Víkingsblaðið - 01.05.1973, Blaðsíða 44
HALLUR SÍMONARSON:
Sigurdagurinn mikli
þegar Islendingar unnu Norðmenn Dani og
Svía í íþróttum 29.júní 1951
Föstudaginn 29. júní 1951 rann upp fagur og heið-
skír. Það var mikil spenna í Reykjavík og reyndar
alls staðar á íslandi. Góðar fréttir höfðu borizt frá
Osló kvöldið áður — ísland hafði fjögur stig yfir
í landskeppni í frjálsum íþróttum við Noreg og tvö
stig yfir Dani. Um kvöldið átti þeirri keppni að
ljúka og Iþá var jafnframt landsleikur við þriðju Norð-
urlandaþjóðina á Melavellinum — landsleikur í
knattspyrnu við Svíþjóð.
Hvar, sem menn komu saman, var umræðuefnið
landskeppnin og landsleikurinn. Tekst íslandi að
sigra Noreg, Danmörku og Svíþjóð í íþróttum á ein-
um og sama degi? — fslenzku keppendurnir höfðu
verið sigursælir fyrri keppnisdaginn í Ossló — sigrað
í sex greinum af tíu. íFyrsía keppnisgreinin þar var
400 metra grindahlaup. Örn Glausen hljóp slíkt hlaup
í fyrsta skipti þarna i Osló — og sigraði. Það var
gott fordæmi og Örn setti Islandsmet 54,7 sekúndur.
Ingi Þorsteinsson kom einnig mjög á óvart og varð
þriðji í Maupinu. Fyrirliði íslenzka liðsins, Skúli
Guðmundsson, lét 'heldur ekki sinn hlut eftir liggja
í sinni keppnisgrein — hann sigraði í hástökki. Sama
sagan í kúluvarpi — Evrópumeistarinn Gunnar
Husdby sigraði með miklum yifirburðum, varpaði
16.69 metra. Hinn Evrópumeistari íslands frá mót-
inu í Brussel árinu áður, Torfi Brvngeirsson, lét held-
ur ekki sinn hlut — stóð efstur á verðlaunapallinum
að langstökkinu loknu.
Þetta voru sigrar, sem ekki komu á óvart — ekki
einu sinni sigur Arnar í grindahlaupinu. Og þeir
urðu fleiri. Hörður Haraldsson kom fyrstur í mark í
200 metra hlaupinu og var auk þess í sigursveit Is-
lands í 4x100 m. hoðhlaupinu. I 800 metra hlaupinu
varð Guðmundur Lárusson annar — rétt á eftir hin-
um heimsfræga, danska hlaupara Gunnari Nielsen.
Árangur flestra íslenzku keppendanna hafði verið
glæsilegur — en var hægt að reikna með sigri?
Landsliðið í knattspyrnu hafði verið valið — Vík-
ingurinn mikli, Guðjón Einarsson, alþjóðadómari,
42
var þá formaður landsliðsnefndar — og menn votu
ekki á eitt sáttir eins og oftast, þegar um landslið í
knattspyrnu er að ræða. Þessir leikmenn áttu að verja
heiður Islands gegn Svíum á Melavellinum.
Bergur Bergsson, KR, Karl Guðmundsson, Fiarn,
Haukur Bjarnason, Fram, Sœmundur Gíslason, Fram,
Einar Halldórsson, Val, Hafsteinn GuSmundsson, Val,
Olafur Hannesson, KR, RíkharSur Jónsson, Akranesi,
ÞórSur ÞórSarson, Akranesi, Bjarni GuSnason, Víking
og Gunnar GuSmannsson, KR. Gat þetta liS sigraS
hina sterku Svía?
Dagurinn sniglaðist áfram. Spurningarnar voru
margar og svörin óviss. Flestir hiðu spenntir eftir því
að lýsingin frá Osló hæfist í norska útvarpinu. —
Klukkan varð fimm og lýsingin hófst.
Fyrsta grein var 110 metra grindahlaup. Og hvílik
úrslit. Örn og Ingi urðu í fyrsta og öðru sæti — og
sigurmöguleikar urðu nú miklir, ekki síður gegn
Norðmönnum en Dönum. Síðan 'kom hver greinin af
annarri. Hörður sigraði í 100 metra hlaupinu og
Örn varð þriðji. Gunnar Huseby kastaði kringlunni
lengra en nokkur annar — Torfi stökk hærra en aðrir