Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 18

Stefnir - 01.12.1981, Blaðsíða 18
Stjórnmálayfirlýsing rekstri þarf að auðvelda samvinnu og samstarf stjómenda og starfsmanna í því skyni að auka ábyrgð allra þeirra, er í atvinnulífinu starfa. Greiða þarf götu hagræðingar og starfshvatningar og mæta nýjum kröfum tækni og tölvuvæð- ingar. Öryggi um atvinnu sé ennfremur treyst og starfsgleði örvuð með aukinni verkmenntun og endurþjálfun, sveigjan- legum vinnutíma og bættum aðbúnaði á vinnustað. Stuðlað sé að því að heilbrigðar lífs- venjur fái að þróast og að fjölskyldulíf eflist á grundvelli kristinnar lífsskoðunar. Aílir njóti öryggis ef heilsubrestur sæki að og þegar aldur færist yfir og hafi sama rétt til orlofs og verðtryggðs lífeyris. Takist á grundvelli framangreindrar stefnu í atvinnu- og kjaramálum að auka framleiðslu og örva nýja starfsemi, geta kjör að nýju farið batnandi. Um leið verður unnt að treysta atvinnu, efla menningu og bæta umhverfi. Jafnframt geta frelsi og lýðræði dafnað og eining þjóðarinnar styrkst á grundvelli dýr- mætrar arfleifðar hennar. Sjálfstæðisflokkurinn hefur ávallt verið þeirrar skoðunar að öryggi landsins verði að tryggja miðað við aðstæður hverju sinni. A alþjóðavettvangi ekki síður en innanlands takast þeir á, nú sem fyrr, sem eru fylgjandi frelsi einstaklings- ins, og þeir sem vilja hefta þetta frelsi. Atburðirnir í Póllandi sýna vilja fólks til að brjótast undan oki sósíalismans, en innrásin í Afganistan staðfestir enn á ný að Sovétmenn hika ekki við að beita valdi sínu, þegar svo býður við að horfa. Aróðursherferð Sovétmanna í Evrópu um þessar mundir, ekki síst á Norður- löndum, vekur ugg og gefur sérstakt til- efni til þess að vara við undanlátssemi. Það er því miður staðreynd að hern- aðarlegt mikilvægi íslands hefur aukist. Útþensla sovéska flotans heldur áfram og umsvif hans og sovéskra herflugvéla í nágrenni íslands fara vaxandi. Það er augljóst, að enn sem fyrr verður öryggi þjóðarinnar ekki tryggt með öðru en áframhaldandi þátttöku í því friðarkerfi, sem Jslendingar hafa átt þátt í að móta á Norður-Atlantshafi. Yfirgnæfandi hluti þjóðarinnar kýs eins og áður virka þátt- töku í varnarsamstarfi lýðræðisþjóðanna og vill gera þær ráðstafanir til varnar, sem nauðsynlegar eru til þess að íslend- ingar fái að lifa í friði í landinu. Sjálf- stæðisflokkurinn mun vinna að því að sem víðtækust eining náist um varnir landsins, en telur ekki að við núverandi aðstæður komi til greina að draga úr þeirri öryggisgæslu, sem fram fer í landinu og umhverfis það. Framundan eru viðsjárverðir tímar á alþjóðavettvangi og miklir erfiðleikar í atvinnumálum landsmanna. Sjálfstæðis- flokkurinn, einn stjórnmálaflokka, getur veitt þjóðinni þá forustu, sem hún þarfnast. Brýna nauðsyn ber því til að sjálfstæðismenn sameinist í einarðri baráttu fyrir öryggi landsins, frelsi og rétti einstaklingsins og frjálsu og heil- brigðu atvinnulífi, er sé grunnur velferð- ar hvers og eins og samhjálpar allra á komandi árum. Sjálfstæðismenn vilja gera þessa stefnu sína að þjóðarstefnu mannréttinda, frelsis og lýðræðis. II. Afstaðan til ríkis- stjórnarinnar Landsfundur Sjálfstæðisflokksins telur, að stefna og störf núverandi ríkis- stjómar séu í ósamræmi við sjónarmið Sjálfstæðisflokksins og efli áhrif þeirra, sem andvígastir eru þeim sjónarmiðum. Þetta hefur leitt til þess, að æ meir hefur þrengt að atvinnuvegum landsins og að atvinnurekstur einstaklinga og félaga þeirra á hvarvetna í vök að verjast. Jafn- framt hefur verið látið undir höfuð leggjast að marka og framfylgja stefnu í orku- og iðnaðarmálum, sem orðið gæti grundvöllur að atvinnu og framförum á komandi árum. Ekkert það hefur verið aðhafst gegn verðbólgunni, sem áhrif t hefur nema skamma hríð, enda fer hún nú vaxandi á ný. Verðlagshöft hafa grafið undan f járhag fyrirtækja og stofn- ana, rýrt sjálfstæði þeirra og í reynd haft öfug áhrif við tilganginn. Stefnt hefur verið áratugi aftur í tímann með fjöl- gengi og millifærslum milli atvinnu- greina. Fláum sköttum hefur verið við haldið, erlendar lántökur hafa farið sí- vaxandi og meðal annars komið í stað innlendrar skuldasöfnunar ríkissjóðs og ríkisstofnana. Dregið hefur verið úr að- stöðu einstaklinga til að eignast eigið húsnæði og umráð þeirra yfir eignum sínum takmörkuð. Umsvif ríkisins og af- skipti hafa enn verið aukin. Tvíbent af- staða ríkisstjómarinnar í varnarmálum og frestun mikilvægra framkvæmda á þeim vettvangi stefnir öryggi landsins i hættu. , Fundurinn lýsir því yfir eindreginni andstöðu við ríkisstjórnina. Stefna stjórnarinnar og framkvæmd hennar er bersýnilega ekki í samræmi við grund- vallarhugsjónir ráðherra úr röðum sjálf- stæðismanna. Fundurinn skorar á þessa ráðherra að ganga úr ríkisstjórninni og þá þingmenn flokksins, sem stutt hafa hana, að láta af þeim stuðningi. Sjálf- stæðisflokkurinn getur þá einhuga og sameinaður staðið að nýrri stjórnar- myndun á grundvelli stefnu sinnar. 18
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76

x

Stefnir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.