Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Page 29
FÓKUS 29DV 26. FEBRÚAR 2021
GERVIPELS Í LIT
FRAKKA TÝPAN
„Þessi týpa er aldeilis ekki hrædd
við að vera í athyglisvekjandi
litum og skemmtilegum fötum.
Sjáið mig, ég er ung og fersk með
góðan og skemmtilegan smekk!
Ég er líka umhverfisvæn og dýra-
vinur og myndi ekki láta sjá mig
dauða í alvöru pels.“
„Þú verslar í Monki í Smáralind og
ert á aldursbilinu 15-20 ára og ert
til í að taka áhættu.“
„Manneskja sem klæðist þessum
er tilbúin að taka sénsa, prufa sig
áfram þegar það kemur að tísku
og óhrædd við að vekja á sér at-
hygli. Hún er sjálfstæð í fatavali,
jafnvel þó slíkir pelsar hafi komið
sterkt inn undanfarið, þá er það
ekki fyrir alla að klæðast þessum
litum.“
„Þú gengur ekki í neinu unnu úr
dýraafurðum og það fer ekki á
milli mála að þú er 100% vegan“
GERVIPELS FÍNNI TÝPAN
KLASSAPÍA
„Þessi týpa elskar að klæða sig
fínt og kíkja út á lífið. Jakkinn
gefur extra glamúr og er algjör
„headturner“ – en hann er líka
praktískur og heldur vel hita þegar
maður er léttklæddur innan undir.
Carrie Bradshaw ætti að passa
sig.“
„Þú fílar fiftís bíómyndir og ert
hugsanlega oft með hárauðan
varalit þegar þú ferð út á djammið.
Klassi!“
„Ég hef smá gaman að þessum,
sérstaklega ef hann er svona
„extra“. Þá er manneskjan sem
honum klæðist örugglega nokkuð
nett. Ég er mjög sátt með að
dýrapelsar séu alveg „out“ núna,
ekki bara út frá dýraverndunar-
sjónarmiðum heldur eru gervi-
pelsar bara miklu flottari. Pelsar
í þessum stíl eru flottir fyrir fínni
tilefni en svo finnst mér líka mjög
flott að klæðast svona „over-the-
top“ pels við hvítan stuttermabol
og gallabuxur hversdagslega.“
„Þú ert til í að dressa þig upp og
þorir fara alla leið. Sjónvarps-
þættirnir Sex and the City mótuðu
æskuárin þín og Samantha Jones
var átrúnaðargyðjan þín.“
OVERSIZED GALLAJAKKI
RETRÓ TÝPAN
„Retró týpan. Ég er ung og með
smekk fyrir trendum. Núna er það
90´s trendið og víður gallajakkinn
er þar engin undantekning. Þessi
týpa elskar allt 90’s og stóri galla-
jakkinn er fullkominn sumarjakki
við blómakjóla og „gallgalla“
tískuna. „90210 here I come!““
„Þú manst ekki eftir næntístísk-
unni því þú ert of ung til að muna,
þar liggur fegurðin í þessum stíl
að þínu mati. Aldamótabörnin
rokka þennan stíl.“
„Það segir náttúrulega helling um
manneskjuna sé hún í þessum um
miðjan vetur. En þetta er skemmti-
legt trend yfir hlýrri mánuðina,
oftast fólk í yngra kantinum með
mjög afslappaðan stíl.“
„Þú getur verið hver sem er, óháð
týpu, áhugamálum eða aldri.“
GERVI-GÆRUJAKKI
FRJÁLSLEG OG PÓLITÍSK
„Þessir hafa verið vinsælir í
nokkur ár og mjög breiður hópur,
þá helst kvenmanna, sem klæð-
ist pelsum í þessum stíl. Það er
gaman að sjá smá brotið upp á
„lúkkið“ með því að velja gæru-
jakka í einhverjum skemmtilegum
lit.“
„Uppáhaldsmyndin þín er Almost
Famous.“
„Hér er hún mætt týpan sem
elskar notuð (secon hand) föt
og að sýna persónulegan stíl
í fatavali. Gærujakkinn er full-
komin til að ná 70´s lúkki, free
spirit fílingnum sem umvefur sjálf-
stæðan og smekklegan karakter
sem notar tísku til þess að tjá sig.
Viðkomandi er umhverfisvænn og
vegan.“
„Þú ert hipster.“
ÁLITSGJAFAR
Arna Einarsdóttir
hönnuður
Helga Kristjánsdóttir
ritstjóri herer.is
Steingerður Sonja Þórisdóttir
blaðakona og tískuspekúlant
Bergþóra Magnúsdóttir
stílisti