Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Side 17
HEIMILD:
STJÓRNARRÁÐ
ÍSLANDS
LÖG OG EIGENDASTEFNA GEFA SKÝR FYRIRMÆLI
UM HVERNIG STAÐIÐ SKULI AÐ SÖLUFERLI
Við sölu skal megináhersla lög á
• Gagnsæi
• Hlutlægni
• Jafnræði
• Hagkvæmni
DV 26. FEBRÚAR 2021 EYJAN 17
þetta hefur til dæmis Bjarni
Benediktsson bent í ræðum
sínum á Alþingi um málið og
er það óumdeilt að regluverk
í kringum banka hefur verið
hert til muna og þjóðfélags-
andinn er með þeim hætti að
hegðun banka og bankamanna
sambærileg því sem tíðkaðist
2007 og á árunum þar á undan
yrði aldrei liðin.
Það breytir þó ekki þeirri
staðreynd að almenningur
stígur varlega til jarðar í
þessum málum og hefur sínar
efasemdir. Það blasti til dæmis
við í könnun Gallup um málið
frá því fyrr á þessu ári. Kom
þá á daginn að aðeins fjórðung-
ur landsmanna styður söluna,
og meirihluti þeirra eru Sjálf-
stæðismenn.
Áhersla lögð á
dreifða eignaraðild
Hluti af söluferlinu hefur verið
að óska eftir umsögnum bæði
Seðlabankans og Samkeppnis-
eftirlitsins. Báðar voru þær já-
kvæðar en þó vöktu orð Sam-
keppniseftirlitsins sérstaka
athygli. Sagði þar í minnisblað-
inu að huga þyrfti að dreifðri
eignaraðild að bankanum til
þess að tryggja raunverulega
samkeppni á markaði.
Þessar ábendingar virðast
hafa fangað athygli þingsins,
því í nefndaráliti bæði fjár-
laganefndar og efnahags- og
viðskiptanefndar var niður-
staðan sú að heimila sölu á
25-35% hlut í bankanum.
Það þýðir að seljist minna en
25% hlutur verður ekkert af
sölunni, og ekki verður leyft
að selja meira en 35%. Þá er
það jafnframt lagt til að há-
marka ætti hlut hvers einstaks
kaupanda við 2,5 til 3,0%. Enn
fremur er það lagt til að komi
til skerðingar á hlutum vegna
umframeftirspurnar, eins og
gerðist hjá Icelandair þegar
eftir fleiri hlutum var óskað
en til sölu voru, komi aðeins til
skerðingar hjá þeim sem gerðu
stór tilboð.
Fyrir liggur að þetta er
fjarri því sem Sjálfstæðis-
flokkurinn vildi fyrst gera
og ljóst að hann vildi ganga
lengra í sölu hluta ríkisins í
bankakerfinu en hann komst
upp með í stjórnarsamstarfi
með Vinstri grænum.
Fulltrúar allra stjórnarand-
stöðuflokka nema Viðreisnar
í þingnefndunum tveimur
lögðust gegn sölunni. Fulltrúi
Viðreisnar sagðist þó vera
sammála tillögunni, en vildi
útfæra hana öðruvísi.
Ferðalagið er hafið
Í dag stendur til að fram-
kvæma söluna í byrjun sumars
og hafa mánaðamótin maí/júní
verið nefnd sem líklegur tími.
Í þarsíðustu viku lá fyrir að
24 fjármálafyrirtæki gerðu
tilboð í að veita Bankasýslu
ríkisins fjármála- og söluráð-
gjöf í tengslum við söluna. Þar
af eru 14 erlend fyrirtæki.
Næsta skref í söluferlinu er
því að Bankasýslan velji sér
ráðgjafa sem mun aðstoða við
skrefin þar á eftir. Eitt megin-
verkefni hans verður meðal
annars að framkvæma verð-
mat og veita ráðgjöf um verð-
lagningu hluta sem boðnir
verða út.
Ef allt fer sem horfir má bú-
ast við því að fjárfestum og al-
menningi öllum standi til boða
að kaupa hlutabréf í Íslands-
banka af ríkinu á allra næstu
mánuðum. n
Á MEÐFYLGJANDI MYNDUM MÁ SJÁ FERLIÐ OG ÁÆTLAÐA TÍMALÍNU ÞESS MEÐ HLIÐSJÓN AF ÁKVÆÐUM LAGANNA
Heimild í
fjárlögum
Tillaga
Bankasýslu
Ákvörðun
ráðherra um að
hefja sölu
Afstaða ráðherra
til fyrirliggjandi
kauptilboðs
Greinargerð
ráðherra
Samráð við
þingnefndir
Umsögn
Seðlabanka
Íslands
Sölumeðferð
eignarhluta
Skýrslugjöf
ráðherra
Holtasmári 1 · Kópavogur www.ledtec.is
EINFALT
LÉTT OG
ÓDÝRT!LÉTTLÍNULJÓS
VERLSLUNARHÚSNÆÐIÐ · BÍLSKÚRINN · VERKSTÆÐIÐ · LAGERINN · HESTHÚSIÐ
MARGAR STÆRÐIR · EINFALT AÐ SETJA UPP · LÆGRI REKSTARKOSTNAÐUR