Stefnir - 01.12.1981, Side 55

Stefnir - 01.12.1981, Side 55
Bókmenntir Ólafur Thors, Ásgeir Ásgeirsson ogséra BjarniJónsson. Myndin vartekin þegar alþingi komsaman haustið 1952 - en þá umsumarið var Ásgeir kjörinn forseti ísögulegum kosningum milli hans ogséra Bjarna. OLAFUR THORS MATTHÍAS JOHANNESSEN Matthías Johannessen: / Olafur Thors, ævi og störf Almenna Bókafélagið 1981 efni þessa næstum eitt þúsund blaðsíðna rits. Olafur Thors var formaður og for- ystumaður Sjálfstæðisflokksins í u.þ.b. 30 ár. Hann var margoft forsætisráð- herra og gegndi einnig öðrum ráðherra- embættum. Endurminningin um hann er vafalaust skýr í hugum allra miðaldra sjálfstæðismanna og annarra þaðan af eldri, en hratt flýgur stund og bert að hafa í huga að til starfa í Sjálfstæðis- flokknum eru komnir ýmsir sem ekki voru einu sinni fæddir þegar Ólafur Thors féll frá, en það var á gamlársdag árið 1964. Rit Matthíasar Johannessen geymir margar forvitnilegar stjómmálalegar og sagnfræðilegar uppljóstranir. En fyrst og síðast er þetta sagan um stjórnmálaleið- togann og stjórnmálaskörunginn Ólaf Thors. Sá sem þessar línur ritar var ungl- ingur þegar Ólafur Thors féll frá og þekkti hann því að sjálfsögðu ekki nema af afspurn. Sú mynd sem maður hefur skapað sér af Ólafi er að þar hafi farið vígfimur stjómmálamaður, maður sem með lagni, húmor og persónutöfrum hafi haldið saman stærsta stjórnmála- flokki landsins, en maður sem ekki hafi tekið hugmyndafræðilega hlið stjórn- málanna allt of alvarlega. Eftir lestur bókarinnar verður mér ljósara en áður hvílíkur alvömþungi bjó að baki hinu gázkafulla fasi, hvílíkt baráttuþrek og baráttugleði einkenndu þennan stjórn- málaforingja og hversu djúpt hugmynda- fræði hans o^ stjórnmálaskoðanir ristu. Afskipti Ólafs Thors af þjóðmálum og stjómmálum spönnuðu næstum hálfrar aldar tímabil svo saga hans er að ýmsu leyti um leið þjóðarsaga þessa tímabils. Skal nú vikið að nokkrum atriðum sem fjallað er um í ritinu. ítarlega er lýst skipulögðum ofsóknum vinstri manna á hendur athafnamönnum á fjórða ára- tugnum og þá ekki sízt aðförinni að Kveldúlfi, fyrirtæki Ólafs Thors og bræðra hans, sem faðir þeirra hafði stofnað. Eftirminnileg er í því sambandi frásögnin af fundinum fræga íMiðbæjar- skólaportinu á árinu 1936, en þá telja margir að Ólafur Thors hafi unnið sinn stærsta sigur er hann fór einn síns liðs á fjölmennan útifund stjómmálaandstæð- inga og snerist til varnar fyrir Kveldúlf. Lýst er þeim ágreiningi sem varð í Sjálf- stæðisflokknum um afstöðu til myndun- ar þjóðstjórnarinnar árið 1939, en þá hafði Ólafur eins atkvæðis meirihluta í þingflokknum. Þá hrikti í Sjálfstæðis- flokknum. Síðar er lýst andstöðunni innan flokksins við þátttöku Sjálfstæðisflokks- ins í Nýsköpunarstjórninni. En þá sem endranær sýndi Ólafur að hann var foringi. Má raunar minna á orð höfundar ritsins sem segir á einum stað, að von- andi megi einhvern lærdóm draga af lífi og starfi þess manns, sem hafi haft forystu í stærsta og öflugasta stjórnmála- flokki lanasins um þriggja áratuga skeið. ,,Mér er engin launung á því, að rit þetta er í aðra röndina hugsað sem áminning til þeirra, sem við taka - allra þeirra sem . 55

x

Stefnir

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Stefnir
https://timarit.is/publication/1516

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.