Víkingsblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 33
að hún teldi nauðsynlegt fyrir ungar istúlkur að stunda
íþróttir eða leikfimi, til iþess að fá hreyfinguna.
Kolhrún sagðist lítið fylgjast með meistaraflokkn-
um hjá 'körlum núorðið, en í fyrra liefði hún farið á
hvern einasta leik.
Ahuginn alveg „ofsalegur“.
Það var mikiil kátína ríkjandi í Laugardalshöllinni
einn sunnudagseftirmiðdag fyrir skömmu. Litlar Vík-
ingsstúlkur boppuðu og skoppuðu af gleði í kringum
þjálfara sinn, ihann Sigurð Gíslason. Og ástæðan var
einföld, st’úlkurnar höfðu tryggt isér þátttökurétt í
úrslitakeppninni í 3. flokki. Og það sem var kannski
furðulegast af ö'llu, að stúlkurnar unnu ailla sína leiki,
eftir að hafa tapað öllum leikjunum í Reykjavíkur-
mótinu! Það eru oft skörp skiil mrllli sorgar og gleði
í íþróttunum.
Þótt aldurinn væri ekki hár, sáu mótherjar Víkings-
stúlknanna lástæðu til að taka eina þeirra úr umferð
allan tímann. Þetta reyndist vera fyrirliðinn Sólveig
Magnúsdóttir, 12 ára gömul. Bróðir hennar er reynd-
ar dkki óvanur því að vera tekinn úr umferð, hann
Guðjón Magnússon.
„Við ætlum að gera okkar hezta til að vinna
mótið“, sagði Sólveig. „Við eigum að lceppa við
Fylki og ÍBK í úrslitunum“. Sólveig sagði að telp-
urnar í 3. flokki væru 12 og 13 ára gamlar, og áhug-
inn væri „ofsamikill“. Þær hefðu bara farið helldur
seint af stað í haust, og ekki verið í nægilega góðri
æfingu í Reykjavíkurmótinu. Flestar stúlkurnar verða
áfram í 3. flokki, og þær eru ákveðnar í því að brenna
sig ekki á sama soðinu næst, heldur byrja að æfa strax
næsta 'haust og ihelzt vinna allt saman!
^ The most important ílshing imiustry-town ot Iceiand. the Westman
§ Islands evaeuated i;i 5 hours. (Approx. 5000 pereons).
« AXmannavernir skipuliigau og Jramkvanndu brottflutnlng alira Ibua
O (ttm 5000 rnanns) á 5 klst,
ci Stærsta vcrstíið fslands. Vostmannaeyjar, éstarflwrf vcgna etdcoss.
QUÁNTn'It*; 1913
f . :
Nokkur umslög eru til sölu af þessu 1. dagsumslagi í Sölutuminum, Mávahlíð 25.
1