Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 28
STÓRSNIÐIN ÚLPA
UNG OG SVÖL
„Street wear týpan. Micro-trender sem eltir nýjustu
tískustrauma. Ung og svöl týpa með nef fyrir merkja-
vörum sem endast vel. Það er ekki bara úlpan sem
talar hér heldur er allt útpælt og endar jafnan með
nýjustu og flottustu strigaskónum. Ég er Instagram-
ready þegar ég er í þessari!“
„Þú ert áhrifavaldur eða ert undir áhrifum áhrifa-
valda!“
„„Oversized“ dúnúlpur eru það vinsælasta í dag. Ég
sá einhverja frétt sem tengdist íslenskum grunnskóla
og myndin sem með fylgdi var tekin fyrir utan skólann,
þar stóðu um 50 krakkar. Þar af voru 30 þeirra í svartri
Dyngju-úlpu í yfirstærð frá 66°Norður og 10 til viðbótar
í öðrum litum af Dyngju. Þetta er greinilega aðalmálið
og allir vita að grunn- og menntaskólakrakkar eru hvað
mest meðvituð um strauma og stefnur í tískunni. Þó
það væri skemmtilegra að sjá smá meiri frumleika og
sjálfstæða hugsun í fatavali.“
„Þú ert að öllum líkindum ekki yfir fertugu þó svo aldur
sé afstæður og allt það. Þú elskar unisex lúkk, átt fleiri
en einar joggingbuxur, gengur í víðum fötum, stórum
stuttermabolum og hettupeysum. Færir mögulegast
aldrei í kuldastígvél.“
DÚNKÁPA
„MEÐAL-MAGGI“
„Þessar eru mjög vinsælar núna
og ég fíla það. Þær eru þægilegar,
hlýjar og að sama skapi flottar. Í
raun er smá flókið að fara í ein-
hverja persónugreiningu út frá
þessari í ljósi þess að þetta snið
er jafnvinsælt hjá þeim sem hugsa
meira um praktík og þeim sem eru
að sækjast eftir þessu „lúkki” af
því það er í tísku.“
„Minnir svolítið á ömmu sem var
fædd á fjórða áratug síðustu aldar
en hefur orðið að tískuvarningi
síðustu misserin.“
„Týpan sem velur þessa kápu er
„main streamer/meðal maggi“
Pælir í tísku og stílnum og fer ekki
í hvað sem er en er kuldaskræfa
og vill ekki standa og frjósa í nafni
tískunnar. Þessar kápur passa
jafnt yfir kjól eða joggara og
halda vel hita og gefa viðkomandi
„svag“ við hvaða outfit sem er.
„Þú ert yfir meðallagi há, gengur
í þröngum buxum og stórum
peysum. Fylgir tískustraumum.
Þú velur flatbotna grófa skó um-
fram hælana.“
FÍNNI DÚNKÁPA
LÚXUS-PÉSI
„Fólk sem er stílhreint og tekur
litla sénsa í fatavali er gjarnara á
að klæðast svona úlpum. Sé fólk
að fjárfesta hátt í 200.000 krónum
í úlpu verður manneskjan að vera
með nokkuð klassískan stíl sem
breytist ekki hratt.“
„Þú átt marga þúsundkalla til að
eyða í úlpu, ert normaður eða
stundar útivist af kappi! (eða vilt
að það lúkki þannig!).“
„Háklassaútvivistartýpa sem
velur vönduð merki og vill gæði
sem endast jafnan árum saman.
Vill geta notað sömu yfirhöfnina
sem var keypt dýrum dómum í
miðbænum og við útivist. Kaupir
færri og vandaðri flíkur.“
„Þú elskar útivist allt árið um
kring. Lítur á yfirhöfnina sem fjár-
festingu til frambúðar. Klæðir þig
eftir veðrum og vindum og já, þér
er aldrei kalt.“
SÍÐ ÚLPA MEÐ SKINNI
KAUPKÁT
„Í íslensku veðri finnst mér al-
gjör nauðsyn að úlpan nái niður
fyrir rass. Segir svo sem lítið um
manneskjuna per se, margir sem
klæðast úlpum í þessum stíl þótt
þær séu oftast þykkari.“
„„High street“ týpan. Vetrar-
jakki er vetrar-jakki en ég er ekki
að fara eyða allt of miklu í jakka
heldur kaupi mér frekar nýjan
jafnvel á hverju ári. Pæli ekkert
sérstaklega í trendum og tísku
og jakkinn eru valinn vegna þess
að hann er ekkert of dýr en hann
gerir sitt gagn og kemur mér í
gegnum veturinn.“
„Þú vilt hylja á þér rassinn og ert
hugsanlega komin vel yfir fimm-
tugt.“
„Þú vilt geta notað yfirhöfnina
með dragtarbuxum, nælonsokka-
buxum, hælum og þá ekki úti í ís-
lenskri náttúru.“
MYNDIR/FRÁ FRAMLEIÐENDUM
28 FÓKUS
Hvað segir
yfirhöfnin
þín um þig?
Góð yfirhöfn kostar oft vænan skilding og
er um leið ein mest notaða flíkin í skápnum.
Heitustu yfirhafnirnar sem stendur eru dún-
úlpur af ýmsum gerðum í bland við pelsa. DV
fékk landskunna töffara til að rýna í hvað yfir-
höfnin segir um þann sem klæðist henni. Ert
þú „Meðal-Maggi“ eða „Lúxus-Pési“?
26. FEBRÚAR 2021 DV