Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 20
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
Úr jakkafötunum
í jogginggallann
Ingi Torfi og Linda Rakel eru búin að leggja jakkafötin á hilluna. MYNDIR/AÐSENDAR
Þ að var í mars í fyrra, þegar COVID -far-aldurinn var kominn
á flug hér á landi, að Ingi
Torfi Sverrisson og kærasta
hans, Linda Rakel Jónsdóttir,
ákváðu að skipta alfarið um
gír. Þau voru bæði í góðu
starfi sem viðskiptafræðingar
en ákváðu að stofna sitt eigið
fyrirtæki, ITS Transform-
ation, sem aðstoðar fólk við
að ná markmiðum sínum með
breyttu mataræði.
Ingi ræddi við blaðamann
um þessa örlagaríku kúvend-
ingu og macros-aðferðina sem
hefur skilað viðskiptavinum
hans ótrúlegum árangri og
verið þeim heilmikill skóli.
Matarbókhald
M ac r o s - a ðfer ð i n , e ð a
makrósu mataræðið, byggir
á því að vigta og skrá allt
sem þú lætur ofan í þig til
að tryggja að þú sért að fá
þá næringu sem þú þarft í
réttum hlutföllum. „Með að-
ferðinni sérðu hvað þú ert að
borða, hvort og þá hvað þú ert
að gera vitlaust og þú getur þá
bætt úr því.“
Að skrá macros getur verið
þó nokkur handavinna, en
vikta þarf matinn og skrá
hann niður í til dæmis smáfor-
rit á borð við MyFitness Pal.
„Þetta er smá vinna og
púsluspil, en vinna sem skilar
miklu til baka. Við viljum öll
ná árangri og leggja fram
vinnuna en oft erum við ekki
að fara rétt að hlutunum,
erum að borða of lítið, svelta
okkur, fasta, drekka bara safa
þegar í rauninni ættum við að
borða mikið meira til að ná
þeim árangri sem við stefnum
að.
Þetta lærir þú betur þegar
þú tekur tímann og skráir það
sem þú ert að borða. Síðan ef
þú vilt hætta að nota þessa
aðferð, eftir kannski tvo, þrjá
mánuði, þá býrðu samt að því
að hafa mikið betri þekk-
ingu á því hvernig næring er
í mat og ert ekki að sveiflast
í þyngd eins og jójó. Þú veist
mikið meira um mat og að þú
getur kannski leyft þér pítsu
á föstudagskvöldi en kannski
ekki pítsu, nammi og bjór.“
Aðferðin byggir ekki á
því að banna neinn mat, að-
eins að auka meðvitund um
hvaða næring er í matnum og
hversu mikið við þurfum af
honum.
„Ef þú fylgist ekki með
heimilisbókhaldi þínu þá get-
ur þú lent í því að fara yfir á
reikningnum. Eins getur þú
verið útsjónarsamur og lagt
til hliðar til að eiga fyrir ein-
hverju sem þig langar, utan-
landsferðinni eða nýjum bíl.
Þetta er eins með mataræð-
ið.“
Ingi Torfi og Linda Rakel ákváðu að umturna lífi sínu
í mars í fyrra, þrátt fyrir góð og örugg störf í heims-
faraldri. Þau sjá ekki eftir þeirri ákvörðun.
Tölur ljúga ekki
„Þetta er bara útsjónarsemi
og tölur. Tölur ljúga ekki
– þetta er setningin okkar.
Þú ert að vinna með tölur
og staðreyndir og þú skráir
þínar tölur til að auka með-
vitundina og tilfinninguna
fyrir því hvað þú lætur ofan
í þig. Það er hægt að leyfa
sér allan mat, þó að við Linda
hvetjum fólk vissulega til að
velja holla fæðu. En ástæðan
fyrir því að fólk endist í
þessum lífsstíl er sú að það
er rými fyrir alla fæðu, þetta
snýst ekki um að útiloka mat
heldur að læra um hann. Þú
getur fengið þér það sem þér
finnst gott, steik og bernaise-
sósu, með því að vera útsjón-
arsamur.“
Macros byggir á næringunni
sjálfri en ekki boðum og bönn-
um. Til að mynda er ekki farið
þá leið að forðast sykur eins
og heitan eldinn, líkt og margt
tísku-mataræði gerir í dag.
„Það tekur enginn sykur
út allt lífið. Við viljum hafa
sykur í lífinu að einhverju
leyti. Við erum ekki megr-
unarráðgjöf. Við erum ekki
að segja fólki hvað það á að
borða. Lærdómurinn felst
í því að hver og einn byggir
sitt mataræði út frá sjálfum
sér og sínum þörfum. Þetta
snýst um að einstaklingurinn
ákveður hvað hann lætur
ofan í sig og hann ber ábyrgð
á sinni neyslu. Þetta er frjáls
aðferð en þú þarft að gæta
að ákveðnum tölum. Þetta er
rammi fyrir fólk til að miða
við.“
Algengt að fólk borði of lítið
Kostirnir við macros-aðferð-
ina eru fjölmargir. Þau geta
hjálpað fólki að ná enn betri
árangri í hreyfingu og heilsu
og aukið orku.
„Þetta hefur sýnt sig og
sannað hjá okkur, íþrótta-
fólk hefur komið til okkar úr
fremstu röðum í sínum íþrótt-
um en náð enn betri árangri
því oft hefur mataræði þess
ekki hentað metnaði þess í
íþróttum.
Ég hef æft rosalega mikið,
CrossFit, í mörg ár. Það var
ekki fyrr en ég fór að skrá
macros sem ég fann virki-
legan mun og fékk betur út-
borgað fyrir mína vinnu.“
Ingi segir fólk sem leitar
til hans gjarnan komast að
því að það hafi hreinlega ekki
verið að innbyrða næga nær-
ingu.
„Merkilegt líka er að það
er rosalega algengt að fólk er
að borða alltof lítið. Það er al-
gengt að fólk sem byrjar hjá
okkur hafi samband og spyrji:
Hvernig á ég eiginlega að ná
að borða allan þennan mat?“
Eins getur aukin meðvitund
fyrir næringu í gegnum mac-
ros leitt til þess að fólk létt-
ist, en þetta er engin skyndi-
lausn. „Þetta gerist ekkert á
ógnarhraða heldur á réttum
hraða.“
Pepp-camp en
ekki bootcamp
Það er þó ekki bara macros-
aðferðin sem Ingi og Linda
leggja áherslu á heldur einnig
andlegi þátturinn.
„Við látum líka fólk gera
verkefni sem lúta að hugar-
fari. Sjálfstraust, þakklæti,
hrós, jákvæðni – þetta er allt
inni í aðferðafræðinni hjá
okkur. Við viljum að fólk hugsi
inn á við, þetta er ekki bara
20 FÓKUS 26. FEBRÚAR 2021 DV