Studia Islandica - 01.06.1937, Side 38

Studia Islandica - 01.06.1937, Side 38
36 nærmeste efterkommere og maaske nogle af hans gamle vaabenfæller“.1) Loks skal ég bæta við, að Orkn. s. virðist ekki höll undir Harald jarl Maddaðarson, en vitanlega ekki held- ur óvinveitt honum. Góð til athugunar er frásögn af Haraldi, þegar Rögnvaldur jarl var drepinn; þar þurfti lítið til, að á Harald væri hallað, en líka mátti segja sög- una honum í vil; í Orkn. s. er farið bil beggja. Um aldur Orkn. s. virðast menn hafa verið nokkuð á einu máli, að hún sé rituð um 1200. Ég skal um það efni sérstaklega benda á hina ýtarlegu röksemdaleiðslu Sigurðar Nordals í formála að útgáfu hans. Hér er því ekki ástæða til að gera meira en drepa á þetta efni. Sag- an er skrifuð eftir 1192, þegar helgi Rögnvalds jarls var viðurkennd og bein hans upp tekin af Bjarna bisk- upi. Engin ástæða virðist til að ætla, að sú klausa, sem segir frá þessu í sögunni (104. kap.), sé seinni tíma við- bót né til komin við síðari gerð sögunnar, enda veit ég ekki til, að því hafi verið haldið fram. Ýmsir aðrir hlutir í sögunni benda á, að sagan sé ekki eldri, t. d. ættar- tölur: börn Eiríks stagbrells, Dalverjaætt, börn Kol- beins hrúgu,2) synir Sveins Ásleifarsonar. Hins vegar er ýmislegt, sem virðist marka ritun sög- unnar nokkuð þröngan bás, eins og Sigurður Nordal3) hefur bent á. Skal ég af því nefna tvennt. Sagan minn- ist ekki á dauða Haralds jarls Maddaðarsonar né síðara hjónaband hans. í 105. kap. er nefnd fyrri kona hans og börn þeirra, en söguritarinn hlýtur þó að hafa þekkt síðara kvonfang hans líka. Aftan við söguna eru talin upp börn jarls hin síðari: Þorfinnur, Davíð, Jón, Gunn- hildur, Herborg og Langlíf. Langlíf hlýtur að hafa verið frumvaxta um 1200, og ekki er annars getið en Davíð og Jón hafi verið uppkomnir, þegar þeir tóku ríki eftir föð- 1) Bls. v. 2) Orkn. s. 316, 307, 214. 3) Orkn. s. ii, V. á

x

Studia Islandica

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Studia Islandica
https://timarit.is/publication/1542

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.