol, sem
seldi heilsubrunnavatn,
og hafði 22 shillinga í
laun á viku. Hann gerð-
ist prédikari, en setti
alvarlega pólitískan blæ
á trúarsamkomur sínar.
Um sama leyti sótti
hann fundi Verkamanna-
flokksins í fyrsta sinn
og tók nú að stunda
stjórnmálastarfsemi og
skipulagningu verkalýðs-
félaga, og náðu þessi
áhugamál sífellt sterk-
ari tökum á honum, þar
til þau urðu ríkjandi afl
í lífi hans.
„Með heilbrigðu skipu-
lagi, fullkomnum skiln-
ingi eg með því að sam-
eina auðlindir vorar eins
og auðið er, trúi ég þv£,
að vér getum komið í
veg fyrir þriðju heims-
styrjöldina . .
6. september 1950.
NEHRU.
Jawaharlal Nehru var
þá 12 ára að aldri, bjó
í höll föður síns, Motilal
Nehru, í Allahabad, og
las enskar bókmenntir
hjá enskum kennara til
þess að búa sig undir
inngöngu í Harvard há-
skóla. Hann stundaði
guðspeki, en varpaði
henni skjótt fyrir borð.
„Það er ekki auðið að
tryggja einu landi frið,
nema friður ríki hvar-
vetna. í þessum þrönga
og mótsetningafulla
heimi eru stríð, friður
og frelsi hvert öðru háð.
I*ess vegna er ekki nög
fyrir neitt eitt ríki að
tryggja frið innan sinna
eigin landamæra heldur
er einnig nauðsynlegt
fyrir það að leggja sig
til hins ítrasta fram um
að aðstoða við verndun
friðar um allan heim.“
Október 1949.
pius pAfi xn.
Eugenio Pacelli var þá
25 ára gamall, prestur
við „söfnuð hinna sér-
stöku kirkjulegu mál-
efna,“ og var sendur til
London með persónu-
legt samúðarbréf frá Leo
páfa þrettánda til Ját-
varðar sjöunda, vegna
dauða Victoriu drottn-
ingar.
„Kirkjan liefur ekki
aðeins bent á misbeit-
ingu kapitalismans og
eignarétt þann, sem það
hagkerfi eflir og vernd-
ar, en hefur einnig
kennt, að fjármagni og
eignum verði að beita
sem framleiðslutæki í
þágu þjóðarheildarinnar
og stuðla að verndun
frelsis og virðingar
mannsins.“
September 1950.