Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Blaðsíða 54
1894
52
Eftir langa legu var hann svo heill, að hann komst heim. Hitt var 21 árs gömul stúlka,
sem dó % mánuði eftir að sullurinn var opnaður, og bar það snögglega að, og sýndi
sectio, að sullurinn hafði perforerað — og peritonitis acutissima. 1 henni fundust auk
þess margir sullir.
2. læknishérað. Með þessum sjúkdómi hef ég haft til meðferðar þetta ár 17
sjúklinga, 5 karlmenn, 11 konur og 1 barn. 13 höfðu lifrarsull, en 4 lungnasull. Tvo
af þessum sjúklingum, hvorttveggja kvenmenn, hef ég ópererað þetta ár. Önnur varð
alfrísk, hin dó.
3. iæknishérað. Af sullaveikum hafa aðeins 7 leitað til min þetta ár, 3 karlkyns,
4 kvenkyns, og hafa þeir allir haft sulli í kviðarholinu. Einn af sjúklingum þessum
skýrði mér frá, að hann hefði um það leyti, er honum var að batna af inflúenzunni,
fengið sáran verk í bakið hægra megin við hrygginn og hefði þá tekið eftir þvi, að
sullahús fóru að ganga niður af honum í þvaginu. Við engan af þessum sjúklingum
hefur verið reynd operatio. Tveir af þeim dóu á árinu, kona á fimmtugsaldri, er um
tíma hafði haft mjög mikla gulu, og bóndi yfir sextugt, sem um langan aldur að lík-
indum hafði haft marga sulli í lifrinni.
5. læknishérað. Af echinococcus kom þetta ár fyrir eitt tilfelli til viðgerðar:
multiloculer cysta í abdomen. Punktur með aspiration, úttæmdir 25 pottar á 2 dögum
í 5 séancer, og svo eftir á smám saman næstu 6 vikur í allt 53 pottar. Kanylen var látin
liggja inni, tekin úr eftir 3 vikur. Síðan vanalegur blýkeri. í desember var sjúklingur
þessi lifandi og nokkurn veginn við heilsu.
9. læknishérað. Sullaveiki er hér almenn sem sjá má af skýrslum (tilgreindir 19
sjúklingar). 7 sjúklinga hef ég opererað, og hefur tekizt ákjósanlega á 5. Ég hef alltaf
gert laparotomia, og fæ ég ekki annað séð en sú aðferð skari langt fram úr bruna
og stungu.
10. læknishérað. Echinococcus í lifrinni 2 tilfelli, 5 og 11 ára gamlar stúlkur.
Báðum batnaði eftir punktur með „blivende kanyle“.
15. læknishérað. Sullaveikin sýnist í rénun, og er það mjög gleðilegt að sjá, hvað
hreinlæti og varasemi með hunda hefur aukizt, sem er fyrsta sporið til að eyðileggja
veikina. Af þeim 28 tilfellum, sem tilfærð eru, fannst í 5 ekki greinlega echinococcus-
tumor, en bólgan var mikil í lifrinni, sem náði langt ofan fyrir costal-röndina, og önnur
symptomata voru fyrir. í 1 tilfelli sprakk inn í hmgað, í 1 var icterus, og í 2 sprakk inn
í abdomen fyrir trauma, og í öðru af þessum tilfellum dó sjúklingurinn eftir fáa
klukkutíma. Tvisvar var gerð punctio, en í öðru náðist ekki inn að sullinum eða hann
hittist ekki. í haust var fyrirskipað að hreinsa hunda með areca, og mun það verða
ítrekað aftur í vor komanda.
11. læknishérað. Einn sjúklingur dó af perforation og úttæmingu stórs echino-
coccus-tumors gegnum lungun. Ég punkteraði einn sullaveikan sjúkling á árinu, bónda
hálffertugan, sem í mörg ár hafði haft stóran tumor í epigastrium. Sjúldingi batnaði
eftir langan tíma.
18. læknishérað. Þetta ár hef ég stungið á 12 sullaveikum, og voru sullirnir í
öllum tilfellum í lifrinni. 5 batnaði, en 2 þeirra hafa síðan dáið úr öðrum sjúkdómum.
2 liggja enn, á batavegi. 5 dóu, allir úr peritonitis.