Gisp! - 12.03.2005, Síða 18
Gisp! 2,
kápumynd eftir
Jóhann L. Torfason
64 síður, kápa í lit,
innsíður svart-hvítar
Smekkleysa
febrúar 1991
upplag 800
„Fleiri teiknarar, fjölbreyttari sögur: við vonum að þróunin sé jákvæð
og að við festumst ekki í myndasöguheiminum eða öllu heldur að
okkur takist að draga sem flest inn í hann svo erfiðara verði að
staðsetja veggina og innanstokksmunirnir fái betur að njóta sín.
Liður í þeirri viðleitni er sýning í Ásmundarsal sem opnar sama dag
og þetta blað kemur út - 16. febrúar - og stendur til 24. Þemað er
„Arkítektúr í myndasögum" og er sýningin sett upp í samvinnu við
Arkítektafélag íslands."
Úr ritstjórnargrein í oðru tölublaði Bisp!, febrúar 1991.
Við útgáfu fyrsta tölublaðsins var um margtfylgtgóðum oggíldum vinnubrögðum
alvöru útgefanda. Fenginn var hönnuðurtil að hanna og brjóta um (fékk
reyndar ekki krónu fyrir, ef ég man rétt) og dreifingarfyrirtæki sá um að koma
blöðunum í sölu. Eftir sölufíaskó fyrsta blaðsins var snarlega dregið saman
og allar deildir útgáfunnar endurskipulagðar. Annað blaðið settum við upp
sjálfir og dreifðum í minna upplagi. Hins vegar buðum við upp á áskrift. Það
tilboð fékk lítil viðbrögð. Á bakkápu blaðsins útbjuggum við platkápu í
slúðurblaðastíl og töldum okkur þannig fá meira pláss í blaðarekkum og meiri
athygli.
Kynning á þessum fyrstu blöðum var öflug en virtist hafa lítil áhrif á sölu. Hins
vegar komu nýir höfundartil sögunnar, t.d. Freydís Kristjánsdóttir. Við færðum
okkur nær myndlistinni með birtingu á verkum eftir Róbert Róbertsson og
Helga Þorgils Friðjónsson og fyrsta greinin leit dagsins Ijós þar sem Sigurður
Ingólfsson fjallaði um Batman.
Frá útgáfusýningunni í Ásmundarsal. Fyrstu samsýningu Gisp! má hins vegar
telja sýningu í Djúpinu í september 1990.
Gisp! 3,
kápumynd eftir
Þorra Hringsson
64 síður, kápa í lit,
innsíður svart-hvítar
Smekkleysa
sumar 1991
upplag 500
„Eins og vanalega eru tvær konur í hópnum (skv. GISP!-staðli)
sem hlýtur að teljast eitt hæsta hlutfall í nokkru myndasögublaði.
Þar að auki birtist nú efni eftir tvo útlendinga sem sýnir að GISP!-
faraldurinn breiðist óðfluga út um hinn byggða heim... Næsta
blað kemur út í tæka tíð fyrir jólahasarinn. Að lokum, munið þetta:
GISP! ER LISTVÆNT BLAÐ.“
Úr ritstjórnargrein í þriðja tölublaði Bisp!, sumarið 1991.
Kannski vorum við orðnir of listvænir? Við vildum ná til fólksins, ekki satt?
Laða það fyrst að með lúmskum myndum afþreyingarinnar og fanga það
síðan með listinni. Þess vegna skelltum við hasarnum á þriðju kápuna og
Dóri kynnti fyrir lesendum þjóðlegu handboltahetjuna Kristján Gfsla. En allt
kom fyrir ekki. Salan jókst ekki, sölustöðum fækkaði og ef ekki hefði komið
til greiðsla frá menntamálaráðuneytinu vegna sýningar á göngum þess hefðu
endar ekki náð saman. Fyrir utan peningínn var ráðuneytissýningin merkíleg
fyrir þær sakír að okkur tókst i fyrsta sínn að valda hneykslan, hvort sem
það telst til tekna eður ei. Teikningar Tóta af ráðherrum og öðru fólki voru í
fyrstu ekki hengdar upp en svo fór þó að lokum.
Blaðið varð sífellt fjölbreyttara. Boðið var upp á verðlaunasamkeppni eftir
handriti Þorvalds Þorsteinssonar, Gunnar Hjálmarsson (Dr. Gunni) steig sín
fyrstu myndasöguskref og birt var efni eftir Eric Koo Sin Lin frá Máritíus og
Frakkann Paquito Bolino. Þess má geta að verðlaunasamkeppnina vann
Erpur Eyvindarson, sem nú er lands- og jafnvel heimsþekktur rappari, en
þá einungis hæfileikaríkur strákhvolpur. Svona vorum við með puttann á
púlsinum þótt ekki væri það fjármálaæðin.
Tengslin við útlönd styrktust enn frekar með útgáfu sagna eftir nokkra úr
ritstjórninni í finnsku blaði sem við höfum einungis frétt af en aldrei séð.
16 |
GISP ‘90 - ‘99