Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Blaðsíða 31
Fjölskyldur sam-
settar úr kerfum
Ég þreytist seint á að útskýra
að fjölskyldur eru samsettar
úr kerfum og fjölskyldufræð
in byggja á ákveðnum kerfis
kenningum sem ávallt er gott
að hafa í huga þegar fjöl
skyldumynstur eru skoðuð.
Systir þín og sonur hennar
eiga sitt mæðginakerfi. Þú
og systir þín eruð í systra
kerfi. Samkvæmt kerfis
kenningunum er mjög mikil
vægt að hafa skýr mörk milli
kerfa og að varlega sé stigið
til jarðar þegar farið er inn
í kerfi sem maður tilheyrir
ekki. Þetta rímar við að þér
finnst erfitt að ræða þetta við
systur þína og að systir þín
fer í vörn þegar þú skiptir þér
af. Í þessu samhengi dettur
mér einna helst í hug að þar
sem sonur hennar hefur verið
að leita til þín þá sé hægt að
hjálpa honum að ræða þennan
vanda við móður sína. Hann
tilheyrir mæðginakerfinu og
leyfist að koma með ábend
ingar sem eiga heima þar.
Og þessu tengt, fyrst þú
spyrð hverjum þú átt að
beina hvert þá gæti verið
hjálplegt að hvetja hann til
þess að biðja móður sína um
að koma með sér í fjölskyldu
meðferð. Gæti hann haft orð
á því að samskipti þeirra
séu ekki nægilega góð og að
hann vilji styrkja þau? Auð
vitað er hann alltaf barnið
og á ekki að taka ábyrgð á
að hegðun móður sinnar, en
fyrst hann er að leita til þín
þá væri þess virði að reyna
að styrkja hann til þess að
taka þessa umræðu við móð
ur sína sjálfur.
Börnin eiga að
njóta vafans
Annað sem þú getur haft til
hliðsjónar í þessu máli er að
reyna að styrkja böndin milli
þín og systur þinnar. Reyndu
að dæma hana ekki og ekki
leyfa þessu að sundra ykkur.
Heldur væri skynsamlegt að
vinna þér inn meira traust
til þess að leyfast að hjálpa
henni með þetta viðkvæma
mál. Góðum systraböndum
leyfist ýmislegt og ef þú nálg
ast hana sem systir hennar af
væntumþykju þá gæti verið
að varnarmúrinn molni í ró
legheitum.
Þú segir að ekki sé um of
beldi að ræða og það er mjög
gott. En erfið samskipti geta
mjög auðveldlega haft sömu
afleiðingar og andlegt of
beldi, sérstaklega þegar
börn verða hrædd eins og þú
nefnir. Þetta er nokkuð sem
mikilvægt er að hafa á bak
við eyrað, sérstaklega þegar
börn eru annars vegar. Ef
minnsti grunur kviknar um
ofbeldi gagnvart börnum þá
eru það alltaf börnin sem eiga
að fá að njóta vafans. Ég mæli
þess vegna alltaf með því að
fólk leiti til barnaverndar
til þess að meta hvort atvik
eða aðstæður séu þess eðlis
að þau beri að tilkynna. Ekki
hika við það, barnavernd er
til þess að aðstoða fjölskyldur
við að vernda börn og fólk á
ekki að víla það fyrir sér að
nýta sér þá þjónustu.
Ég veit að þessir punktar
eru ekki að fara að breyta
öllu á einni nóttu en vonandi
gefur þetta þér skýrari hug
myndir að því hvernig þú
getur hjálpað þeim mæðg
inum að líða betur. Gangi þér
sem allra best. n
S æl, Kristín. Systir mín á í erfiðu sambandi við son sinn. Þau rífast
eins og hundur og köttur,
systir mín er stöðugt að siða
hann til og ég hef oft orðið
vitni að því að sonur hennar
er hræddur við mömmu sína.
Við höfum rætt þetta í stór-
fjölskyldunni frá því strákur-
inn var bara tveggja ára en í
dag er hann að verða sextán.
Systir mín þolir ekki ef ég
skipti mér af en sonur henn-
ar er farinn að leita mikið
til mín út af þessari van-
líðan. Systir mín á tvö yngri
börn og hennar samband við
þau er alls ekki í líkingu við
þetta, þau eru reyndar bæði
stelpur og eiga annan pabba
sem systir mín býr með í dag.
Ég tek það fram að þetta er
ekki beint ofbeldi en þetta er
mjög óheilbrigt samband og
mjög ögrandi og erfið sam-
skipti. Hvað get ég gert? Til
hvers getum við leitað og á
ég að benda systur minni á
fagaðila eða syni hennar?
Bestu kveðjur,
Stóra systir
Ákveðið samskipta-
mynstur þróast
Sæl, stóra systir. Takk fyrir
að leita til mín. Þessi staða er
flókin því það er ekkert við
kvæmara en samband móður/
foreldris við barnið sitt. Ég
leyfi mér að fullyrða að allar
mömmur vilja börnunum
sínum vel og þar er systir
þín vafalaust engin undan
tekning. Aftur á móti er það
þannig í öllum samskiptum
að það þróast ákveðið sam
skiptamynstur. Þetta mynstur
getur undið upp á sig og orðið
að vítahring sem erfitt er að
snúa upp á. Það er þó alltaf
hægt, ef viljinn er fyrir hendi.
Þú nefnir að systir þín eigi
son sinn með öðrum manni
og að sonurinn sé hennar
fyrsta barn. Þar af leiðir að
sambandið milli þeirra hefur
þróast í öðrum aðstæðum
þar sem líðan þeirra beggja
hefur verið með öðrum hætti
en aðstæður og líðan er í
dag. Þetta eru breytur sem
hafa mikil áhrif á samband
þeirra og getur skýrt hvers
vegna samband systur þinnar
við hin börnin er með öðrum
hætti. Samband hennar við
yngri börnin sýnir líka að
hún kann að mynda góð
tengsl og hefur burði til þess
að eiga í góðum samskiptum
við börnin sín. Það er mjög
gott merki.
Við hvetjum lesendur til að senda
spurningar og vangaveltur sínar til
Kristínar í tölvupósti á:
hjonabandssaela@gmail.com.
Spurningunum verður svo svarað
hér í Fjölskylduhorninu, að sjálf-
sögðu nafnlaust og í fullum trúnaði.
Fjölskylduhornið
Kristín Tómasdóttir hjónabandsráðgjafi
svarar spurningum lesenda um málefni
er varða fjölskylduna, börnin og ástina í
Fjölskylduhorni DV. Að þessu sinni svarar
Kristín spurningu lesanda sem hefur
áhyggjur af systur sinni og syni hennar. Sérfræðingur svarar
MYND/GETTY
ERFITT SAMBAND MÆÐGINA
FÓKUS 31DV 26. FEBRÚAR 2021
Erfið samskipti
geta mjög auðveld-
lega haft sömu
afleiðingar og
andlegt ofbeldi.