Gisp! - 12.03.2005, Qupperneq 29
Gisp! 7,
kápumynd eftir
Halldór Baldursson
40 síður, kápa í
einum aukalit,
innsíður svart-hvítar.
Gisp! útgáfufélag,
desember 1995,
Gefið út með styrk frá
Menningarmálanefnd
Reykjavíkurborgar.
Upplag 500 eintök
Gisp! 8,
kápumynd eftir
Jóhann L. Torfason
144 síður, kápumynd í
lit, innsíður svart-hvítar
Gisp! útgáfufélag,
mars 1999
Upplag 500 eintök
„Ef einhver þykist sjá goðsagnafuglinn myndlíkingahandhæga rísa
úr ösku þegar þetta blað er opnað skal ritstjórnina ekki undra. Ef
kötturinn hefur níu líf fylgir Gisp! honum fast á hæla með a.m.k.
sjö (Athugulum lesanda sem telur sig hafa fylgst með uppvaxtarárum
Gisp! og rekur ekki minni til sjötta lífsins skal bent á Lýðveldisblað
Gisp! og Eintaks... sem ritstjórnin leyfir sér að tölusetja eftir á).
(Það er) okkur sönn ánægja að kynna þetta sjöunda tölublað Gisp!
sem öðrum þræði sýningarskrá tveggja sýninga er bera yfirskriftina
„M og M“ (myndasögur og myndlist). Efni blaðsins er þannig að
nokkru leyti helgað þessu þema, bæði í langri grein Þorra Hringssonar
og í sumum myndasagnanna, en að öðru leyti byggir það á nýjum
sögum höfunda sem allir hafa áður birt verk í Gisp!, að einum
undanskildum, Ómari Erni Haukssyni."
Úr ritstjórnargrein í sjöunda tölublaði G/sp/, desember 1995.
Sýningar og útgáfa - þetta virtist vera sú samloka sem Ijúffengust var á
bragðið. Víð vorum tilbúnir að leysa Gisp! úr læðingi að nýju og nú var
ákveðið að vaða fullum fetum út í myndlistarpollinn með myndasöguna
og athuga hvort hún væri synd. t Gallerí Greip settum við Dóri upp sýningu
í samvinnu við Tinnu Gunnarsdóttur sem hét „Nýjar myndasögur" og í
sýningarsalnum Við Hamarinn í Hafnarfirði skipulagði Þorri „Myndasögur
í myndlist". Gisp!7fylgdi svo sýningunum. f þetta sinn var blaðið hógværara
en áður í formi en um leið þéttara.
Var umræðan um lágmenninguna og hámenninguna og stöðu
myndasögunnar ekki tæmd í bili? Kannski var kominn tími til að snúa
sér að því að gera bara myndasögur. Til að hugsa málið tókum við okkur
frí frá Gisp! í nokkur ár.
M og M, Gallerí Greip M og M, Við Hamarinn
Úr ritstjórnargrein í sjöunda
tölublaði Gisp!,
desember 1995.
Þegar hér var komið sögu hafði ég tekið þátt í sýningum á Norðurlöndum
og komist í kynni við höfunda þar og útgefendur. Farandsýning með
verkum norrænna myndasöguhöfunda hafði ferðast um Evrópu síðan
1997 og til stóð að hún endaði ferðalag sitt í Norræna húsinu. Það
virtist tilvalið tækifæri til að gefa út nýtt Gisp!
í samstarfi við Norræna húsið, Serieteket í Stokkhólmi, Serinord og
fleiri var sett upp dagskrá sem kölluð var „Myndasögur í mýrinni".
Þetta erfyrsti vísir að myndasögumessu eða -hátíð á íslandi. Auk
farandsýningarinnar „Cap au Nord“ í sýningarsal Norræna hússins
voru tvær sýningar í anddyrinu-. „Norrænar myndasögur í dagblöðum"
og „íslenskar myndasögur í dagblöðum og tímaritum". Sú síðastnefnda
var sett saman af Halldóri Carlssyni. Fyrirlestrar voru haldnir og
höfundar spjölluðu. Meðal erlendra gesta voru Teddy Kristiansen og
Peter Madsen.
Of langt væri að telja upp alla þá höfunda sem áttu sögur í þessu
tölublaði. Reyndar var Gisp! orðið að bók. Fyrir utan alla Gispl-
höfundana var rúmurtugur höfunda frá öðrum Norðurlöndum.
Eftir átökin við að setja saman
„Myndasögur í Mýrinni" kom aftur
langt hlé. Þegar Stafrænar fjaðrir
kom út fjórum árum síðar var þar
um að ræða fyrstu bókina með
sögum eins höfundar sem gefin er
út í nafni útgáfufélagsins. Gispl-
hópurinn væri ekki starfandi um
það leyti en nafninu var engu að
síður haldið á lofti.
Með NÍUNNI og þessari bók
bankar Gisp! upp á eina ferðina
enn. Hvertframhaldið verður leiðir
tíminn og veðrið í Ijós.
Stafrænar fjaðrir
sögur eftir Bjarna Hinriksson
48 síður í lit
Gisp! útgáfufélag, 2003 BJARNI HINRIKSSON
GISP ‘90 - ‘99
27