Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Blaðsíða 11
9
1891
stór og fastur, engin sérleg viðkvæmni þar, en verkir frá fossa iiiaca og upp eftir,
stundum ofan í lær, svitakóf af og til og velg'ja og alltaf mjög tregar hægðir. Þar sem
ég vegna óveðurs ekki komst upp yfir heiði til að gera incisionina, gerði kollega minn,
Kjerulf, hana, en ég hef séð um sjúklinginn síðan.
8. Lungnabólga (pneumonia crouposa).
Veikin er á farsóttaskrá úr 15 héruðum, alls 140 tilfelli. Þar af dóu 21, eða 15%.
Landlæknir lætur þess getið, að lungnabólga sé einn algengasti og hættulegasti bráð-
ur sjúkdómur, sem herji á landsfólkið. Læknar eru fáorðir um veikina á þessu ári.
10. læknishérað. Af pneumonia 2 tilfelli í febrúar og 2 í maí í börnum — mors.
11. læknishérað. Lungnabólga hefur eins og vant er stungið sér niður hér og
hvar, en fáir úr henni dáið mér vitanlega. í sjúkrahúsinu á Akureyri dó kona, sem
hafði verið lögð þar inn dauðvona af lungnabólgu.
11. læknishérað. Lungnabólga hefur, eins og vant er, stungið sér niður hér og
niður og jafnframt kvefsótt, og varð vart við hvort tveggja út sumarið.
9. Kvefsótt (bronchitis el pneumonia catarrlialis).
Skráð eru aðeins 413 tilfelli kvefsóttar á öllu landinu.
I. læknishérað. Fyrir nokkrum árum síðan mátti ganga að því vísu, að með vorinu
kæmi kvefveiki með lungnabólgu og brjósthimnubólgu. Þetta hefur eigi borið til síðast
liðið ár, þótt auðvitað nokkur kveftilfelli hafi komið fyrir. Þegar ég ber þetta saman
við vorin um og eftir 1870, er hér sórkostlegur munur. Hvernig á þessu stendur, er
eigi hægt að segja, allar ástæður þá og nú virðast vera hinar sömu. Vorið, sein leið,
veit ég eigi til, að komið hafi fyrir lungnabólga nema í tveimur sjómönnum. Auðvitað
er læknis oft eigi leitað úr nærsveitunum, og vera má, að fleiri tilfelii hafi komið fyrir
önnur en þau, sem ég hef séð.
3. læknishérað. Kvefsótt stakk sér niður æðialmennt tvo síðustu mánuði ársins.
Á mörgum bæjum hafa því nær allir heimilismenn fengið meiri eða minni snert
af henni. Hvergi hefur hún verið illkynjuð, og fremur fáa hefur hún lagt í rúmið.
II. læknishérað. Mest brögð hafa verið, eins og vant er, að ofkælingarsjúkdóm-
um, svo sem kvefveikindum og bronchitis, auk sjúkdóma í meltingarfærum.
14. læknishérað. Nú undir árslokin hefur lítið eitt borið á vægri kvefsótt. Tel
ég víst, að hún hafi einkum orsakazt af óvanalegri umhleypingatíð, því að svo má að
orði kveða, að tvær og þrjár áttir hafi verið í lofti saina dag síðan um nóvemberbyrj-
un, og er því veðráttufari eigi lokið enn.
15. læknishérað. Samfara kikhóstanum voru nokkur brögð að bronchitis og
lungnabólgu, einkum í janúar.