Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 10
10 FRÉTTIR
É g byrjaði að vinna á Kleppspítala tvítugur að aldri árið 1968 og
var þar með annan fótinn á
vöktum og yfirsetum fyrstu
árin í læknanáminu. Það var
hins vegar ekki fyrr en löngu
síðar að ég ákvað að leggja
geðlæknisfræði fyrir mig,“
segir Óttar Guðmundsson geð-
læknir og rithöfundur. Hann
grunaði ekki þá að hann ætti
eftir að skrifa bók um sögu
Klepps og íslenskra geðlækn-
inga.
Óttar var raunar gagnrýn-
inn á geðlækningar á þessum
árum. „Ég var undir áhrifum
svokallaðrar and-geðlæknis-
fræði. Þetta var bylgja eða
stefna sem varð til í kringum
skoska skáldið og lækninn Ro-
nald Laing. Hann og fleiri höf-
undar héldu því fram að sam-
félagið væri sjúkt frekar en
sá sem er sjúkur á geði, sem
kannski væri sá eini heilbrigði
í sjúku samfélagi. Innan and-
geðlæknisfræðinnar var
mikil andstaða gegn lyfjum og
nauðungarvistunum. Ég gagn-
rýndi, ásamt fleirum, geð-
lækningar þess tíma í Lækna-
nemanum sem var málgagn
læknanema. Þetta féll ekki
í kramið hjá ráðamönnum á
geðdeildinni.“
Óttar er kvæntur Jóhönnu
V. Þórhallsdóttur söngkonu og
listmálara. Þau eiga saman-
lagt sex börn úr fyrri sam-
böndum og tíu barnabörn.
„Þetta er dæmigerð íslensk
samsett stórfjölskylda sem við
reynum að halda saman með
handafli. Það gengur yfirleitt
vel þótt stundum gefi á bátinn.
Við fögnum miklu barnaláni.“
Samsamaði sig
hetjum Íslendingasagna
Hann er kominn yfir sjötugt en
er enn við störf sem geðlæknir
á stofu, Landspítalanum og í
Krýsuvík. Óttar hefur gefið
út tólf bækur um fjölbreytileg
efni eins og kynlíf, áfengi,
dauðann og nú síðast um Ís-
lendingasögur. Nýjasta bókin,
Sturlunga geðlæknisins, kom
út fyrir síðustu jól. Hún fjallar
um átök og örlagaflækjur
Sturlungaaldar þar sem alls
kyns hegðunarvandamál og
persónuleikabrestir vaða uppi.
Óttar hefur um árabil skrifað
Bakþanka í Fréttablaðið. Hann
er fylgismaður knattspyrnu-
félagsins Fram og mikill
áhugamaður um fótbolta. „Ég
er stoltur af mínu liði þótt þeir
séu í tómu tjóni núna. Í enska
boltanum held ég með Totten-
ham og þeir eru líka afspyrnu-
lélegir.“
Nýjustu bækur Óttars fjalla
allar um Íslendingasögur og
Sturlungu. Fyrst kom Hetjur
og hugarvíl, síðan Frygð og
fornar hetjur og loks Sturlunga
geðlæknisins. „Ég heillaðist
ungur af Íslendingasögum og
samsamaði mig ákveðnum
hetjum sagnanna, eins og
Gunnlaugi ormstungu, Þor-
móði Kolbrúnarskáldi og
Sturlu Sighvatssyni. Þeir voru
báðir sveimhugar og óheppnir
í kvennamálum. Löngu síðar
ákvað ég að fara inn í heim
þessara bóka með greiningar-
kerfi geðlækninga að vopni
og skoða allar þessar gömlu
hetjur til að geta skilið þær
betur og atferli þeirra.
Ég held að ég sé búinn að
greina allar helstu persónur
sagnanna með misalvarlega
persónuleikaröskun. Ég tel
brýnt að sem flestir fjalli um
þennan bókmenntaarf. Hann
má aldrei verða einkamál bók-
menntafræðinga og fræðasam-
félagsins í Árnagarði. Fari svo
munu Íslendingasögur deyja
út. Þær verða lifandi þegar
venjulegt fólk les þær af áhuga
og hefur á þeim skoðanir.“
Grettir Ásmundsson kemur
mikið við sögu í bókum Óttars.
„Já, Grettir kallinn, var með
ADHD og mótþróaþrjósku-
röskun auk margra annarra
persónuleikabresta. Honum
hefði vegnað betur í lífinu með
viðeigandi meðferð.“
Villta vestrið ráðandi
Reyndar er athyglisbrestur
og ofvirkni hjá fullorðnum
stór hluti af starfi geðlækna.
„Einu sinni var álitið að þessi
sjúkdómur legðist aðeins á
börn en eltist af fólki á 18 ára
afmælisdaginn. Á síðustu 15-
20 árum hafa menn áttað sig
á því að ofvirknilyfin sem
virkuðu svo vel á börn hafa
líka góð áhrif á fullorðna
með þessi einkenni. Á síðustu
árum hefur orðið sprenging í
greiningum á ADHD hjá full-
orðnum og margir komnir á lyf
enda eru Íslendingar lyfjaglöð
þjóð. Miðað við önnur Norður-
lönd er villta vestrið ráðandi í
málaflokknum hérlendis enda
mun auðveldara að fá þessa
greiningu,“ segir hann.
Erla
Hlynsdóttir
erlahlyns@dv.is
Samfélagið hefur breyst
með tilkomu alls þessa áreitis
á heilann frá öllum þessum
snjalltækjum sem fólk notar í
dag. „Allir eiga alltaf að vera
ínáanlegir sem eykur streitu
og minnkar einbeitingu. Það
er erfitt að einbeita sér að ein-
hverju verkefni þegar kveikt
er á öllum snjalltækjunum.
Venjulegur heili á erfitt með að
ná utan um allar þessar óraun-
hæfu kröfur sem til hans eru
gerðar. Allavega þurfa ekki
allir á Ritalini að halda sem
eiga erfitt með allt upplýs-
ingaflóðið. Fólk þarf að læra
að skipuleggja sig, einbeita sér
að einu í einu og slökkva á sím-
unum reglulega. Fólk nennir
þó sjaldnast að hlusta á slíkar
ráðleggingar heldur vill fá sín
lyf og engar refjar.“
Sprenging hjá
transteyminu
Fyrir liðlega 20 árum var
fyrsta transteymið sett sam-
an hér á landi af Ólafi Ólafs-
syni þáverandi landlækni.
„Hann hóaði í nokkra lækna
sem hann þekkti og bað þá
að aðstoða sig við þennan
málaflokk. Þetta var íslenska
leiðin. Ástæðan fyrir stofnun
starfshópsins var að trans fólk
vildi ekki lengur fara til Dan-
merkur og Svíþjóðar til að
leita sér aðstoðar heldur vildi
fá hana í sínu heimalandi. Ég
hafði enga þekkingu á þessum
málaflokki á þessum árum en
aflaði mér kunnáttu, aðallega
í Svíþjóð.“
Óttar er einn eftir af upp-
runalega teyminu og margt
hefur breyst á þessum árum.
„Í upphafi reiknuðum við með
því að nýgengið yrði tveir til
fimm einstaklingar á ári.
Á síðasta ári voru þeir hins
vegar á milli sextíu og sjötíu.
Þetta er ótrúleg sprenging
sem hefur líka orðið í ná-
grannalöndunum. Ýmislegt
annað hefur líka breyst. Mun
yngri einstaklingar leita til
teymisins og hlutfall líffræði-
legra kvenna, trans manna,
hefur aukist mikið. Líffræði-
legu kynjahlutföllin eru orð-
in nokkuð jöfn en í upphafi
voru þrír til fjórir líffræði-
legir karlar, trans konur,
fyrir hverja líffræðilega konu,
trans mann. Auk þess hefur
kynsegin fólki fjölgað mikið
en það eru einstaklingar sem
samsama sig hvorki körlum né
konum og vilja nota persónu-
fornafnið hán.
Þetta þýðir að meðferðin
Foreldrar
Óttars hvíla
í Fossvogs-
kirkjugarði.
Hann fer oft
að leiði þeirra,
biðst fyrir og
þakkar fyrir
lífið sem hann
hefur fengið.
MYND/ERNIR
Alltaf jafn hissa
þegar einhver
móðgast
Óttar Guðmundsson geðlæknir er ófeiminn við að viðra um-
deildar skoðanir sínar en skilur ekkert í því hvað hann er um-
deildur. Hann er þakklátur fyrir edrúmennskuna en á að baki
tvær sjálfsvígstilraunir sem báðar voru tengdar drykkju.
26. FEBRÚAR 2021 DV