Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Qupperneq 18
1891
16
á þessum tíma, þó að hafa verði í huga, að vel megi einkennin stundum hafa stafað
af líkamlegum sjúkdómum, sem læknum hefur ekki tekizt að greina.
Nýrnabólga (nephritis).
15. læknishérað. í nóvember og desember komu fyrir 8 tilfelli með nephritis
acuta. 6 á meðal þeirra fengust við síldarveiði. 2 hafa vist þjáðst af kroniskri nýrna-
veiki, sem lítið hefur gert vart við sig áður. Þar sem veður var oft mjög stormasamt
með rigningu eða frosti um það leyti og húsnæði ekki sem bezt, ímynda ég mér, að
veikin hafi orsakazt af þvi. Svo var víst vín og kaffi líka brúkað í meira lagi. Verkur
og feber voru litlir. Helzta symptom var, hvað þvagið var lítið og blóði blandað.
Skgrbjúgur (scorbutus). Um hann segir landlæknir m. a.: Skyrbjúgur hefur
ekki gert mikið vart við sig á síðustu árum. Þó hafa ekki svo fá tilfelli komið fyrir á
fsafirði. Þegar almenningur hefur nokkurn veginn nóg af kornmat, mjólk og garð-
ávöxtum, ber litið á veikinni.
6. læknishérað. Skyrbjúgur var um vorið með meira móti í verstöðum sýsl-
unnar vestan fram ísafjarðardjúps.
15. læknishérað. 3 tilfelli nefnd á sjúkraskrá.
Vöðvagigt (rheumatismus musculorum). Meiri hluti lækna getur gigtar að engu.
f 6 héruðum eru talin fram 238 tilfelli, flest, eða 82, í 12. héraði.
III. Fæðingar.
I. læknishérað. Töng var lögð á 4 sinnum vegna adynamia uteri, þrengsla í
grind, metrorrhagia og rigiditas í genitalia externa (gömul primipara).
3. læknishérað. Læknis aðeins einu sinni leitað. Var það vegna placenta praevia
partialis. Konan hafði misst mikið blóð, er ég kom til hennar, og' fæðingarhríðirnar
orðnar veikar og kraftlitlar. En með því að höfuðið var komið í tangartak, lagði ég
töngina á og náði þannig fóstrinu og fylgjunni þegar á eftir. Fóstrið var stórt, and-
vana piltbarn. Konan fékk í sængurlegunni væga blöðrubólgu (cystitis), er þó batn-
aði innan skamms.
4. læknishérað. Töng lögð á þrisvar. Af placenta praevia var 1 tilfelli, næsta
erfitt.
5. læknishérað. Töng lögð á í 3 skipti vegna adynamia. Vending gerð i 2 skipti.
6. læknishérað. 1 vending og 1 embryotomia vegna þrengsla í grind.
8. læknishérað. Til kvenna hef ég verið sóttur tvisvar á árinu. f annað sinn
tók ég barnið með töngum, og lifa bæði móðir og barn, en hin konan dó af barnsfar-
arsótt eftir á.
9. læknishérað. Töng lögð á í 4 skipti vegna grindarskekkju, stórs fósturs og
bilaðrar spangar. (Tilefnis ekki getið eitt skipti).
10. læknishérað. Töng lögð á 1 skipti.
II. læknishérað. Töng lögð á 2 skipti.
12. læknishérað. Töng lögð á 2 skipti vegna hríðaleysis. Framdráttur gerður