Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 4
MEST LESIÐ
Á DV Í VIKUNNI Í FRÉTTUM ER ÞETTA HELST...
Áslaug hringdi í lögreglustjóra
Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir dómsmálaráðherra ræddi
tvisvar við Höllu Bergþóru Björnsdóttur, lögreglustjóra höf
uðborgarsvæðisins, á aðfangadag í kjölfar þess að lögregla
sendi út fréttatilkynningu þar sem greint var frá því að Bjarni
Benediktsson fjármálaráðherra hefði verið viðstaddur sam
komu í Ásmundarsal þar sem grunur léki á að sóttvarnareglur
hefðu verið brotnar. Áslaug segist ekki hafa verið að skipta sér
af rannsókn málsins heldur einungis að ræða um eðli frétta
tilkynningarinnar.
Sprengjuhótun í framhaldsskóla
Nemendum og starfsmönnum Menntaskólans við Hamra
hlíð var brugðið á fimmtudag eftir að sprengjuhótun barst í
tölvupósti. Lögregla var með mikinn viðbúnað við skólann á
fimmtudagsmorgun og gripið var til viðeigandi ráðstafana.
Hótanir voru sendar á þrjár stofnanir til viðbótar. Lögregla
telur sig vita hver stóð að baki hótununum. Samkvæmt póst
inum átti sprengja að vera í skólanum og springa á fimmtudag.
Tilslakanir taka gildi
Tilslakanir á sóttvarnareglum tóku gildi á þriðjudaginn og
mega nú fimmtíu koma saman í stað tuttugu. 200 mega koma
saman á tilteknum stöðum og viðburðum og afgreiðslutími
veitingastaða hefur verið lengdur til klukkan 23.00 á kvöldin.
Tilslakanirnar gilda næstu þrjár vikurnar. Nánast engin til
felli hafa greinst innanlands í vikunni.
Grunaður um alvarleg mistök
Læknir sem starfaði á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja er til
rannsóknar hjá lögreglu grunaður um alvarleg mistök í starfi.
Aðstandendur konu sem lést á sjúkrahúsinu vilja að læknirinn
verði ákærður fyrir manndráp en hann setti konuna á lífs
lokameðferð án þess að forsendur væru fyrir slíkri meðferð.
Læknirinn er ekki með læknisleyfi í dag en starfar á Land
spítala.
Jarðskjálftahrina veldur skaða
Einhverjir urðu fyrir lítils háttar meiðslum og eignatjóni eftir
stóra jarðskjálftahrinu á miðvikudag. Tæplega sextíu skjálftar
af stærðinni 3 eða stærri áttu sér stað yfir daginn og fundust
margir skjálftanna vel á Reykjanesi og höfuðborgarsvæðinu.
Upptök skjálftanna voru á Reykjanesskaganum. Hættustigi
almannavarna var lýst yfir og eru Grindvíkingar uggandi yfir
því að gos sé að hefjast. Sá stærsti var 5,7 á Richterskvarða.
Sögulegt kast
Erna Sóley Gunnarsdóttir kúluvarpari bætti Íslandsmet um
síðustu helgi þegar hún kastaði kúlunni 16,95 metra og bætti
þar með metið um 76 sentimetra. Kastinu náði hún á Confer
ence USAinnanhússmótinu í Bandaríkjunum.
1 Segir sannleikann um kynlíf í Love Island Fyrrverandi keppandi
í raunveruleikaþáttunum Love Island
sagði frá kynlífi keppenda.
2 RÚV minnist á atvikið í Gettu betur – Verður umvafinn kær-
leik segir skólameistari Skóla-
meistari FÁ sagði að vel yrði tekið á
móti Gettu betur liði skólans eftir tapið
gegn Tækniskólanum.
3 Björn Ingi setur prjónahópa í uppnám Björn Ingi Hrafnsson
var í glæsilegri peysu í Silfrinu um
síðustu helgi.
4 Afhjúpar hversu lengi kynlíf ætti að endast – Niðurstaðan
gæti komið þér á óvart Kynlífssér-
fræðingur segir kynlíf alveg mega taka
korter.
5 Hélt að hann væri með kvef en sannleikurinn var allt annar
– Ein vinsælasta tæknivara heims
leyndist í líkamanum Bostonbúi
var með þráðlaust heyrnartól fast í
vélindanu.
6 Tryggvi reynir að halda sér á beinu brautinni: „Eru hræddir
við að ráða mig, það er eðlilegt“
Tryggvi Guðmundsson knattspyrnu-
maður reynir að passa sig á áfengi.
7 Ein frægasta sjónvarpskona Bretlands hermir eftir Gylfa
Sig Amanda Holden sjónvarpskona
hermdi eftir vítaspyrnu Gylfa Sig.
8 Sjáðu myndirnar: Keypti sér samfesting á netinu – Bjóst
ekki við þessu Samfestingur sem
kona keypti skýldi ekki afturhlutanum.
9 Fyrrverandi lögreglumaður stendur við skrif sín tengd
Rauðagerðismálinu og gagnalek-
anum – „Ég braut engan trúnað“
Fyrrverandi lögreglumaður gagnrýndi
aðgerðaleysi lögreglu í máli meints
fíkniefnabaróns.
10 Miklar sögusagnir í Rauða-gerðismálinu – Lögregla
gagnrýnd fyrir upplýsingaskort Lög-
regla hefur verið gagnrýnd fyrir skort á
upplýsingum um Rauðagerðismálið.
BÍLASMIÐJURINN HF.
Þú hitar bílinn með
fjarstýringu og nýtur
þannig þæginda og
öryggis
ALDREI AÐ SKAFA!
MEÐ WEBASTO BÍLAHITARA
4 FRÉTTIR 26. FEBRÚAR 2021 DV