Dagblaðið Vísir - DV - 26.02.2021, Qupperneq 38
38 SPORT 433
Atvinnumenn í knatt-spyrnu gera lítið annað en að æfa eða spila fót-
bolta og hugsa um heilsuna
á meðan ferillinn er í gangi.
Allt annað sem getur skaðað
heilsu leikmanna er í raun og
veru bannað, oftar en ekki er
knattspyrnumönnum bannað
að skella sér á skíði eða keyra
mótorhjól. Hættan sem fylgir
slíku getur bundið enda á feril
leikmanns og er hann stuttur
fyrir. Golf er sú íþrótt sem
atvinnumenn í knattspyrnu
stunda hvað mest en þegar
skórnir fara upp í hillu eru
margir sem reyna fyrir sér á
öðrum vettvangi. Áhugamálin
sem setið hafa á hakanum fá
þá að njóta sín í botn. n
FJÖLHÆFIR
FÓTBOLTA-
MENN
Kappakstur, hestaíþróttir og glíma
eru meðal þess sem fremstu knatt-
spyrnumenn heims hafa tekið sér
fyrir hendur þegar fótboltaferlinum
lýkur. Allt fyrir spennuna.
Hörður Snævar
Jónsson
hoddi@433.is
26. FEBRÚAR 2021 DV
PETR CECH
Þessi stóri og stæðilegi markvörður átti frábæran feril með Chelsea og
fleiri liðum. Áður en hann varð atvinnumaður í fótbolta var Cech duglegur
að æfa íshokkí í Tékklandi. Þegar ferillinn sem knattspyrnumaður tók enda
ákvað Cech að snúa sér aftur að þeirri ástríðu. Árið 2019 samdi Cech við
Guildford Phoenix og lék sem markvörður fyrir félagið. „Eftir 20 ár sem
knattspyrnumaður er þetta frábær upplifun, þetta er leikurinn sem ég
elskaði að horfa á og spila sem krakki,” sagði Cech sem var maður leiks
ins í sínum fyrsta leik.
PAOLO MALDINI
Einn merkasti knattspyrnumaður í
sögu Ítalíu er Paolo Maldini, þessi
magnaði varnarmaður lék 25 ár
með aðalliði AC Milan. Hann lagði
skóna á hilluna árið 2009 41 árs
gamall. Maldini lék 126 leiki fyrir
Ítalíu en þegar ferlinum lauk vant
aði hann nýtt áhugamál. Mald ini
fór á fullt að æfa tennis sem er
að margra mati erfiðasta íþrótt
í heimi, hann var strax nokkuð
góður og komst inn á atvinnu
mannamót árið 2017. Hann keppti
þá í tvíliðaleik á sterku móti á
Ítalíu, mótið endaði illa og töpuðu
Maldini og félagi hans í fyrsta leik.
JERZY DUDEK
Pólski markvörðurinn gerði garð
inn frægan og vann meðal annars
Meistaradeildina með Liverpool
árið 2015. Eftir frábæran feril fór
Dudek að sinna áhugamáli sínu
og keppa í kappakstri. Dudek
gat lítið sinnt áhugamálinu þegar
hann var leikmaður, enda illa séð
að atvinnumenn í knattspyrnu
komi sér í slíkar hættu. „Það hefur
alltaf verið ástríða mín að keppa í
kappakstri. Ég saknaði spennunn
ar frá því að ég var í fótboltanum.
Núna er ég að einbeita mér að
bílum og mismunandi brautum,
þetta er ljúft líf,” sagði Dudek.
BIXENTE LIZARAZU
Þessi fyrrverandi landsliðsmaður
Frakklands og leikmaður FC Bay
ern náði frábærum árangri sem
knattspyrnumaður. Hann varð
heimsmeistari með Frökkum árið
1998 og vann Evrópumótið með
liðinu tveimur árum síðar. Lizarazu
lagði knattspyrnuskóna á hilluna
árið 2006 en var þó ekki hættur
afskiptum af íþróttum. Hann snéri
sér að JiuJitsu og þótti ansi lipur
í þeirri bardagaíþrótt. Hann vann
til verðlauna árið 2009 í European
Blue Belt Senior 1. deildinni.
ERIC CANTONA
Goðsögnin hjá Manchester United
hætti frekar snemma í boltanum,
eftir að hafa komið United aftur í
hóp þeirra bestu ákvað Cantona
að hætta árið 1997 en þá var hann
aðeins 31 árs gamall. Hann hætti
sem atvinnumaður í fótbolta en
fór að spila fyrir franska landsliðið
í strandfótbolta. Cantona þótti lip
ur á sandinum og gerði það gott,
hann varð síðar þjálfari liðsins og
gerði liðið að heimsmeisturum í
strandfótbolta árið 2005.
TIM WIESE
Þessi stóri og stæðilegi markvörður lék yfir 200 leiki í
efstu deild í Þýskalandi með Werder Bremen. Hann var
í leikmannahópi Þýskalands árið 2010 þegar liðið varð
heimsmeistari. Frá því að hann lagði hanskana á hill
una hefur Wise reynt að koma sér inn hjá WWE sem er
glímukeppni þar sem mikið sjónarspil á sér stað. Wise
hefur fengið að koma sem sérstakur gestur en hefur
þó ekki náð að festa sig í sessi í þessu vinsæla sporti.
GABRIEL BATISTUTA
Markamaskínan frá Argentínu
átti frábæran feril, hann raðaði
inn mörkum á Ítalíu og stóð alltaf
fyrir sínu með landsliðinu. Hann
hætti í fótboltanum árið 2005 en
ástin á hestum og póló togaði í
hann. Hann spilaði póló reglulega
og þótti nokkuð lunkinn í þessari
íþrótt sem er sérstaklega vinsæl
á meðal ríka fólksins.
MYNDIR/GETTY