Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Blaðsíða 56
1894
54
Morbus mentalis
Neurasthenia
Neurosis
3 (1)
26 (2)
7 (1)
Palpitationes cordis nervosae 9 (2)
Alls 359
Tumor hepatis. 6 tilfelli í 1 héraði, að líkindum fiest sullir.
Vöðvagigt (rheumatismus musculorum). 353 tilfelli í 7 héruðum.
III. Fæðingar.
1. læknishérað. Fleirum sinnum hefur mín verið vitjað til sængurkvenna, en
aðeins í eitt skipti hef ég orðið að brúka töngina, sökum þess að tumor (myom) com-
pliceraði og skelckti uterus, svo mjög örðugt var að ná orificium. Myomið dróst út
meðfram höfðinu, og disseceraði ég það post partum. Konunni heilsaðist ágætlega.
2. læknishérað. Sex sinnum hefur mín verið vitjað tii fæðandi kvenna. 1 öllum
tilfellunum var sein fæðing vegna ónógra hríða, en aldrei þurfti ég að viðhafa verkfæri.
3. læknishérað. Við fæðingar hefur mín verið vitjað til 4 kvenna. Við tvær þeirra,
er báðar voru primipara, varð ég sakir magnleysis í leginu að viðhafa töng, og náði
ég báðum fóstrunum lifandi. Fyrir hinni þriðju, 36 ára secundipara, gekk fæðingin
mjög stirt sakir óreglulegra og kraftlítilla hríða, en marðist þó af, án þess verkfæri
þyrfti við að hafa, og barnið lifði. Hjá hinni fjórðu, einnig 36 ára secundipara, er
hafði alið barnið 16 mánuðum áður og sem náðst hafði andvana með töng af þáverandi
aukalækni á Akranesi, Birni Ólafssyni, varð ég, sakir þess að eigi gat koinizt svo
mikil festa á fósturhöfuðið í efra opi grindarholsins, að töngin yrði lögð á, en farið
að draga af konunni af mjög langvinnum, en kraftlitlum hríðum, að láta yfirsetukon-
una gera vendingu á fóstrinu, en ekki heppnaðist að ná barninu með lífi eða lífga
það við.
5. læknishérað. Tvisvar lögð töng á, og 1 vending gerð. Tvisvar retentio placentae
og svo nokkrar metrorrhagíur.
7. læknishérað. Til sængurkvenna hef ég verið sóttur þrisvar á árinu.
8. læknishérað. Til sængurkvenna var ég aðeins einu sinni sóttur sakir veikra
fæðingarhríða.
10. læknishérað. Töng lögð á eitt skipti.
11. læknishérað. Tók eitt barn með töng, og lifðu bæði móðir og barn.
12. læknishérað. Af fæðingartilfellum skal ég nefna eina „sædestilling“. Ég kom
seint að þeirri fæðingu, og með því hjartahljóð barnsins var mjög slappt, dró ég
það fram, þegar er færi gafst, en náði því eigi með iífi, enda var konan primipara, og
fæðingin hafði varað mjög lengi. Tvisvar hef ég tekið fylgjur frá konum, sem viðkom-
andi yfirsetukonur gátu eigi náð. — I lok skýrslu sinnar greinir héraðslæknir frá
annarri fæðingu á þessa leið: Konan hafði áður fætt 5 börn normalt. I þetta sinn gekk