Dagblaðið Vísir - DV - 05.03.2021, Blaðsíða 2
Fer í megrun ef ég vil
Þ að er vandlifað í dag,“ hugsaði Svarthöfði þegar hann álpaðist
inn á síðu á samfélagsmiðlum
sem er helguð því að útrýma
fitufordómum. Ef einhvern
lærdóm er hægt að draga af
þeirri síðu þá má helst bara
ekkert minnast á holdafar
opinberlega. Meira að segja
heilsu- og lífsstílsdagar Hag-
kaupa eru víst dæmi um
fitufordóma. Smartland var
jafnvel gagnrýnt fyrir fyrir-
sögnina „Æfði eins og J-Lo í
eina viku“ en það þarf meist-
aragráðu í móðgunargirni til
að lesa fitufordóma út úr því.
Það er bannað að tala um
hitaeiningar, kolvetni, sykur-
sýki, sykur og ekki fyrir
nokkra muni er leyfilegt að
deila árangri þeirra sem hafa
sett sér markmið um þyngd-
artap og vilja deila því til að
veita öðrum innblástur.
Það má ekki lengur tala um
megrun því það er bannað
heldur eigum við að tala um
lífsstíl.
Og nú á að banna alla vísun
til heilbrigðs mataræðis, hóf-
legrar neyslu, og aukinnar
hreyfingar – bara vegna þess
að með því er hægt að mögu-
lega stuðla að þyngdartapi
sem virðist vera orðið tabú.
Svarthöfði á ekki nokkurt
aukatekið orð. Er eina leiðin
til að útrýma fitufordómum
sú að skapa fordóma gagnvart
fólki sem er að taka ákvörðun
um sinni eigin líkama?
Ekki nóg með þetta heldur
var Smartland aftur gagn-
rýnt á síðunni og það fyrir
„ásættanlega“ fyrirsögn –
Hamingjan hefur ekkert með
kílóafjölda að gera, sagði
fyrirsögnin. En það var gagn-
rýnt af því Smartland hafði
áður gerst sekt um fitufor-
dóma.
Við getum flest verið sam-
mála um að fitufordómar séu
slæmir og megrunarmenning
ýti undir óheilbrigt samband
manna við mat. En það þýðir
ekki að við eigum að hætta
að hlusta á lækna og vísinda-
menn sem hafa lengi varað
við því að lífsstílssjúkdómar
séu að verða ein helsta ógn
við heilbrigði okkar í dag.
Umræðan um fitufor-
dóma, megrunarmenningu
og átraskanir má ekki þagga
niður í umræðunni um nauð-
syn þess að taka til í lifnaðar-
háttum okkar.
Þessi umræða má ekki snú-
ast upp í ritskoðun sem stöðv-
ar flæði upplýsinga sem hafa
mögulega áhrif á líf okkar.
Svarthöfði bætti einu sinni
á sig tugum kílóa í þung-
lyndiskasti og þurfti að vinna
að því hörðum höndum að ná
þeim af sér. Hvert kíló var
minnisvarði um andlega van-
líðan og það var dásamleg
stund að passa aftur í Costco-
buxurnar. Auðvitað deildi
Svarthöfði fyrir og eftir
myndum. Svona eins og við
gerum líka þegar við tökum
baðherbergið okkar í gegn.
Við megum taka okkur sjálf
í gegn og við megum vera
ánægð með það.
Svo er það líka þann-
ig að þegar barátta fyrir
betri heimi fer út í of mikla
öfga, þegar aldrei er hægt
að stoppa og gleðjast yfir
árangrinum heldur stöðugt
verið að hjóla út í næsta slag,
móðgast yfir næstu fyrir-
sögn, þá nennir enginn á end-
anum að fylgja öfgamönn-
unum í stríðið. n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Fleiri fermetrar
K
atrín Jakobsdóttir segir í forsíðuvið-
tali helgarblaðs DV að hún hafi upp-
lifað mikið frelsi þegar hún áttaði sig
á því að það er ekkert sérstakt mark-
mið að láta öllum líka við sig.
Þennan punkt má setja í samhengi
við svo margt sem veldur fólki vanlíðan. Það að
setja orku í að reyna að hafa stjórn á því óstjórnlega
er ávísun á vanlíðan. Í árferði þar sem heimurinn
hefur svo sannarlega sýnt okkur ítrekað að við erum
upp á hann komin er ágætt að leiða hugann að því að
sleppa tökum á því sem er ekki okkar að stjórna.
Við höfum öll okkar skyldur og það er vænlegast
að setja orku sína í að sinna þeim vel og sleppa
tökum á því sem við höfum enga stjórn á. Það er
vissulega vont að missa stjórn eða átta sig á að þú
hafðir hana aldrei.
Það fyllir marga kvíða að standa í heimsfaraldri
og jarðskjálftadrama á víxl. Það er eðlilegt
en setur um leið svo margt í samhengi.
Það eina sem skiptir máli er að tryggja
velferð fólksins okkar – og það er að
miklu leyti gert með því að halda
hlutunum gangandi. Ekki með því
að fylla allar hillur af dósamat
þó það sé vissulega góð hugmynd
að eiga vel af þurrvöru þó ekki sé
nema til þess að gera hagstæðari
kaup í lágvöruverslunum.
Lífið er eins og oft er sagt það
sem gerist á meðan við erum
upptekin við að gera áætlanir
um eitthvað annað.
Sjálfa dreymir mig um
frystiskáp. Mér finnst hug-
myndin um að eiga frysti-
skáp og helst bílkerru
líka mjög fullorðinsleg.
Þá yrði ég stóreigna-
manneskja.
Ef einhver væri að
flytja myndi ég segja
valdsmannslega: Á ég ekki að
koma með kerruna?
Svona eru draumar okkar
ólíkir og misgáfulegir. Það
skiptir þó öllu að eiga sér
drauma – en raunhæfa drauma sem ekki eru til þess
fallnir að berja mann niður.
Forsætisráðherra Íslands er raunsæ kona. Hún
heldur ekki „instagram-væn“ barnaafmæli. Hún seg-
ist ala börnin sín upp við raunhæfar væntingar og að
það sé allt í lagi að það sé ekki alltaf allt frábært.
Katrín Jakobsdóttir býr í blokkaríbúð ásamt eigin-
manni sínum og þremur drengjum í Vesturbænum.
Hún hefur ekki þörf fyrir að búa rúmt því hún segist
vera með þá tilhneigingu að sanka að sér dóti sem
aðrir vilja losna við, svo sem bollastell. Katrín deilir
þvottahúsi með nágrönnum sínum og hefur sagt
opinberlega að það besta við að búa í blokk sé að búa
með öðru fólki, eiga góða nágranna og að deila sam-
eiginlegri ábyrgð. Þetta finnst mér ekki bara fallegt
heldur líka svo heilbrigt og hrópandi mótsögn við
neysluhyggjuna sem veldur svo mörgum vanlíðan.
Það þarf ekki allt að vera risastórt og meira en
hjá næsta manni. Það þarf bara að vera nóg og við
ráðum því sjálf hvað er nóg.
Hvað ef við þurfum ekki allt á óskalistanum? Þarf
ég þessa kerru? Nei, bara alls ekki. Ég get leigt hana
tvisvar á ári og slegið um mig í flutningum ef sjálfið
hefur þörf fyrir. n
Sjálfa dreymir
mig um frysti-
skáp.
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Björn Víglundsson RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is
AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Ágúst Borgþór Sverrisson, agustb@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Hrafn Norðdahl, hrafn@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing. DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
Hollustuséníið og sjarma-
búntið Ebba Guðný Guð-
mundsdóttir matgæðingur
deilir hér sínum 5 uppáhalds.
Hún er með sérlegt raf-
tækja- og eldhúsblæti enda
ofurhetja í eldhúsinu og þær
þurfa sín tæki.
1 Uppþvottavélin mín
Ég elska hana mjög mikið.
2 Þvottavélin mín
Elska hana jafn mikið. Ég
á Miele-þvottavél sem ég
keypti fyrir 20 árum á tilboði
og gengur og gengur.
3 Blandarinn minn
Vitamix-blandarinn minn
er notaður á hverjum degi.
Þvílík snilld fyrir unglinga í
íþróttum að bjarga sér með
alls konar þeytinga.
4 Eldhúsið
Uppáhaldsstaðurinn er
eldhúsið því þar gerist svo
mikið.
5 Síminn minn
Síminn minn, það ekki hægt
að horfa fram hjá því að hann
geymir svo mikið af lífinu
mínu. Mér finnst dýrmætast
spjallið við þá sem ég elska
þar og talskilaboð til þeirra
og frá þeim.
HEIMILISHLUTIR
2 LEIÐARI 5. MARS 2021 DV