Studia Islandica - 01.06.1937, Qupperneq 24
22
Ennfremur segir þar: „Meistari Roðbert diktaði þessa
sögu á latínu til virðingar ok sæmðar inum heilaga
Magnúsi Eyjajarli at liðnum xx vetrum frá hans písl'1.1)
Guðbrandur Vigfússon leggur lítið upp úr þessari tölu 2)
og hyggur eins líklegt, að þar hafi átt að standa cxx
eða lxx, og í sama streng tekur Finnur Jónsson.3) En
hinsvegar eru engin rök færð fyrir þessu. Og ef að er
gáð, kemur í ljós, að talan 20 er býsna mikilvæg í sögu
Magnúsar. Orkneyinga saga (hdr. AM 325 I 4to) segir,
að Magnús hafi legið í moldu einn vetur og tuttugu, en
í Magnúss sögu hinni skemmri (M II) segir, að bein
hans hafi verið tekin upp, þegar tuttugu vetur voru liðn-
ir frá andláti hans.4) í flestum íslenzkum annálum er
gert ráð fyrir, að Magnús hafi verið drepinn 1116, en
hins vegar að Rögnvaldur kali hafi unnið Orkneyjar
1136, en þetta stendur í sambandi við upptekt beina
Magnúsar, svo sem ég mun brátt koma að. Þegar tekið
er tillit til þess feiknarlega ruglings, sem er í heimild-
um um dánarár Magnúsar, þá verður að leggja mikið
upp úr þessum 20 árum, sem svo margar heimildir eru
sammála um. M. ö. o. Vita Roðberts er samin einmitt
um það leyti, þegar bein hans eru tekin upp, hún er,
ásamt jarteiknabókum, ætluð til að sýna og sanna helgi
hans.
Ef stefna ritsins er athuguð, kemur einmitt þetta
fyrst og fremst í ljós. Það er gert mikið úr réttlæti
Magnúsar og friðsemi, að hann vildi heldur þola órétt
en fremja hann, ennfremur verður Roðbert mælskur,
þegar hann útmálar skírlífi hans. Þess er getið, að
Magnús hafi verið í víkingu og hernaði á unga aldri,
1) Icel. s. I 269.
2) S. st., nm.
3) Litt. hist. II 652. Aftur á móti hefur Finnur Magnússon,
Nord. Tidskr. for Oldkh. III 315, ekki séð ástæðu til að reng'ja
töluna.
4) Orkn. s. 133, Ieel. s. I 293.