Heilbrigðisskýrslur - 03.12.1920, Síða 93
ur Rvík. í mánaÖarlokin kom hún á Suðureyri og upp i sveit i Önundar-
íirSi. Á SuSureyri tók hún menn mjög geyst og lögðust nær allir þorps-
búar á fám dögum.
N a u t e y r. Infl. barst frá ísaf. Kom á einn bæ í Nauteyrarhr. og lagSi
alt í rúmið, sem svaf i sama herbergi. Helmingur heimilismanna slapp.
— I Ögurhreppi fór'hún um alt.
Hesteyr. Infl. fluttist 12. nóv. frá ísaf. 6 dögum eftir voru 23 af
28 i verstööinni veikir, en eftir y2 mánuð var veikin komin um allan
hreppmn. -—• Þ. 26. barst hún í Sljettuhr. meö póstbát frá ísaf., en hagaöi
sjer þar á alt annan veg: fór hægt yfir, tók fáa og mjög vægt yfirleitt.
Sóttin hjelt sig eingöngu í hverfunum beggja megin Aöalvíkur, án þess
að breiðast lengra út og ,,lognaðist þar út af“. Um j/5 hreppsbúa, í mesta
lagi fjekk veikina.
Miðfj. Infl. barst með landpósti að Stað í Hrútaf. Komst þaðan á
2 bæi í Hrútaf., 3 í Miðf. og 1 í Víðidal. Varnir. Veikin stöðvuð. (M.
S., nóv.).
Öxarfj. Infl. gekk i apríl. Margir orðið þungt haldnir. I maí var
hún í rjenun. Fæstir vitjuðu læknis. 2 sjúkl. í ág., með tracheobr. hafa
líkl. haft væga i n f 1. Sýktust rjett eftir að maður kom frá Rvík með
infl. (M. S.).
Þistilf j. Sept. Æðimargir hafa veikst af infl., en veikin verið svo
Ijett, að læknis var ekki vitjað. Hún lýsti sjer með acut. conj. og pharyn-
gitis og nærri ávalt gastritis (uppsölu), en þetta hefir skánað eftir 2—3
daga. Hiti víst oftast lítill.
S í ð u h. Infl. barst í júlí frá Vík í Mýrdal á eitt heimili í Meðallandi.
Allir lögðust (4). Samgönguvarúð, og barst veikin ekki lengra. — í ág.
barst hún aftur úr sama stað á 2 heimili í Meðallandi. Lagðist einn á
hvoru heimili og ekki fleiri, þó engin varúð væri höfð. — I sept. barst
hún á 2 heimili á Brunasandi. Bóndinn hafði komið á annað sýkta heim-
ilið í Meðallandi og lagðist 2 dögum eftir heimkomu, einnig kona hans
og barn. Frá þessum bæ sýktist annað heimili á Brunasandi (gömul kona).
Mýrdalsh. í júlí barst vond kvefsótt með ferðamönnum úr Rvík
og tók flest fólk á sumum heimilum. Var að stinga sjer niður fram á
haust, en varð vægari er á leið.
Vestm. eyj. 4. nóv. kom Skaftfellingur með sýkta tnenn frá Rvík.
Sjálf veikin endaði hjer um miðjan des. Miklu fleiri sýktust en skráðir
eru. (M. S.).
Rangárv. Infl. barst úr Rvik til Lands og í Holtahr. með fjár-
rekstrarmönnum. Þeir komu á dansleik, sem haldinn var í sveitinni, og
breiddist svo veikin skyndilega út á rnörg heimili. Eftir að varnir voru
teknar upp, breiddist veikin lítt út og V.-Eyjafjallahr. slapp alveg.
Eyrarb. Fyrst sjúkl. bókfærður 19. júli. Smitaðist á íþróttamóti á
Selfossi. í júlí—okt. eru að eins fáeinir sjúkl. bókfærðir. Sýktust allir
vægt. Allan þennan tíma heyrðist talað um þennan kvilla víðsvegar um
hjeraðið, en læknis var sjaldan leitað, vegna þess, hve ljettur hann var.
Þó virtist það ekki vera mjög margt manna, sem sýktist.
Spánarveikin fluttist 31. okt. til Eyrarb., með manni, sem kom frá
Rvík. Um sömu mundir barst hún þaðan í aðra hreppa hjeraðsins. Úr
því veiktust menn hrönnum saman í okt., nóv. og des.