Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 21
FÓKUS 21
ELLEFU MÁNUÐIR
Guðmundur Egill byrjaði hjá Inga og Lindu fyrir ellefu mánuðum.
Í HÖRKU FORMI
Verkfræðingurinn Katrín Edda
Þorsteinsdóttir er meðal ánægðra
viðskiptavina.
ÞRÍR MÁNUÐIR
Ása Björk náði frábærum árangri á þremur mánuðum.
spurning um macros-mat-
aræði heldur skiptir andlegi
þátturinn miklu. Við viljum
að fólki líði vel. Sýni þakk-
læti fyrir það sem það hefur
í kringum sig, hugsi um góða
hluti og fái hrós.“
Ingi þekkir sjálfur mikil-
vægi þess að huga að andlegu
hliðinni eftir erfiðan kafla í
lífinu.
„Það var erfiður kafli í
lífi mínu, ég gekk í gegnum
skilnað og leið ekki nægilega
vel og fór að huga að andlegu
hliðinni, reyna að finna eitt-
hvað til að ná jafnvægi.
Þá prófaði ég hugleiðslu
sem minnkaði áreiti, gaf betri
einbeitingu og slökkti á nei-
kvæðum hugsunum. Ég hef
haft mikinn áhuga á þessu
síðan, að peppa fólk upp, efla
og hvetja áfram. Þetta fyrir-
tæki varð til út frá hugleiðslu,
hún gaf mér sjálfstraustið
og trúna á sjálfan mig til að
kýla á þetta. Ja, það og líka
kærastan mín sem hvatti mig
áfram.“
Fórnuðu öruggri
vinnu í COVID
Það vakti furðu margra úr
nærumhverfi Inga og Lindu
þegar þau ákváðu að segja
upp störfum sínum og stofna
eigið fyrirtæki.
„Ég var búinn að vera í sex-
tán ár í sömu vinnunni og ég
er rosalega vanafastur og lítið
fyrir breytingar. En þetta er
eitthvað sem ég búinn að vera
að gera með mínum vinum í
nokkurn tíma, að hjálpa með
mataræðið.
Svo eru tveir aðilar sem
spyrja mig hvort þeir megi
ekki borga mér fyrir að kenna
þeim þetta. Það fannst mér
fyndið, borga mér fyrir að
kenna eitthvað? Þá förum við
Linda að ræða þetta og hún
hvetur mig til að kýla á þetta,
byrja að auglýsa og sjáðu hvað
gerist. Þá byrjar boltinn að
rúlla.
Þarna er ég með örfáa við-
skiptavini og er enn í fullri
vinnu, en þeim fjölgar hratt.
En svo fer þetta að vinda upp
á sig og eftirspurnin var það
mikil að í ágúst var ég kom-
inn með biðlista fram í nóvem-
ber.
Þá sáum við að þetta væri
eitthvað sem væri eftirspurn
eftir og væri kannski hægt að
lifa á. Ég og Linda veltum því
þá fyrir okkur hvort annað
okkar myndi hætta í vinnunni
og einbeita sér að þessu, en þá
hugsaði ég að ef þetta væri að
ganga svona vel núna, hvað
gætum við gert ef við færum
bæði að einbeita okkur að
þessu.
Svo við tökum sénsinn,
segjum bæði upp vinnunni
okkar og kýlum á þetta. Okk-
ur fannst við ekki hafa efni á
öðru, svona tækifæri bjóðast
ekki oft.
Auðvitað varð fólkið í
kringum okkur hissa. Það var
COVID og við með örugga
vinnu. En við sáum það bara
að þetta væri að virka það vel.
Umsagnir viðskiptavina voru
ótrúlega jákvæðar. Á hverjum
degi fáum við skilaboð frá
fólki sem er svo ánægt og
þakklátt fyrir þessa aðferð og
þetta samfélag sem við höfum
byggt upp. Þetta er mjög gef-
andi. Í dag eru níu starfsmenn
í þessu fyrirtæki.“
Jákvætt orðspor
Ingi segir að viðskiptavinirnir
hafi að mestu séð um að aug-
lýsa fyrirtækið, sem er enn
ekki komið með heimasíðu en
fagnar þó mikilli velgengni út
frá ótrúlega jákvæðum um-
sögnum og meðmælum við-
skiptavina. Fjölmargir þekkt-
ir einstaklingar eru meðal
viðskiptavina ITS Transform-
ations, svo sem tónlistarkonan
Greta Salóme, knattspyrnu-
konan Glódís Perla Viggós-
dóttir, tónlistarmennirnir
Friðrik Dór og Aron Can,
Ívar Guðmundsson útvarps-
maður, og handboltamaðurinn
Arnór Þór Gunnarsson. Síðan
er Sveindís Jane knattspyrnu-
kona að byrja hjá okkur.
Og það er dásamlegt. Þess
vegna erum við svona þakklát
og glöð og vöndum okkur við
þetta.“ n
Macros stendur fyrir þrjá flokka af
orkugjöfum, kolvetni, fitu og pró-
tein. Macros-mataræðið byggir á
því að fá orku sína, eða hitaeiningar,
í ákveðnum hlutföllum.
Það er einstaklingsbundið hvert hlut-
fall orkugjafanna á að vera. Þættir
sem hafa áhrif eru til dæmis hæð,
þyngd, virkni, aldur og markmið.
Lengi hefur tíðkast að telja kaloríur
til að halda utan um mataræði en
macros-aðferðin byggir á því að ekki
sé nóg að fylgjast með hitaeiningum
heldur skipti máli hvaðan hitaeining-
arnar koma.
Kolvetni er orkugjafinn sem líkaminn
er hrifnastur af. Öll kolvetni eru þó
ekki sköpuð jöfn og geta verið annað
hvort einföld eða flókin.
Prótein er mikilvægasti orkugjafinn,
samkvæmt vöðvafjöllunum í rækt-
inni. Vöðvafjöllin hafa nokkuð til síns
máls. Prótein eru nauðsynleg líkam-
anum, sérstaklega við uppbyggingu
vöðva.
Fita er öflugur orkugjafi. Á meðan
hvert gramm af próteini og kolvetni
inniheldur 4 hitaeiningar þá inniheld-
ur hvert gramm af fitu 9 hitaeiningar.
Hollar fitur eru líkamanum nauðsyn-
legar sérstaklega við að vinna víta-
mín úr fæðunni.
Dæmi:
Algengt viðmið fyrir fullorðna mann-
eskju eru eftirfarandi hlutföll:
10-35% PRÓTEIN
45-65% KOLVETNI
20-35% FITA
Sumum þykir gott að byrja með því
að skipta jafnt á milli orkugjafanna
þriggja.
Dæmi:
Orkuþörf konu um þrítugt er um
2.200 hitaeiningar á dag. Ef hún
skiptir orkugjöfunum þremur í þrennt
þá ætti hún að fá um 730 af hitaein-
ingum úr hverjum orkugjafa.
Að telja macros er því nokkuð mikil
handavinna því yfirleitt er magn
orkugjafanna í fæðu aðeins gefinn
upp miðað við ákveðna þyngd.
Því þarf að finna út hversu þungur
maturinn er til að reikna út hitaein-
ingafjöldann og hversu mikið af þeim
kemur frá hverjum orkugjafa.
Sem betur fer eru vigtir orðnar nokk-
uð litlar og meðfærilegar í dag, en þú
verður líklega ekki vinsælasta mann-
eskjan á veitingastaðnum þegar þú
dregur hana upp úr handtöskunni.
1 BANANI
Hitaeiningar
105
Kolvetni
96%
Fita
0%
Prótein
4%
1 VANILLU KREMKEX
Hitaeiningar
2
Kolvetni
63%
Fita
33%
Prótein
5%
EGILS GULL 0,5 L DÓS
Hitaeiningar
225
Kolvetni
97%
Fita
0%
Prótein
3%
HVAÐ ERU MACROS?
MYND/GETTY
DV 26. FEBRÚAR 2021