Studia Islandica - 01.06.1937, Side 34

Studia Islandica - 01.06.1937, Side 34
32 þeir Hákon um;u i sameiningu hervirki, drápu Dufníal frænda sinn. Um þetta hafði hann góða heimild, sem var drápa sú, sem um Hákon var ort (sjá síðar). Þetta þykir mér sennilegust skýr- ing, en þó væri líka hugsanlegt, að hin skrifaða heimild Orkn. s. um Magnús hefði verið útdráttur úr Vita, þar sem þessu hefði verið sleppt, eins og gert er í Aberdeen-breviarium. 2) Frá fyrri skiptum Magnúsar og Hákonar virðast lítils- háttar missagnir í Orkn. s. og Vita, en annars er erfitt að átta sig á Vita hér, því að Leg. fellir svo mikið niður. Þetta ber þó á milli: Bæði M I (bls. 250) og Leg. segja, að Hákon fór „vestr um haf ok tók undir sik allt ríki i Orkneyjum með svá mikilli ágirni... at hann drap saklausan sýslumann Noregs konungs, er þann helming Eyjanna hélt ok geymði, er inn helgi Magnús átti, ok lagði þann veg undir sik allar Orkneyjar með ofríki; því at hálfar Eyjarnar horfðu til hins heilaga Magnúss af föðurligri erfð“. Leg. (bls. 300) orðar það svo: „Hako... irruens in quen- dam procuratorem regis Norvegiæ, qui patriam beati Magni ex parte regis administrabat, dominium Orkadiæ sibi subjugavit, cum non nisi pars dimidia ei de jure competeret, alia autem pars ad beatum Magnum jure hæredetario spectabat“. Aftur segir Orkn. s. (bls. 108) : „Einum vetr eða tveimr eptir fall Magnúss konungs kom vestan um haf Hákon Pálsson, ok gáfu konungar honum jarlsnafn ok ríki slíkt sem burðir hans stóðu til. Fór hann þá vestr um haf ok tók undir sik ríki í Orkneyjum. Hann hafði jafnan fylgt Magnúsi konungi, meðan hann lifði; hann var með honum í hernaði austr á Gautlandi, sem segir í drápu þeiri, er ort er um Hákon Pálsson“. Hér er því ekki getið um sýslumanninn. Hefur höfundi kannske þótt sú frásögn ósenni- leg, þegar hann athugaði vináttu Hákonar við Noregskonunga? Annars er vert að athuga, að hér vitnar Orkn. s. til heimildar, sem nú er glötuð, drápunnar um Hákon. Til sama kvæðis er vitn- að síðar (í 46. kap.) um atburði, sem ekki hafa staðið í Vita, víg Dufníals o. fl. Það er einkennilegt, að ekki eru teknar upp vísur úr drápunni; líklega hefur hún verið orkneysk, og hafa íslend- ingar því ekki kunnað hana, en hinn orkneyski heimildarmaður þekkt efni hennar, en ekki meira. 3) Leg. (bls. 300) segir, að þegar Magnús frétti, að Hákon hefði tekið Orkneyjar undir sig, fór hann til Heinreks Engla- konungs og síðan til helgra staða. Þess er líka getið í M I (bls. J

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.