Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 14

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 14
Landsfundur 1981 Málefnin ofar mönnum Rœtt við Friðrik Sophusson varaformann Sjálfstœðisflokksins Friðrik Sophusson var kjörinn vara- formaður Sjálfstæðisflokksins á lands- fundinum í október 1981 með 549 atkvæðum, en mótframbjóðandi hans, Ragnhildur Helgadóttir, hlaut 381 atkvæði. Friðrik Sophusson er fæddur í Reykjavík 1943 og er því 38 ára að aldri. Hann varð stúdent frá M.R. 1963 og lauk laganámi 1972. Hann var framkvæmda- stjóri Stjórnunarfélags íslands 1972-1978 og var kosinn á þing 1978. Friðrik átti sæti í miðstjórn Sjálfstæóisflokksins 1969-1977 og var formaður SUS 1973- 1977. I tilefni af kjöri Friðriks í vara- formannsembættið átti Stefnir viðtal við hann, þarsem hann varm.a. spurðurum viðhorf hans til Sjálfstæðisflokksins, þingflokksins og ríkisstjórnarinnar. Fer viðtalið hér á eftir. Hver voru tildrög þess að þú gafst kost á þér til varaformennsku í Sjálfstæðis- flokknum? Þetta er ekki eitthvað sem hefur blundað lengi í mér. Ég velti þessu í raun ekki fyrir mér fyrr en í haust. Þarna átti að kjósa í stöðu sem enginn var í og því eðlilegt að líta á hana sem tæki til að yngja upp forystuna. Ég ákvað því í sam- ráði við ýmsa forystumenn yngri manna að gefa kost á mér. Annars vegar vegna þess að knýjandi þörf var á brevtingu í forystunni og hinsvegar vegna þeirrar sannfæringar að flokkurinn yrði að sam- einast á ný. Allar götur frá því ég hóf störf í Sjálf- stæðisflokknum hef ég haft góð sam- skipti við menn, sem nú eru taldir til- heyra mismunandi ,,örmum” innan flokksins. I þeirri erfiðu stöðusem flokk- urinn er nú í, — annar hluti þingflokksins í stjórn og hinn í stjórnarandstöðu, skiptir máli að í þessu sæti sé maður, sem báðir aðilar geta sætt sig við. Þú talar um nauðsyn endurnýjunar í flokksforystunni - hvers vegna steigst þú ekki skrefið til fulls og gafst kost á þér í formannsembættið? Geir Hallgrímsson tók fyrir löngu ákvörðun um að halda áfram, en Gunnar Thoroddsen lýsti því yfir að hann ætlaði að hætta. Það kom ekki til greina af minni hálfu að fara í slag við formann flokksins. Hefði Geir Hallgrímsson ekki gefið kost á sér hefði ég kosið að styðja annan í það embætti, enekki fariðífram- boð sjálfur. Hver voru viðbrögð þingmanna flokksins við þessu framboði þínu? Þegar ég tilkynnti þingflokknum framboð mitt tók ég það skýrt fram að ég teldi sjálfsagt og eðlilegt að fleiri þing- menn gæfu kost á sér, enda var mínu framboði ekki ætlað að víkja öðrum framboðum til hliðar. Engar umræður urðu um þetta að öðru leyti en því að Sverrir Hermannsson lýsti því yfir að hann gæfi ekki kost á sér! Innan þingflokksins höfðu verið uppi raddir um að þingmenn sameinuðust allir um að styðja einn úr sínum röðum til framboðsins. Ég var alltaf þeirrar skoðunar að ekki kæmi til greina að þing- flokkurinn gerði með sér samkomulag um frambjóðanda í varaformannsstöð- una. Ég taldi stöðu þingflokksins það veika að landsfundurinn myndi hrein- lega ekki taka mark á slíku framboði og þess vegna nauðsynlegt að fundurinn sjálfur fengi að ráða þessu án tilnefning- ar þingflokks. Hvert er hlutverk varaformanns Sjálf- stæðisflokksíns? Varaformaðurinn er staðgengill for- mannsins en hefur jafnframt sjálfstæðu hlutverki að gegna sem snýr aðallega inn á við - að flokksstarfinu. Varaformaður- inn á að vinna með fastanefndum, fram- kvæmdastjórn og forystumönnum í félagsstarfi að uppbyggingu tlokksins og treysta innviðina. Þetta er reyndar sama viðhorf og kom fram hjá Geir Hallgríms- syni þegar hann var spuröur að þessu 1971 er hann varð varaformaður. Síðar var varaformannsembættið notað til að koma á ákveðnu valdajafnvægi í flokkn- um. Mín skoðun er sú, að staða varafor- manns sé við hlið formanns. Þannig breikkar forystan um leið og hún verður samhent og sterk. Stundum hefur heyrst rætt um breytt fyrirkomulag flokksskrifstofunnar og aö henni yröi deildaskipt. Hvað segir þú um slíkar hugmyndir og hvernig verður hús flokksins best nýtt í þágu flokksins? Skipulag skrifstofunnar hefur verið að breytast og í raun er hún deildaskipt. Mér finnst þó að gera megi hana líflegri og meira aðlaðandi fyrir óbreytta flokks- menn þannig að þeir gerðu sér far um að líta þar við. Því þarf að opna möguleika á því að sjálfstæðismenn geti hist í Valhöll og fengið sér kaffibolla. Valhöll á að vera samkomustaður sjálfstæðismanna - hús flokksmanna. Nú þegar hafa t.d opnast fjölbreyttari möguleikar til nýtingar á kjallaranum með nýjum húsbúnaði. En hvað um útbreiðslu og fræðslu- starfsemina. Hefur flokkurinn staðnað í þeim efnum? Á árum áður gat Sjálfstæðisflokkurinn treyst því að ritstjórar Morgunblaðsins og Vísis sæju um áróðurshliðina. Þetta hefur gjörbreyst með sjónvarpi og „frjálsum og óháðum” síðdegisblöðum. Fréttahlið blaða hefur einnig breyst. Nú verður Sjálfstæðisflokkurinn sjálfur að hafa starfandi menn sem á hverjum tíma Ieitast við að finna bestu leiðir til að koma á framfæri sígildum sjónarmiðum sjálfstæðisstefnunnar ef árangur á að nást. Við getum í þessu sambandi lært mikið af þeim mistökum sem við höfum gert á síðustu árum og það er til dæmis ljóst að nú verða þingmenn og frambjóðendur í auknum mæli að fara til fólksins í stað þess að bíða þess að það flykkist til þeirra. Einn ánægjulegasti þáttur í starfi flokksins eru stjórnmálaskóli og verka- lýðsskólinn, en þeir hafa verið til veru- legs gagns og mikillar ánægju. Að því starfi ber að hlynna. Þá má ekki heldur gleyma því að á undanförnum árum hefur mikill fjörkippur færst í útgáfumál sjálfstæðismanna. Vel skrifuð og að- gengileg rit um hugsjónir Sjálfstæðis- flokksins eru afar mikilvæg einkum fyrir ungt fólk, sem áhuga hefur á stjórnmál- um og vill kynnast frjálslyndum viðhorf- um. Hvernig hefur þér líkað vistin í þing- flokknum? Persónulega líkar mér vistin þar vel og hef átt ánægjulegt samstarf við alla þing- menn flokksins. Hinsvegar virðist mér augljóst að ágreiningurinn innan flokksins eigi að verulegu leyti rætur í þingflokknum. Ég verð var við að hinn almenni flokks- maður lítur ekki á sig í stjórn eða stjórn- arandstöðu en það er aftur á móti eðli og hlutverk þingflokka að vera annað hvort í stjórn eða stjórnarandstöðu. Af þeim sökum verður ágreiningurinn áþreifanlegastur í þingflokknum og veldur það okkur að sjálfsögðu erfið- leikum í starfi. Það hefði mátt vera jafnari endurnýj- un í þingflokknum og það er umhugsun- arefni að við næstu þingkosningar verður yngsti þingmaður flokksins fertugur og sá næst yngsti fjörutíu og fimm ára. Helmingur kjósenda er aftur á móti
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.