Gisp! - 12.03.2005, Qupperneq 196
sem Tinna og Hreinn Borgfjörð rannsaka. í sögunni
er hægt að sjá ýmis líkindi með karakterum úr Tinna-
bókunum (sbr. Tinna). Þorri er einn af okkar færustu
myndlistarmönnum og virkur talsmaður myndasög-
unnar.
Blek hefur komið út síðan 1996 hjá hópi sem hittist
fyrstá vegum Hins hússins. Aðstandendur Bleks
eru Jan Pozok, Þorsteinn S. Guðjónsson, Ómar Örn
Hauksson, Kjartan Arnórsson, Jón Ingiberg Jónsteins-
son og Eyrún Edd Hjörleifsdóttir. Blaðið er byggt
upp á sama hátt og Gisp!, stuttar sögur eftir ýmsa
höfunda og þangað geta upprennandi mynda-
söguhöfundar sent inn sögur sínar og fengið birtar.
Kjartan Arnórsson var aðeins fjórtán ára þegar hann
gaf út bókina Vísindaráðstefnan. Suttu síðar skapaði
hann íslensku ofurhetjuna „Kafteinn fsland". Kjartan
hefur haldið sínu striki í myndasögugerð, en sögur
hans hafa orðið klúrari meðtímanum. Myndasögur
hans hafa meðal annars verið birtar í Bandaríkjunum.
Hatið okkur og Ríðið okkur. Hugleikur sýnir í þeim
bókum að til þess að gera skemmtilegar sögur þarf
ekki endilega flóknar teikningar, en þær eru í „Óla
prik“ formi, sem er spélegt þar sem höfundur er
mjög frambærilegur teiknari eins og dæma má af
fyrri verkum hans. Sögurnar eru eins ramma mynda-
sögur. Hrá kímnigáfa einkennir bækurnar, kald-
hæðnislegur húmor er áberandi og siðferðilegur
línudans stiginn án þess þó að verða um of ógeð-
felldur.
Blóðregn er einnig ný myndasaga, en þar er sagt
frá brennunni á Bergþórshvoli úr Njáluí myndrænu
formi. Bókin er eftir Emblu Ýr Bárudóttur og Ingólf
Örn Björgvinsson. Ingólfur myndskreytir bókina en
hann hefur starfað sem grafískur hönnuður. Bókin
hefur hlotið góða dóma bókmenntagagnrýnenda. si
Sjálfstætt framhald, Brennan, hefur einnig hlotið lof.
Yfirlitið hér að ofan er alls ekki tæmandi. Sökum
lítillar útgáfu á íslenskum myndasögum hafa sumir
hafa gert tilraunir með myndasöguformið. Dadaistar,
þar á meðal Kurt Schwitters og Eduardo Paolozzi
notuðu ýmis hráefni í myndir sínar. Þeir klipptu í
sundurýmis blöð ogtímarit, notuðu efni sem í augum
annarra var rusl og bjuggu til svokallað „collage"
eða klippimyndir. Meðal efniviðarins voru myndasögur
sem þeir höfðu klippt út úr myndum og notuðu svo
sem bakgrunn í listaverk sín. Popplistin varð fræg
fyrir að nota alþekkt tákn úr samtímamenningunni
sér í lagi þau sem gersneydd voru listfræðilegum
eða fagurfræðilegum gildum. Þarna voru Andy Warhol
og Roy Lichtenstein stór nöfn. Roy Lichtenstein
notaði ramma úr myndasögum og bjó til hámenn-
ingarleg listaverk úr þeim. Sökum þess „rusls" sem
listin var sköpuð úr fékk myndasagan enn og aftur
á sig rusl stimpilinn og þar af leiðandi var erfitt fyrir
hana að koma sér upp úr lágmenningunni, þrátt
fyrir að hún hangi á veggjum hástéttarinnar.
Einn frægasti listamaður okkar, Erró, hefur í langan
(7) Ingi Jensson er annar afkastamikill myndasögu-
höfundur. Hann hefurtileinkaðsérevrópska mynda-
sögustílinn að miklu leyti, bæði á sviði teikningar og
skops. Ingi teiknar myndasögur fyrir ýmis blöð og
tímarit hér á fslandi og sem dæmi má nefna Heimur
Sjonna í erótíska tímaritinu Bleikt og blátt, Mikki og
Mangifyrir Bílablaðið og Skólahúmorinn fyrir
Skólavörðuna. Einnig birtir Ingi daglega myndasögu
í DV. Ingi safnaði saman í eitt myndasögublað
myndasyrpunum um Heim Sjonna sem birst hafa
eftir hann í Bleikt og Blátttölublöðunum síðustu árin
og gaf út árið 2003. Blaðið hlaut góða dóma, en
sökum efnisins hefur það ekki verið til sölu í helstu
bókabúðum landsins, en er þó fáanlegt í Nexus.
Á síðustu árum hafa nokkrir fslendingar komið fram
á sjónarsviðið með nýjar myndasögur. Meðal þeirra
er Hugleikur Dagsson með bækur sínar Elskið okkur,
höfundar kosið að gefa myndasögur sfnar sjálfir út
og þá í takmörkuðu upplagi. Þessar myndasögur
eiga það til að týnast í bókaflóðinu og verða að lokum
ófáanlegar. Dæmi um slíkan höfund erBragi Halldórs-
son. fslenski markaðurinn er enn á byrjunarreit og
því getur reynst erfitt að hafa uppi á einstaklingum
sem standa á eigin fótum í myndasögugerð og útgáfu.
Myndasagan í öðrum miðlum
Myndlist er nátengd myndasögunum. Til þess að
verða fær myndasöguteiknari þarf fólk að hafa góð
tök á myndlist, til að mynda líkamsbygginu, upp-
byggingu mynda og teikningu. Stefnur eins og
fútúrismi, dadaismi, súrrealismi og popplist hafa átt
erfitt uppdráttar hér á landi, en allar þessar stefnur
tíma málað fjölmörg málverk sem innihalda helstu
hetjur og persónur úr myndasögum. f anddyri
Kringlunnar á annarri hæð trónir eitt af listaverkum
hans, en þar má sjá Silver surfer úr samnefndum
myndasögum auk annarra karaktera úr myndasagna-
heiminum.
Hér á fslandi eru nokkur fyrirtæki starfrækt sem
vinna að teiknimyndagerð og tengja þannig mynda-
söguna við sjónvarp. Caoz, með Gunnar Karlsson í
broddi fylkingar, er auglýsingastofa sem leggur
áherslu á þrívíddarsköpun og tölvuvinnu. Vegna
þeirra hafa fslendingar meðal annars fengið að
kynnast mjólkurdropanum Dreitli í auglýsingum
Mjólkursamsölunnar, síhressu Svalakörlunum frá
Vífilfelli og stuttmyndinni Litla lirfan Ijóta. Nýjasti
afraksturinn erstuttmyndin Anna ogskapsveiflurnar,
1 94 | ÍSLENSKA MYNDASAGAN