Víkingsblaðið - 01.05.1973, Síða 39
stöðvar sínar upp í Bústaðalhverfi hófst endurreisnar-
starf margra mætra manna, en )iað var nokkuð lengi
að skila árangri, enda ekki við því að húast að fé-
lagið festi ailveg strax rætur í Iþessu nýja umhverfi“.
Og svo 'hófst endurreisnin?
„Já, það gekk ibetur að ná handknattleiknum á strik
en knattspyrnunni. Tiltölorlega fljótt náðist upp fram-
bærilegur keppnisflokkur í meistaraflokki karla, og
má þar nefna að árið 1963 unnu Víkingar til silfur-
verðlauna í 1. deild. Astandið var ekki eins gott í
knattspyrnunni, og ég man þá tíð að við höfðum
varla í lið. Eitt árið sendum við ekki flokk í Reykja-
víkurmótið í meistaraflokki. Aftur á móti voru yngri
flokkarnir alila tíð góðir, og Iþeir tímar komu að birta
tók að nýju. Fyrsta meiriháttar afrekið hjá meistara-
flokki eftir endurreisnina var að komast í úrslit bik-
arkeppninnar 1967, en eins og menn muna eflaust
töpuðum við þar 3:0, enda piltarnir okkar flestir
ungir og óreyndir“.
Nú hefur þú um tíma einbeitt þér að handknatt-
leiknum ?
„Já, hin síðari ár hef ég heldur einbeitt mér að
handknattileiknum. Um þriggja ára skeið hvíldi ég
mig frá þjálfun meistaraflokksins, og var allan þann
tíma með Hauka frá Hafnarfirði. Haustið 1971 kom
ég svo aftur til staría hjá meistaraflokknum, og hef
verið með hann tvo síðustu vetur. Hins vegar hyggst
ég nú draga mig í hlé frá þjálfarastörfum, og ég
kem ekki til með að þjálfa neina flokka hjá Víkingi
á næstunni, nema hvað ég mun vera með meistara-
flokkinn í knattspyrnu í sumar ásamt Theodór Guð-
mundssyni. Hins vegar þýðir þetta ekki, að ég muni
alveg hætta þjálfarastörfum, og það er allt eins lík-
legt að ég taki síðar að mér þjálfun ihjá Víkingi á
nýjan leik“.
Hvers vegna hyggst þú draga þig í 'h'lé ?
„Ég held að ég hafi gott af smávegis bvíld frá
þjálfarastörfunum. (Það ihefur farið í þetta geysimik-
ill itími eims og gefur að skilja, og fjölskyldan orðið
útundan (Pétur er kvæntur Guðrúnu Helgadóttur fyr-
inliða imeistaraflokks kvenna). Þá hef ég einnig verið
að byggja að undanförnu, og slíkt fer ekki vel saman
við mikla þjálfun. En einis og ég sagði áður, þá er
ekki loku fyrir það skotið að ég taki Iþráðinn upp að
nýju isíðarmeir“.
Hvað finnst þér um frammistöðu meistaraflokks
undanfarin tvö ár?
„Eftir ibasl undanfarinna ára var það sannarlega
tilbreyting að meistaraflokkur skyldi komast í topp-
baráttuna undanfarin tvö keppnistímabil. En það
Keykjavíkurmeistarar í 3. flokki 1963. Aftari röð frá vinstri:
Gcorg Gunnarsson, Sigmar Sigurðsson, Pétur Bjarnarson,
Einar Magnússon og Þorsteinn Eggertsson. Fremri röð frá
vinstri: Guðmundur Gunnarsson, Hilmar Bragason og Kúnar
Gíslason. ........
urðu mér sannarlega vonbrigði að lokaspretturinn
iskvldi verða svona slakur bæði arin. Astæðurnar eru
eflaust margar, og ein mjög mikilvæg ástæða held
ég að sé reyn'sluileysi. Ég held að liðsmenn hafi ekki
verið nægilega þroskaðir.
Víkingur ihefur tvímælalaust á að skipa bezta sókn-
arliðinu í dag, það sýnir markatala okkar glöggt. En
markatalan sýnir lika glöggt, að vörnin og markvarzl-
an er ekki nógu góð, og í því sairibandi vil ég meina
að markvarzlan sé istærra vandamál. Ég veit ekki
hvað veldur þessu með vörnina, ég hef tekið hana
fyrir, en árangurinn ckki orðið sem skyldi. Þetta er
dálítið einkennilegt, iþví flest mín fyrri lið voru
yfirleitt betri í vörn en sókn, og þetta er fyrsta liðið,
sem ég get ekki náð upp góðri vörn hjá. En ég er
alveg sannfærður um það, að ef vörn og markvarzla
taka stakkaskiptum, fer Víkingur á toppinn. Efnivið-
urinn er fyrir hendi“.
Hvað er 'þér minnisstæðast úr löngu starfi?
„Ég á að sjálfsögðu margar minningar, bæði bjart-
ar og dökkar. lEf við tökum fram þær björtu, vil ég
minnast Norðurlandamóts kvenna árið 1964, þegar
ég þjálfaði íslenzku stúlkurnar sem unnu Norður-
landamótið hér á Laugardalsvellinum. Þá vil ég minn-
37