Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Qupperneq 26
D exter Morgan er sér-fræðingur í blóðferla-greiningum hjá lög-
reglunni í Miami á daginn.
Á nóttinni hleypir hann þó
myrkum hvötum sínum laus-
um og myrðir óþokka. Eng-
inn þarf þó að óttast Dexter,
enda er hann ekki til. Hann
er pers óna í skáldsögum og
sjónvarpsþáttum.
Mark Twitchell horfði
á sjónvarpsþættina og las
skáldsögurnar líkt og svo
margir aðrir. En í staðinn
fyrir að einblína á skemmt-
anagildi þáttanna ákvað hann
að líta á þá sem kennslustund.
Spilaborgin
Árið 2008 gerði hinn kanad-
íski Mark Twitchell sína
fyrstu hrollvekju, átta mín-
útna stuttmynd. Hann hafði
lengi dreymt um að verða
kvikmyndagerðarmaður.
Myndina kallaði hann „Ho-
use of Cards“ eða „Spila-
borgina“. Myndin fjallar um
mann sem leitar að ástinni á
stefnu móta síðu. Hann fer til
fundar við konu, sem hann
kynntist í gegnum síðuna, í
bílskúr nokkrum en þar bíður
hans hrottalegur dauðdagi. Í
stað konu er það maður sem
tekur á móti honum í plast-
þöktum bílskúrnum. Morð-
inginn bindur fórnarlamb sitt
við járnborð, drepur hann og
heggur í spað með kjöthníf.
Óhreinir diskar
Nokkuð eðlilegur söguþráður
hrollvekju. En töluvert óeðli-
legur höfundur.
Nokkrum vikum síðar hélt
maður að nafni John Brian
Altinger, kallaður Johnny,
til fundar við konu sem hann
hafði kynnst á stefnumótasíð-
unni Plenty of Fish. Vanda-
málið var þó að umrædd kona
var, líkt og Dexter Morgan,
skálduð persóna sem ekki var
til í raunveruleikanum.
Þremur dögum síðar barst
vinum Johnnys skilaboð úr
síma hans. Johnny sagðist ást-
fanginn og ætla að flytja um-
svifalaust til Suður-Ameríku.
Þegar vinirnir föluðust eftir
frekari útskýringum á þess-
ari fyrirvaralausu ákvörðun
fengust engin svör.
Á sama tíma barst tölvu-
póstur frá Johnny til yfir-
manns hans þar sem hann
sagði starfi sínu lausu. Þegar
yfirmaðurinn svaraði póst-
inum og bað um reiknings-
númer fyrir launauppgjörið
barst ekkert svar.
Vinir Johnnys létu ekki þar
við sitja. Eftir að hafa reynt
árangurslaust að ná sambandi
við vin sinn ákváðu þeir að
brjótast inn í íbúð hans til
að kanna aðstæður. Þar inni
sáu þeir óhreina diska, fundu
vegabréf Johnnys og engin
ummerki um að pakkað hefði
Erla Dóra
Magnúsdóttir
erladora@dv.is
verið niður til langferðar.
Ekkert sem renndi stoðum
undir það að Johnny væri ást-
fanginn í Suður-Ameríku.
Þeir hringdu því strax á lög-
reglu.
Grímuklæddur
árásarmaður
Viku áður en Johnny hélt af
stað á stefnumótið varð mað-
ur að nafni Gilles Tetreault
fyrir árás. Hann hafði, líkt
og Johnny, mælt sér mót við
konu í gegnum stefnu móta-
síðu. Þau mæltu sér mót í
bílskúr nokkrum en þegar
þangað var komið beið Gil-
les ekki kona heldur grímu-
klæddur karlmaður vopnaður
rafbyssu.
Gilles varð fullljóst að frá
þessari árás átti hann ekki að
sleppa lifandi. Hann sá allt líf
sitt spilast fyrir augum sér og
hélt að þetta væri sitt síðasta.
Þá vaknaði baráttuviljinn.
Gilles var ekki tilbúinn að
láta lífið þarna í þessum bíl-
skúr. Með herkjum tókst hon-
um að losna undan árásar-
manninum og smeygja sér út
úr bílskúrnum. Hann ætlaði
að hlaupa burt en skrikaði þá
fótur og grímuklæddi maður-
inn náði aftur taki á honum.
„Ég ákvað að ég yrði að
berjast á móti. Ég vildi frek-
ar deyja þannig heldur en að
deyja með þeim hætti sem
hann hafði áformað,“ sagði
Gilles síðar fyrir rétti.
Aftur náði Gilles að losna
og flýja. Í þetta skiptið datt
hann ekki og tókst að finna
eldri hjón sem voru úti að
viðra hundinn sinn. Gilles
grátbað þau um aðstoð.
Morðherbergið
Gilles slapp lifandi frá árás-
inni. Johnny var ekki eins
heppinn. Stefnumótið sem
hann ætlaði á reyndist vera
við sama grímuklædda mann
í sama bílskúr. Þegar Johnny
kom inn í bílskúrinn beið
hans skelfileg sjón. Allur bíl-
skúrinn var klæddur plasti
og í honum miðjum var stórt
stálborð. Nokkur veginn í
samræmi við það hvernig
skáldaði morðinginn Dexter
Morgan tók á móti fórnar-
lömbum sínum.
Johnny náði þó ekki að
flýja því hann var sleginn í
rot og lét svo lífið á stálborð-
inu þar sem grímuklæddi
maðurinn misþyrmdi líkama
hans og síðar líki með flug-
beittum veiðihníf. Morðing-
inn reyndi svo að losa sig við
líkamsleifarnar með því að
brenna þær, en vissi ekki að
slíkur bruni krefst gífurlegs
hita og gífurlegs tíma. Lík-
lega eru leiknir sjónvarps-
þættir ekki besta leiðin til að
læra um slík mál.
Morðinginn gafst að lok-
um upp og kom restinni af
Johnny fyrir í holræsi.
Eftir þetta fór morðinginn
heim, settist við tölvuna og
hóf að skrifa sögu. Hún hófst
á eftirfarandi orðum:
„Þessi saga er sannsögu-
leg. Nöfnum og efnisatriðum
hefur lítillega verið breytt til
að vernda þann seka. Þetta
er sagan um það hvernig ég
varð raðmorðingi.“
Lék sér með höfuðkúpuna
Morðinginn hélt að hann
hefði framið hinn fullkomna
glæp. En hann hafði ekki gert
ráð fyrir einu. Johnny hafði
nefnilega tilkynnt vinum sín-
um hvert hann væri að fara á
umrætt stefnumót. Lögregla
var því ekki lengi að hafa upp
á bílskúrnum og komast að
því hver væri skráður fyrir
honum. Það reyndist vera
kvikmyndagerðarmaðurinn
Mark Twitchell.
Í tölvu Twitchells fannst
skjal þar sem hann hafði
með nákvæmum hætti skráð
niður hvert einasta smáatriði
um morðið, meðal annars
hvernig hann hefði leikið sér
með höfuðkúpu og þar skrif-
aði Twitchell einnig ítarlega
um hvernig það væri að hluta
niður lík og hvernig líffærin
lögðust saman er hann skar
í þau. „Ef ég hefði þefskyn
þá þætti mér þetta sennilega
viðbjóðslegt. En mér finnst
þetta bara heillandi.“
Sönnunargögnin gegn
Twitchells voru mörg.
Erfðaefni úr Johnny fannst
í fatnaði hans og bifreið og
í bifreiðinni fannst einnig
morðvopnið auk minnismiða
sem Twitchell hafði skrifað
til að minna sjálfan sig á að
hreinsa „morðherbergið“ og
líka til að minna sig á að halda
fram hjá eiginkonu sinni.
Það tók kviðdóminn að-
eins fimm klukkustundir að
komast að niðurstöðu í mál-
inu. Twitchell situr nú í fang-
elsi og verður orðinn gamall
maður þegar hann mun eiga
möguleika á reynslulausn.
„Flestir láta sig dreyma
um að drepa, en það eru yfir-
leitt bara draumórar. Þau
hafa ekki kjarkinn eða rétta
hugarfarið til að fylgja eftir
myrkum hvötum sínum. En
ég hef það,“ skrifaði Twit ch-
ell í sögunni.
Höfundur bókanna um
Dexter sagði í tengslum við
málið:
„Það að lesa bækurnar
um Dexter gerir þig ekki að
morðingja. Ef þú ert ekki nú
þegar fær um að drepa aðra
manneskju á kaldrifjaðan,
grimman og ákveðinn hátt,
þá mun engin bók nokkurn
tímann gera þér kleift að
gera svo. Það eru engin töfra-
orð sem gera þig skyndilega
siðblindan.“ n
SAKAMÁL SJÓNVARPSÞÁTTUR VARÐ
INNBLÁSTUR AÐ MORÐI
Það er gaman að horfa á vel gert afþreyingarefni, og ekki síðra að lesa
góða bók. En hvað gerist þegar menn með annarlegar hvatir sækja inn-
blástur í skáldskap? Þessu fékk Johnny Altinger að kynnast af eigin raun.
Skáldsagna-
morðinginn
Dexter
Morgan varð
innblástur að
hrottalegu
morði.
MYND/HBO
26 FÓKUS 26. FEBRÚAR 2021 DV