Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Side 21
19
1891
3. Húsakynni og þrifnaður.
1. læknishérað. Yfir höfuð að tala virðist mér sem heilbrigði manna sé talsvert
betri nú en fyrir nokkrum árum siðan. Má líklega þakka þetta betri húsakynnum
°g vaxandi menningu og umhugsun um þrifnað og betri aðbúnað að öllu leyti.
4. Mataræði.
1. læknishérað. Áður var skyrbjúgur eigi mjög óalmennur. Nú kemur það varla
fyrir, að maður sjái tilfelli af þeim sjúkdómi, og má sjálfsagt telja það víst, að vax-
andi áhugi á garðrækt eigi hér mestan hlut að máli.
5. Bólusetning.
Um bólusetningu segir landlæknir m. a.: Frumbólusetning hefur farið fram á
1754 manns, og er þar nærri eingöngu um að ræða börn innan 10 ára aldurs. Á
nokkrum skýrslum um bólusetningu verður ekki séð, hvort hefur verið frumbólu-
sett eða endurbólusett.
5. læknishérað. Bólusetning fór fram í maí og júní.
G. læknishérað. Frumbólusetning og endurbólusetning hefur verið framkvæmd
nieð bezta árangri í öllu héraðinu vegna óttans fyrir komu bólusóttar til landsins.
7. læknishérað. Skýrslur frá bólusetjurum hef ég enn ekki fengið nema frá
einum. En mér er þó kunnugt um, að bólusetning hefur fram farið allvíða í um-
dæminu þetta ár.
9. læknishérað. Héraðslæknir telur liklegt, að á árinu hafi verið bólusettir
minnst 1000 manns í héraðinu.
15. læknishérað. Bólusetning hefur verið með minna móti hér í Reyðarfirði,
meðfram af því, að bóluefnið ekki hreif og var of lítið.
20. læknishérað. Á árinu hef ég bólusett 45 börn, sem bóla hefur komið út á,
endurbólusett um 150. Ekta eða óekta bóla kom út á 74, á hinum engin verkun.
6. Skoðunargerð að kröfu lögreglustjóra.
12. læknishérað. Héraðslæknirinn í 11. læknishéraði var „í forföllum hlutaðeig-
andi héraðslæknis skipaður af amtinu til þess að gera skoðunargerð og skurð í
Svartárkoti í Bárðardal á liki, er fundizt hafði á grynningum í Svartá og megn
grunur lék á, að dáið hefði af mannavöldum. Af líkskurðinum þóttist ég geta ráðið,
að kvenmaður sá, er líkið var af, hefði fyrst verið kæfður og síðan fleygt í Svartá,
og sannaðist það á eftir við játningu morðingjans, sem nú situr í varðhaldi og bíður
dóms fyrir þennan hryllilega glæp.“