Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 15
FRÉTTIR 15DV 26. FEBRÚAR 2021
MYND/INSTAGRAM
MYND/YOUTUBE
á samfélagsmiðlum. Móðirin
hafði deilt myndum og mynd-
böndum af dóttur sinni til að
vekja athygli á baráttu sinni
við barnaverndarnefnd vegna
barnsins.
„Börn hafa rétt á friðhelgi
einkalífsins eins og við hin
og það er alvarlegt að það sé
verið að setja allar þessar
upplýsingar um börn, oft
mjög viðkvæmar, eins og um
líðan þeirra og greiningar. Þó
að nöfn barnanna komi ekki
fram, eins og þegar foreldri
deilir einhverjum viðkvæm-
um upplýsingum í lokuðum
Facebook-hóp, þá er foreldrið
að tala um þessa hluti undir
nafni og auðvelt að rekja það
til barnsins. Við þurfum að
fara að fara miklu varlegar en
við gerum. Það er búin að vera
heilmikil umræða um þetta á
síðustu árum, en það er meiri
ástæða til þess núna en áður,“
segir Salvör.
Markaðssett tekjulind
Talið berst að því þegar börn
eru notuð af foreldrum sínum
í markaðslegum tilgangi. Eins
og þegar foreldri fer í sam-
starf með barnavörufyrirtæki
og birtir myndir eða mynd-
bönd af barninu með vörunum
gegn greiðslu. Salvör segir að
henni þykir það óviðeigandi.
„Spurningin er þá, ef það er
ekki hægt að höfða til dóm-
greindar fólks og skilnings á
réttindum barna, þá er mögu-
legt að það þurfi að grípa til
aðgerða eins og að setja lög,“
segir hún.
„Foreldrar hafa rétt á að
taka ákvarðanir hvað varðar
hag barna, en það þýðir ekki
að þeir hafi ótakmarkaðan
rétt vegna þess að börnin eiga
líka sjálfstæð réttindi. Þetta
snýst um það. Þau hafa rétt
á að friðhelgi þeirra sé virt.
Með tilkomu samfélagsmiðla
hafa komið upp ný álitaefni og
foreldrar verða að axla ábyrgð
sína og vernda börnin sín,“
segir Salvör og bætir við:
„Svo má ekki gleyma að
allar þessar myndir sem við
erum að deila á Facebook og
Instagram, þær eru í eigu
erlendra fyrirtækja. Þú átt
ekkert þessar myndir eftir
að þú setur þær þarna inn og
það hafa jafnvel allir aðgang
að þeim. Barnið verður ber-
skjaldað. Núna er að vaxa upp
kynslóð sem hefur alist upp við
þetta frá blautu barnsbeini og
það er alveg gríðarlegt magn
af myndum af börnum á sam-
félagsmiðlum, og margar
þeirra eiga ekkert erindi þang-
að. Það eru ekki bara foreldrar
sem deila myndum af börnum
á samfélagsmiðlum, heldur
líka ömmur og afar, og oft án
nokkurrar umhugsunar og því
þarf að breyta.“ n
Viðmiðin eru hugsuð sem heilræði fyrir foreldra og aðra
aðstandendur barna, vegna umfjöllunar um börn á sam-
félagsmiðlum. Í þeim er fjallað um sjónarmið sem gott
er að hafa í huga þegar myndum og öðrum persónuupp-
lýsingum um börn er deilt á samfélagsmiðlum.
Foreldrar og aðrir aðstandendur barna eru sérstaklega
hvattir til að hugsa sig um áður en færslum um börn
er deilt á samfélagsmiðlum, með friðhelgi barnsins að
leiðarljósi. Viðmiðin byggja á grunngildum Barnasátt-
mála Sameinuðu þjóðanna um réttindi barna.
FRIÐHELGI
Öll börn eiga rétt á friðhelgi einkalífs, samkvæmt Barna-
sáttmálanum og stjórnarskrá Íslands, rétt eins og full-
orðnir – bæði innan heimilis og utan. Börn eiga rétt á að
njóta friðhelgi um lífshætti sína og einkahagi. Það sama
gildir um tilfinningalíf barna, tilfinningasambönd þeirra
og trúnaðarsamskipti.
SAMÞYKKI
Mikilvægt er að fá samþykki hjá börnum áður en talað er
um þau á samfélagsmiðlum eða birtar af þeim myndir, að
teknu tilliti til aldurs þeirra og þroska. Hafa þarf í huga
að börn kunna að hafa skoðun á umfjöllun um þau eða
myndbirtingum af þeim, þrátt fyrir að vera ung að aldri
og að taka ber tillit til skoðana þeirra.
ÁBYRGÐ
Foreldrar, forsjáraðilar og aðrir sem annast börn bera
ábyrgð á velferð þeirra og eiga að vera meðvitaðir um
mannréttindi barna. Allt sem birt er á netinu má finna síðar
og getur haft áhrif á líf barnsins með ýmsum hætti. Er því
mikilvægt að setja sig í spor barnsins og hugsa um hvaða
áhrif myndir eða umfjallanir geta haft á barnið síðar.
ÖRYGGI
Hafa ber í huga að öryggi mynda á netinu verður aldrei
fulltryggt. Sá möguleiki er alltaf fyrir hendi að myndum
eða umfjöllun verði dreift, jafnvel af lokuðum síðum.
Einnig er áríðandi að upplýsingar um staðsetningu og
GPS-hnit fylgi ekki myndum sem deilt er af börnum á
samfélagsmiðlum þannig að óviðkomandi aðilum verði
ekki kunnugt um staðsetningu þeirra.
VIÐMIÐ VEGNA UMFJÖLLUNAR UM BÖRN Á SAMFÉLAGSMIÐLUM
Börn hafa rétt á
friðhelgi einkalífs-
ins eins og við hin
og það er alvarlegt
að það sé verið að
deila öllum þessum
upplýsingum um
börn.
KYLIE JENNER
Kylie Jenner er með yfir 217 millj-
ónir fylgjenda á Instagram og
deilir reglulega myndum af þriggja
ára dóttur sinni.
MYKA STAUFFER
Áhrifavaldurinn Myka Stauffer
byggði YouTube-feril sinn á því að
ættleiða einhverfan dreng frá Kína
árið 2017. Drengurinn fékk nafnið
Huxley og var stjarnan á YouTube-
síðu hennar. Hún leyfði fylgjendum
sínum á YouTube og Instagram að
fylgjast með ferlinu frá a-ö. Huxley
var meginþema samfélagsmiðla
hennar sem leiddi til samstarfs við
ýmis fyrirtæki. Til að setja málið í
samhengi, þá gerði Myka 27 mynd-
bönd um ættleiðingarferlið og þar að
auki 13 myndbönd um aðstæður eftir
ættleiðinguna. Myka og eiginmaður
hennar, James, greindu frá því í maí
í fyrra, að þau hefðu „skilað“ syni
sínum þar sem þau „réðu ekki lengur
við sérþarfir hans“. Málið vakti mik-
inn óhug og voru hjónin harðlega
gagnrýnd.
MIKIÐ HITAMÁL
Fjöldi íslenskra áhrifavalda er í samstarfi við barnavörufyrirtæki. Vörurnar eru auglýstar á myndum af börnunum
og talsverð umræða hefur skapast um það hvort verið sé að brjóta gegn friðhelgi barnanna.
MYND/GETTY