Stefnir - 01.12.1981, Síða 64
Bókarkafli Stefnis
Schutz, borgarstjóri Vestur-Berlínar mælti með því í grein,
sem hann skrifaði í vikuritið Zeit, 27. júní 1969, að komið yrði
á eðlilegum tengslum milli Þýskalands og Póllands og jafn-
framt, að núverandi landamæri yrðu viðurkennd, gerði
Pravda lítið úr þeim ummælum, og sagði: ,,Með grein þessari
reynir Schútz í rauninni að fá landamæri Póllands endurskoð-
uð.”6)
Lítið gert úr afrekum annarra
Upplýsingar í dagblöðunum rannsóknir, vísindi, tækni og
jafnvel íþróttir eru einnig einhliða. Til dæmis birtust í Pravda
nær eingöngu fréttir um afrek sovétmanna á Evrópumeistara-
mótinu í Aþenu í september 1969. Þannig skýrði blaðið frá
því, að sovésk íþróttakona fékk bronsverðlaun í spjótkasti
kvenna. Ekki var á það minnst hver fékk gull og silfurverð-
launin. Blaðið minntist ekki heldur á hver sigraði í 5000 m
Frá réttarhöldunum yfir rithöfundunum Sinjavskíog Daníel. Peim vargefið að
sök að hafa birt svívirðingar um Ráðstjórnarríkin erlendis og voru
dœmdir í margra ára þrœlkunarvinnu.
hlaupi karla, en það var Englendingur. Hins vegar upplýsti
það, að sovéskur hlaupari hefði verið annar í mark. Athuga-
semdir Pravda í lok mótsins voru þær, að mótið hefði ,,ein-
kennst af miklum sigrum sovéskra íþróttamanna”, sem hefðu
unnið 9 gullverðlaun. Þess var ekki getið hverjir hefðu unnið
til hinna verðlaunanna, ekki einu sinni, að bandalagsþjóðin
Austur-Þýskaland hafði hlotið 11 gullverðlaun.7) Mánaðar-
ritið um efnahagsmál, Ekonomitschskaja Gaseta, birti í hefti
nr. 28, 1970, tímatöflu yfir sigurinn á himingeimnum. Allar
mikilvægustu geimtilraunir Sovétríkjanna, allt frá fyrsta
Spútniknum í október 1957, voru nefndar. Hins vegar voru
tilraunir Bandaríkjanna ekki nefndar einu orði, ekki einu
sinni tunglferðir þeirra. í Sovétríkjunum er 12. apríl dagur
geimfaranna. Dagblöðin lofa starf geimfaranna bæði í bundnu
og óbundnu máli, og svo var einnigl2. apríl 1970. Svo vildi til,
að daginn áður hófst ferð Apollo 13. til tunglsins. Pravda birti
á degi geimfaranna 21 línu um atburðinn, neðst á bls. 5.
Öðrum blöðum þótti ekki taka því að minnast á hann.
Frásagnir um fyrstu lendingu manna á tunglinu með Apollo
11. eru einkennandi fyrir sovéskan fréttaflutning. Sjónvarpið
sagði frá atburðinum í almennum fréttatíma, fjórum klukku-
stundum eftir að tunglferðin hófst. Fréttin, sem var fjögurra
mínútna löng, var ekki sögð í upphafi fréttasendingarinnar.
Öðru nær. Hún var lesin á eftir uppskerufréttum, frásögnum
um punktalogsuðu o.þ.u.l. Næsta dag var Pravda eina dag-
blaðið í Moskvu, sem birti fréttina á forsíðu. Hin blöðin
birtu hana á einhverri inn-síðunni. Pravda, Rauða stjarnan,
málgagn hersins og Trud, málgagn verkalýðsfélagsins voru
einu dagblöðin, sem birtu mynd með fréttinni. í Sovjetskaja
Rossija birtist við hliðina á fréttastofufrásögninni um upphaf
tunglferðarinnar, grein fréttaritara blaðsins um fátækt og sorp
„Flokkurinn stýrir dagblöðunum, ” sagði Lenín og blaðamenn
Ráðstjórnarríkjanna telja starf sitt aðeins hluta flokksstarfsins og
flokksáróðursins.
í New York borg. Greinin var símsend og tvöfalt lengri en
Apollo-fréttin. Fyrirsögnin yfir fátæktargreininni var rituð
með þrefalt stærra letri en fyrirsögnin yfir geimferðarfréttinni.
Næstu daga mátti öðru hvoru lesa á innsíðum blaðanna stuttar
tilkynningar um gang tunglferðarinnar. Útvarpið helgaði
ferðinni nokkrar sekúndur í fréttatímum. Sjónvarpið sýndi
aðeins í fréttatíma á kvöldin myndir frá fluginu, en aldrei
lengur en í tvær til fjórar mínútur. Lent var á tunglinu um kl.
11 e.h. á Moskvutíma. Hvorki hljóðvarp né sjónvarp þótti taka
því að tilkynna lendinguna tafarlaust. Dægurlagastöðin
Majak gat með fáum orðum um lendinguna 15 mínútum síðar,
í venjulegum fréttatíma. í lok miðnæturfréttatímans var lesin
upp 5 lína fréttatilkynning Tass fréttastofunnar um lending-
una í hljóðvarpi Moskvu. Sama tilkynning var lesin upp í lok
miðnæturfréttatíma sjónvarps Moskvu. Á undan höfðu verið
lesnar og sýndar fréttir um málmfræði, Lenín, íþróttir og
mótmæli bandarískra stúdenta gegn stríðinu í Víetnam. Engin
skýringarmynd var sýnd. í fréttatíma, sem sýndur var 3 klst.
áður, hafði ekki verið minnst einu orði á tunglferðina. Pravda
birti frásögnina næsta dag neðst á forsíðunni á milli uppskeru-
og verkalýðsfélagsfrétta. Efst á sömu síðu var gert mikið úr
því, að öll tæki virtust starfa eðlilega í hinu dularfulla geim-
skipi Lúnu 15, sem þegar hafði verið skotið á loft. Báðar
fréttirnar komu frá fréttastofunni Tass. Fréttin frá Lúnu 15.
var 16 línur á lengd en fréttin frá Apollo 6 línur. Fyrirsögn
Lúnu-fréttarinnar var gerð með 17 mm háu letri en Apollo-
fréttin með 6 mm. Neðst á bls. 5 birti Pravda stutta frásögn
fréttaritara síns í Washington um undirbúning tungllendingar-
innar. í leiðara Pravda stóð ekkert um tungllendinguna. Hann
fjallaði um kommúnismann og bræðralag meðal manna.
Önnur morgunblöð birtust ekki þennan dag, sem var mánu-
64