Gisp! - 12.03.2005, Blaðsíða 49
Útgáfufyrirtækið Optimal Press var stofnað árið
1991 af þeim Ingemar Bengtsson og Mikael
Tegebjer. Þeim fannst vanta útgáfuvettvang fyrir
upprennandi sænska myndasöguhöfunda sem ekki
vildu laga sig að útgáfustefnu stóru fyrirtækjanna.
Safnritið Ulv i fárakláder (Úlfur ísauöagæru) var
fyrsta bók útgáfunnar og stofnendur Optimal Press
héldu jafnframt að hún yrði sú síðasta. Þeir höfðu
rangt fyrir sér, bókin vakti gríðarlega athygli og
seldist fljótlega upp. Ingemar og Mikael ákváðu
því að leggja út á þyrnum stráða útgáfubrautina
með það að markmiði að gefa út góðar sænskar
myndasögur í bókarformi fyrir fullorðna lesendur.
Daniel Ahlgren, Johan Wanloo og David Liljemark
voru meðal fyrstu höfundanna og sögur þeirra hafa
síðan birst í fjölmörgum bókum.
Hjá Optimal Press er mest lagt upp úr þróun og
vexti hins skapandi þáttar. Útgáfan hefur ávallt
sent frá sér mörg byrjendaverk og verk höfunda
sem önnur bókaforlög þora ekki að gefa út. Frá
byrjun hafa allar greinar myndasögunnar átt jafna
möguleika. Optimal Press var fyrsta útgáfan sem
gaf út sænskar hryllingssögur, sæberpönk og
sjálfsævisögur í myndasöguformi. Tegund mynda-
sögunnar skiptir ekki máli, einungisgæði hennar.
Umfram allt er lögð áhersla á að finna góða sögu-
menn og að sögurnar séu sagðar með teikningum
sem hæfi þeim.
Mikilvægt skref var stigið árið 1993 þegar
útgefendurnir ákváðu að hefja útgáfu þýddra
myndasagna frá nágrannalöndunum. Fyrst var riðið
á vaðið með finnskum höfundum, því næst fylgdu
í kjölfarið höfundar frá Danmörku og Noregi og að
síðustu íslandi. Alltaf skyldi gefa út bestu fáanlegu
sögur. Fyrsta bókin var finnska safnritið RefleXerier
sem út kom 1994. Kati Kovács og Pentti Otsamo
lögðu bæði til sögur í ritið og hafa allar götur síðan
verið meðal höfunda Optimal Press. Síðar voru svo
þýddar sögur eftir Matti Hagelberg og Katju
Tukiainen. Norski höfundurinn Jason, sem getið
hefur sér gott orð á alþjóðavettvangi, slóst í hópinn
1996 og hafa alls komið út átta bækur eftir hann.
Sögur eftir landa hans hafa birst í safnritum
útgáfunnar og ber þar fyrstan að nefna Christopher
Nielsen. Daninn Jan Solheim sást fyrst á síðum
Optimal Press 1996 og 2003 fylgdi Henrik Rehr
honum eftir. Úr íslensku hafa verið þýddar nokkrar
sögur eftir Bjarna Hinriksson.
Bækur sænskra höfunda eru að sjálfsögðu stærsti
hluti útgáfunnar og Optimal Press hefur náð athygli
fjölmiðla með hvunndagssögum og sjálfsævisögu-
legum verkum höfunda eins og Daniels Ahlgrens,
Ásu Grennvall, Anneli Furmark, Gunnars Krantz
and Coco Moodysson. f þennan flokk falla einnig
raunsæislegar sögur Lis Österbergs og Patriks
Rochlings þótt þær séu hreinn skáldskapur. Optimal
Press hefur einnig gefið út gamansögur ýmiskonar
og má þar nefna höfundana David Liljemark, Johan
Wanloo, Maju Lindén og Joakim Lindengren.
Safnritið Allt för konsten (Allt fyrir listina) hóf
göngu sína 1998 og í fyrstu bókinni voru
hvunndags- og sjálfsævisögur sænskra höfunda.
Eftir það voru dyrnar opnaðar fyrir höfunda frá
öðrum Norðurlöndum og nú kemur bókin út árlega.
Raunsæislegar sögur eru sem fyrr í meirihluta en
þó er alltaf töluvert um súrrealískari og inn á milli
tilraunakenndari myndasögur, einkum meðal þýdda
efnisins. Haustið 2005 kemur sjötta ritið út og
samkvæmt venju stíga þar nýir höfundar sín fyrstu
skref innan um þekktari höfunda.
Mikael Tegebjer sagði skilið við Optimal Press
1997 og síðan hefur Ingemar Bengtsson stýrt
útgáfunni aleinn. Honum til aðstoðar eru ýmsir
lausamenn og fer þar fremstur grafíski hönnuðurinn
Nicolas Krizan sem hannað hefur bækur Optimal
Press frá upphafi. Þær telja næstum 90. Björn
Schagerström hefur séð um vefsíðu útgáfunnar
síðan 2000. í dag gefur Optimal Press út bækur
23 höfunda og fjölmargir aðrir leggja til sögur í
Allt för konsten. Optimal Press og höfundar hennar
hafa fengið margar viðurkenningar og má þar nefna
„Urhunden“-verðlaun sænsku myndasögusamtak-
anna fyrir bestu myndasögubókina sem útgáfunni
hefur hlotnast átta sinnum.
INGEMAR BENGTSSON
(Textar um höfunda Optimal Press sem fylgja hér á eftir eru einnig
skrifað af Ingemar Bengtsson)
Veffang Optimal Press:
www.optimalpress.com
OPTIMAL PRESS
47