Heilbrigðisskýrslur - 01.12.1895, Blaðsíða 75
73
1895
undarlítil. Um nóttina þaut út um hana alla urticaria-útsláttur, og var líltamshitinn
tekinn í axilia 40° G. Hún fékk Mixt. acida sulph. chinica 5 sinnum á sólarhring,
og lét ég leggja yí'ir abdomen samanbrotinn dúk, undinn upp úr heitu vatni og vinda
hann upp aftur við og' við 2 fyrstu sólarhringana. Var þá urticaria farin mikið að
niinnka, en ekki alveg horfin. Hún fór þá að hafa matarlyst fyrst. Líkamshitinn
37.7° í axilla. Henni fór dagbatnandi. Síðan hef ég ekki heyrt annað en hún væri
alfrísk.
2. aukalæknishérað. Héraðslæknir skýrir frá því, að hundahreinsun hafi ekki
farið fram á árinu, en eigi að fara fram næsta ár.
S. aukalæknishérað. Hundahreinsun fór fram. 4 lilfelli af sullaveiki.
4. aukalæknishérað. Þrisvar punkterað við sullaveiki. Dó einn, en hinum batn-
abi. Sullaveiki er hér mjög mikil og virðist lítið minnka enn þá, en menn eru þó
almennt farnir að viðhafa meiri þrifnað og varkárni en áður. Af 20 sjúklingum,
sem ég hef punkterað, frá því ég kom hingað, hafa ekki dáið nema 4, og þó ekki
af operationinni sjálfri.
5. aukalæknishérað. Ég opereraði hér á Þingeyri einn echinococcus eftir Volk-
manns metode. Sjúklingurinn hefur það allgott, eftir því sem um er að gera, en ég
er því miður svo óheppinn, að hann hefur að minnsta kosti tvo sulli ennþá, svo eigi
er séð fyrir endann á því öllu.
6. aukalæknishérað. Sullaveiki gerir vart við sig hér sem annars staðar, enda
fer því fjarri, að almenningur viðhafi þá varúð í umgengni við hunda, sem ætlast
mætti til, eftir því sem gert er til að skýra eðli sullaveikinnar fyrir honum. Að sönnu
hef ég hvergi orðið þess var hér, að menn láti hunda sleikja matarílát eða liggja uppi
í rúmum, en alltof víða má þó sjá hunda inni í baðstofum, börn leika sér að hund-
um o. s. frv.
7. aukalæknishérað. Sullaveiki 6 tilfelli.
8. aukalæknishérað. Echinococcus hepatis 2 tilfelli, pulmonum 3.
9. aukalæknishérað. Echinococcus hepatis 3 tilfelli.
5. Kláði (scabies).
Tilfærð eru 219 tilfelli af kláða í 12 héruðum. Héraðslæknir í 3. aukalæknishér-
aði segir, að af hörundskvillum sé scabies langalgengastur.
6. Geitur (favus).
Tilfærð eru 14 tilfelli af geitum í 5 héruðum. Læknar minnast ekki á kvillann.
7. Krabbamein (cancer, sarcoma).
Tilfærð eru einungis 16 tilfelli af krabbameini á landinu. Sjúkdómurinn vekur
litla athygli lækna, því að þeir hafa ekkert um hann að segja. Varla er að efa, að
þetta framtal muni vera æði ófullkomið.